Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 526
526. fundur
526. fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, þriðjudaginn 21. desember 2010 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Stefán Ólafsson, Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs
Dagskrá:
1. 201012048 - Fundargerð almannvarnanefndar 37. fundur
Björn Ingi gerði grein fyrir hugmyndum um skipan almannavarnanefndar og lagði til að Heilbrigðisstofnun Suðausturlands ætti þar fastan fulltrúa en ekki einungis áheyrnarfulltrúa eins og nú er. Einnig var rætt um skipan aðgerðarstjórnar. Björn Ingi benti á útgjöld sem hljótast af flugslysaæfingu sem verður á næsta ári. Einnig benti hann á að lagfæra þurfi heimasíðu sveitarfélagsins með tilliti til funda almannavarnanefndar.
Bæjarstjóra falið að fara yfir lög um almannavarnir og kalla eftir sjónarmiðum aðila sem hafa með almannavarnir að gera í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt
2. 201012054 - Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 5. fundur
Árni áréttar að það sem haft er eftir honum í fyrsta lið í fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar um útleigu á Pakkhúsi sé til komið vegna fyrri útboða á leigu á Pakkhúsi. Björn Ingi óskaði eftir upplýsingum um það sem er til umfjöllunar í 6. lið nefndarinnar, vinnumarkaðsúrræði vegna þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Reynir sagði málið í undirbúningi hjá ÞNA og komi til umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs. Reynir ræddi 5. lið á fundi nefndarinnar um eflingu kornræktar.
Fundargerð samþykkt
3. 201012049 - Fundargerð svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðagarðs 23. fundur
Fundargerð til kynningar.
4. 201012050 - Fundargerð stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs 40. fundur
Fundargerð til kynningar.
5. 201012055 - Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 782. fundur
Fram kom að Árni Rúnar Þorvaldsson hefur verið skipaður varamaður í ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Fundargerð til kynningar.
6. 201007005 - Fjárhagsáætlun 2011 - framkvæmdir og viðhald 2011
Björn Imsland kom inn á fundinn. Gerði hann grein fyrir tillögum að viðhaldi fasteina sveitarfélagsins. Björn Ingi óskaði eftir að fá í hendur samantekt um viðhald fasteigna. Björn Imsland fór einnig yfir fyrirhugaðar breytingar og endurbætur á ráðhúsi og kynnti fyrirliggjandi teikningar arkitekta. Reynir ræddi um gólfefni í afgreiðslu. Bæjarráð óskar eftir fundi með arkitekt. Björn Ingi benti á staðsetningu loftræstisamstæðu og bað menn um að skoða þann þátt betur með tilliti til þess að hljóð frá henni trufli.
Flosi Eiríksson kom inn á fundinn (í síma). Kynnti hann niðurstöður greiningar á útgjöldum, þ.e. fjármuna sem fara í verkefni á vegum sveitarfélagsins, þeirra sem eru lögbundin þjónusta, hefðbundna þjónustu, ýmsa aðra þjónustu og sameiginlega liði.
Farið yfir tillögut um helstu framkvæmdir á árinu 2011 sem eru endurbætur á Heppuskóla, viðgerð og endurbætur á Ráðhúsi og uppbygging Svavarssafns, uppbygging opinna svæða og endurbætur á gangstéttum. Einnig verkefni tengd umhverfismálaum svo sem endurbótum og breytingum í gámaporti, verkefnum í fráveitumálum og vatnsveitu. Framkvæmdir verða áfram til umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs. Björn Ingi gerði athugasemd við það að hafa ekki fengið gögn um áætlað viðhald fasteigna 2011 og fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir fundinn. Árni Rúnar áréttar fyrri bókun sína í bæjarráði, 28. júní 2010, um endurbætur á eldhúsi Lönguhóla.
7. 201006051 - Málefni Kára - Slysavarnadeildar Öræfa
Gerð var grein fyrir samskiptum við forsvarsmenn Slysavarnardeildarinnar Kára.
8. 200804057 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður - endurskoðun samþykkta sjóðsins
Farið yfir drög að breytingum á reglum Atvinnu- og rannsóknarsjóðs eftir yfirferð atvinnu- og menningarmálanefndar. Bæjarráð samþykkir að taka drög að breytingum á reglum sjóðsins fyrir aftur á næsta fundi.
9. 201012052 - Staða bæjarsjóðs 30. nóvember 2010
Haukur Ingi fór yfir stöðu bæjrsjóðs 30. nóvember 2010. Sagði hann stöðuna að mestu leyti í samræmi við áætlanir. Björn Ingi tók undir það að staðan væri í heildina góð en benti jafnframt á að sex málaflokkar af tólf væru að fara fram úr áætlun samkvæmt þessu yfirliti sem væri áhyggjuefni. Einnig gerði hann að umtalsefni framsetningu framkvæmdayfirlits ársins 2010. Einnig ræddi hann framkvæmdir við ráðhús sem enn ófært inn á verk.
10. 201012053 - Endurbætur á vatnsveitu við Hólmslindir - tilboð
Birgir Árnason kom inn á fundinn og kynnti málið. Tilboð bárust frá þremur aðilum,Vélsmiðjunni Foss ehf. sem bauð kr. 2.224.358.-, Króm og hvítt ehf. sem bauð kr. 1.254.754.- og Vélsmiðju Hornafjarðar sem bauð kr. 1.089.000.-. Lægsta tilboði hefur verið tekið.
Innsend erindi:
11. 201012057 - Hvatning til bæjarfulltrúa við gerð fjárhagsáætlunar
Til kynningar
12. 201012056 - Tilboð til sveitarfélagsins um kaup á ljósalistaverki
Bæjarráð vísar erindinu til atvinnu- og menningarmálanefndar.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Umræða skapaðist um útsendingu bæjarstjórnarfunda á netinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:50


