Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 524
524. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 6. desember 2010 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Hjalti Þór Vignisson, Björn Ingi Jónsson, Guðrún Ingimundardóttir, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201007005 - Fjárhagsáætlun 2011 - viðtöl við forstöðumenn stofnana vegna fjárhagsáætlunarg 2011 12:05-17:05
Forstöðumenn mættu á fundinn undir þessum lið og fór yfir rekstur sinnar stofnunar.
2. 200811043 - Fundargerðir
3. 201012011 - Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 6.fundur
Umræður sköpuðust um liði 1., 2., 5., 6., og 8. lið fundargerðarinnar. Bæjarráð samþykkir að halda áfram stamstarfi um verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
Fundargerð samþykkt.
4. 201012008 - Fundargerð 36. fundar stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs
Hjalti gerði grein fyrir 7. lið er varðar tillögu að breytingu á lögum og reglugerð þjóðgarðsins. Bæjarráð leggur áherslu á að allar breytingar á lögum og reglugerð um þjóðgarðsinn verði gerðar í samráði við hagsmunaaðila þjóðgarðsins, bæjarráð felur Bæjarstjóra að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum við stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.
Umræður sköpuðust um lið 1., 5., 6. og 8 lið fundargerðarinnar.
Til kynningar.
5. 201007005 - Fjárhagsáætlun 2011 - Gjaldskrá slökkviliðs og deildayfirlit, samanburður á útkomuspá 2010 og fjá. 2011 og launaáætlun 2011
Farið var yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2011 eftir fund með forstöðumönnum, starfsmönnum falið að klára tillögur að fjárhagsáætlun í samræmi við umræður á fundinum. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að gjaldskrá slökkviliðs með þeirri breytingatillögu sem komu fram á fundinum.
6. 201009078 - Tilboð í gluggaviðgerðir og klæðningar á ráðhúsi
Haukur Ingi gerði grein fyrir tveim tilboðum sem bárust í verkið annað tilboðið er frá Hans Christensen ehf og hitt frá Þingvaði ehf. Voru bæði tilboðin undir kostnaðaráætlun. Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Hans Chrisensen ehf, sem bauð 11.667.059.- kr m.vsk. með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.
7. 200902024 - Fjarskiptamál stofnana sveitarfélagsins
Hjalti gerði grein fyrir framgangi fjarskiptamála stofnana sveitarfélagsins, Bæjarstjóra veitt umboð til að ganga frá málinu. Endanlegur sanmingur verður lagður fyrir bæjarráð.
8. 201009078 - Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn
Lagðar voru fram tillögur að breytingum í samræmi við umræður bæjarráðs frá síðasta fundi. Haukur gerði grein fyrir að kostnaður við breytingar verði óverulegar, bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á teikningum. Einnig var lögð fram litatillaga að útliti utanhúss á Ráðhúsi og Svavarssafni, bæjarráð er sammála um að hafa álklæðningu perluhvíta í samræmi við framlagða tillögu, aðrir litir verði ákveðnir síðar.
9. 201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón
Hjalti gerði grein fyrir fundum um deiliskipulag við Jökulsárlón. Bæjarráð leggur áherslu á að hafin verði uppbygging á grunni deiliskipulags svo fljótt sem auðið er. Fáist ekki niðurstaða í ferlið á næstunni mun sveitarfélagið kanna kosti þess að skipuleggja þjónustusvæði á vesturbakka lónsins.
10. 200805074 - Hafnarvík Heppa verkefni
Miklar umræður sköpuðust um Hafnarvík Heppu og hvaða leiðir væru bestar til að fá einstaklinga í lið með sér um uppbyggingu. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
11. 201010050 - Innsend erindi:
12. 201012007 - Auglýsing um styrki til jarðhitaleitar 2010
Vísað til fjármála- og framkvæmdasviðs
13. 201012014 - Ósk um upplýsingar rusl og úrgangi á ströndum í sveitarfélaginu og útbreiðslu og áhrif þess vanda á lífríki á svæðinu.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
14. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Björn Ingi lagði til að þrenging á þjóðvegi 1 við Mánagarð verði tekin til endurskoðunar. Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.


