Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 522
522. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 22. nóvember 2010 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Björn Ingi Jónsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson, Kristján Sigurður Guðnason, Guðrún Ingimundardóttir,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
2. 201011047 - Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 5. fundur
Umræður sköpuðust um 2., 5., 6., og 13 lið fundargerðarinnar. Bæjarráð óskaði eftir yfirliti yfir þróun í fjölda starfsmanna og samanburði á kostnaði við veittan stuðning vegna frávika hjá nemendum í skólum sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt
3. 201011043 - Fundargerð stjórnar SASS 438
Fundargerð til kynningar.
4. 201011046 - Framtíð urðunarstaðar í Lóni
Haukur Ingi gerði grein fyrir minnisblaði 18.11.2010 um fund með UST um endurnýjun starfsleyfis fyrir núverandi urðunarstað. Bæjarráð samþykkir að hefja umsóknarferli um endurnýjun starfsleyfis fyrir núverandi urðunarstað. Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum um við landeigendur urðunarstaðarins í Syðri- Firði í Lóni.
5. 201006051 - Málefni Slysavarnadeildar Öræfa
Hjalti gerði grein fyrir fundi með Ármanni Guðmundssyni um málefni Slysavarnadeildarinnar Kára í Öræfum. Bæjarstjóra falið að boða formenn Kára og Björgunarfélags Hornafjarðar á fund til að fara yfir málefni félaganna.
6. 201005046 - Deiliskipulag við Jökulsárlón
Hjalti gerði grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið um málefni deiliskipulags við Jökulsárlón. Umræður sköpuðust um uppbyggingu þjónustusvæðis, starfmönnum falið að vinna áfram að málinu.
7. 201011049 - Efnahagsreikningur sveitarfélagsins 1. janúar 2010
Gerð var grein fyrir nýjum reglum um framsetningu ársreikninga, breytingin hefur lítil áhrif á efnahagsreikning sveitarfélagsins, áhrifin eru jákvæð fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð og hækkar eiginfjárhlutfalla sveitarfélagsins.
8. 200910018 - Samstarfssamningur við Markaðsstofa Suðurlands - ósk um framlengingu
Hjalti gerði grein fyrir árangri af samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands, bæjarráð tekur jákvætt í áframhaldandi samstarf við Markaðsstofuna og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
9. 201011050 - Áskorun íbúafundar á Hornafirði vegna niðurskurðar í heilbrigðisþjónustu
Áskorun lögð fram til kynningar. Bæjarráð fagnar niðurstöðu fundarins og tekur undir áskorunina.
10. 201010050 - Innsend erindi:
11. 201011040 - Ósk um styrk til Sjónarhóls
Málinu vísað til skólaskrifsstofu.
12. 201011044 - Skýrsla um samspil samkeppnisstefnu og umhverfisstefnu
Til kynningar
13. 201011036 - Uppgjör framlaga vegna húsaleigubóta 2009
Til kynningar
14. 201011039 - Umhverfismál hafna - ályktun frá hafnasambandsþingi 2010
Málinu vísað til Hafnarstjórnar.
15. 201011038 - Hlutverk og tækifæri hafna - ályktun frá hafnasambandsþingi 2010
Málinu vísað til Hafnarstjórnar.
16. 201011037 - Ársreikningur og fjárhagsáætlun Hafnasambands Íslands
Málinu vísað til Hafnarstjórnar.
17. 201011042 - Auglýsing um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum 2011
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og atvinnu- og menningarmálanefndar.
18. 201011048 - Skil fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2011
Hjalti gerði grein fyrir fyrirhugaðri vinnu við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011. Gert er ráð fyrir að vinnu ljúki í lok desember.
19. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Þær hafa engar borist.


