Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 518
518. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,mánudaginn 25. október 2010 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Stefán Ólafsson, Kristján Sigurður Guðnason,
Fundargerð ritaði: Stefán Ólafsson, Framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs
Dagskrá:
1. 200811043 - Fundargerðir
2. 201010031 - Fundargerð félagsmálaráðs 209
Fundargerð áður samþykkt.
3. 201010030 - Fundargerð hafnarstjórnar 127
Björn Ingi saknar þess að sjá ekki upphæðir tilboða en ekki aðeins hlutfall af kostnaðaráætlun. Fram kom hjá Hauki Inga að lægsta tilboð í Óslandsbryggju, tilboð Olgeirs Jóhannessonar hafi verið 7.756.300.sem var 96% af kostnaðaráætlun.
Haukur Ingi gerði grein fyrir tveim tilboðum sem bárust í hreinsivirki við Leiðarhöfða. Tvö tilboð bárust og var gengið til samninga við lægstbjóðandi sem bauð 84% af kostnaðarverði. Tilboð lægstbjóðanda, Mikael ehf., er 5.819.500.
Bæjarráð tekur undir bókun hafnarstjórnar um nauðsyn dælingar á Grynnslunum.
Fundargerð samþykkt.
4. 201010051 - Skóla, íþrótta- og tómstundanefnd 4. fundur
Björn Ingi spurði um úttektir, sbr. 5. og 6. lið sem og kostnað við matskerfið Skólamat Outcome. Ásgerður og Stefán svöruðu fyrirspurnum.
Fundargerð samþykkt.
5. 201010034 - Stjórn Samb. ísl. sveitarfélaga fundargerð 777
Til kynningar.
6. 201010035 - Stjórn Samb. ísl. sveitarf. fundargerði 778
Til kynningar.
7. 200709059 - Endurskoðun á aðalskipulagi - hugmynd um vinnuferli
Haukur Ingi fór yfir fyrirhugaða vinnu við aðalskipulag sveitarfélagsins. Árni benti á að ný skipulagslög taki gildi um næstu áramót, það þurfi að hafa í huga. Björn Ingi benti á að gæta þurfi aðhalds vegna kostnaðar við gerð aðalskipulags. Bæjarráð vísar vinnu við gerð aðalskipulags til umfjöllunar í bæjarstjórn.
8. 201010046 - Endurskoðun leikskólamála
Eftirfarandi tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks um leikskólamál var vísað til bæjarráðs á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn felur skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd að hefja þegar vinnu við endurskoðun á rekstrarumhverfi leikskóla í sveitarfélaginu. Í ljósi nemendafækkunar og góðrar reynslu af sameiningu grunnskólans skal nefndin sérstaklega kanna kosti sameiningar leikskólanna undir einni stjórn með hagræðingu í rekstri og öflugt skólastarf að leiðarljósi. Nefndin skal vinna tillögur sínar í samstarfi við starfsfólk leikskólanna, foreldra og aðra hagsmunaaðila. Niðurstöður nefndarinnar skulu liggja fyrir í mars 2011.
Ásgerður fór yfir málið og ræddi hugmyndir um vinnu við úttektina. Árni fagnar að málið sé komið í farveg. Gerði ekki athugasemd við að vinna hæfist í byrjun næsta árs en lagði jafnframt áherslu á að niðurstöður liggi fyrir áður en næsta skólaár verður skipulagt. Tók Björn Ingi undir orð Árna og lagði áherslu á skjóta vinnu við þessa úttekt. Bæjarráð vísar til starfsmanna að skipuleggja vinnu við úttekt á leikskólamálum.
9. 201007005 - Fjárhagsáætlun 2011 - forsendur áætlunar
Haukur Ingi fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2011. Ásta kynnti áætlunarlíkanið. Björn Ingi lagði til að teknar verði til frekari umræðu hugsanlegar breytingar á sorphirðugjöldum og sorpeyðingargjöldum, sbr. forsendur fjárhagsáætlunar eins og þær liggja nú fyrir. Tók Árni undir orð Björns Inga.
10. 201010033 - Hringvegur um Lón
Bæjarráð vísar málinu til vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
11. 200810080 - Grjótbrúarlind - minnisblað frá fundi
Haukur Ingi kynnti minnisblaðið. Björn Ingi spurði hvenær rannsóknum á vatninu hafi átt að vera lokið samkvæmt samningi við væntanlegan vatnskaupanda. Einnig velti hann upp spurningum um framhald málsins. Voru menn sammála um að fara þurfi yfir næstu skref.
12. 200904063 - Ósk Hestamannafélagsins Hornfirðings um kaup á girðingarefni í eigu sveiterfélagsins
Haukur Ingi gerði grein fyrir meðfylgjandi minnisblaði. Bæjarráð harmar þá stöðu sem komin er upp á félagssvæði Hestamannafélagsins og hvetur aðila málsins að leita sáttar. Bæjarráð samþykkir að Hestamannafélagið Hornfirðingur fái girðingarefnið á markaðsverði gegn samsvarandi aukinni hlutdeild sveitarfélagsins í reiðhöll. Starfsmönnum falið að ganga frá málinu.
13. 201010065 - Sala á Sandbakka 1, íbúð 0103
Bæjarráð heimilar sölu á umræddri íbúð að Sandbakka 1, íbúð 0103 fastanúmer 218-1169. Haukur Ingi kynnti tilboð í umrædda íbúð. Starfsmönnum falið að leggja fram gagntilboð í samræmi við umræður á fundinum.
14. 201010050 - Innsend erindi:
15. 201010043 - Kynning á íslensku safnastarfi
Málinu vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar.
16. 201010037 - Refaveiðar uppgjörstímab. 2010-2011
Bæjaráð mótmælir þeirri ákvörðun ríkisvaldsins að greiða ekki fyrir refaveiðar uppgjörstímabilið 2010 - 2011. Málinu vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar og vinnu við fjárhagsáætlun 2011.
17. 201010036 - Dagur íslenskrar tungu 2010
Stefán greindi frá fyrirhugaðri dagskrá Grunnskóla Hornafjarðar í tilefni Dags íslenskrar tungu.
18. 201009008 - Fjarskiptasamband í sýslunni
Til kynningar.
19. 201010047 - Námskeið um aðgerðaráætlanir í jafnréttismálum 1.-2. nóvember 2010
Vísað til félagsmálaráðs.
20. 201010049 - Leikskólaganga barna og vanskil foreldra
Vísað til félagsmálaráðs og skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.
21. 201010052 - Ársfundur UST og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga 2010
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
22. 201010048 - Ágóðahlutagreiðsla 2010
Kynnt ágóðahlutagreiðsla eignarhaldsfélags BÍ, ágóðin var 4.824.000.- Rætt um að a.m.k. hluti ágóðagreiðslna renni til búnaðarkaupa slökkviliðs. Vísað til vinnu við fjárhagsáætlun.
23. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð:
Ásgerður gerði að umtalsefni uppgjör framboðanna vegna kosningar til sveitarstjórnar 2010, sbr. áður fram komna fyrirspurn Árna Þorvaldssonar. Tvö framboð af fjórum hafa gert grein fyrir umræddum kostnaði.
24. 201010044 - Fyrirspurn um sjávarútvegsmál
Lögð vor fram svör við fyrirspurn Árna Rúnars Þorvaldssonar
Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs og Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs áttu fund þann 18.10.10 með Aðalsteini Ingólfssyni framkvæmdastjóra og Gunnari Ásgeirssyni starfandi stjórnarformanni hjá Skinney – Þinganes. Á fundinum var farið yfir málefni félagsins sem er snúa að fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar um sjávarútvegsmál.
1. Hafa forsvarsmenn sveitarfélagsins verið í samskiptum við stjórn og stjórnendur Skinneyjar – Þinganess vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í málefnum fyrirtækisins?
Bæjarstjóri hefur ekki átt formlega fundi með forsvarsmönnum SÞ um vegna þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað en hins vegar fóru staðgengill bæjarstjóra og framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs á fund með þeim eftir að fyrirspurn um málið barst bæjarráði. Bæjarstjóri hefur rætt við stjórnendur fyrirtækisins í síma þar sem málið var rætt.
2. Er forsvarsmönnum sveitarfélagsins kunnugt um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins?
o Er rekstur fyrirtækisins traustur?
o Er efnahagur fyrirtækisins traustur?
o Er framtíð fyrirtækisins háð frekari afskriftum hjá lánastofnunum?
Fram kom á fundinum að rekstur félagsins er traustur sem og efnahagur þess. Forsvarsmenn félagsins bentu jafnframt á að Skinney – Þinganes hafi ekki fengið afskriftir skulda og væri ekki háð afskriftum.
3. Hversu stór hluti af útgreiðslu arðs upp á 600 milljónir til eigenda skilar sér í skatttekjum í sjóði sveitarfélagsins?
Á arðgreiðslur leggst fjármagnstekjuskattur sem rennur í ríkissjóð.
Bókun áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar vegna svara við fyrirspurn um sjávarútvegsmál
"Undirritaður þakkar fyrir veitt svör um stöðu Skinneyjar – Þinganess hf. og sjávarútvegs á Hornafirði vegna umræðu um afskriftir hjá Nónu ehf., dótturfyrirtækis Skinneyjar – Þinganess.
Umræða um sjávarútvegsmál á eftir að aukast á næstu vikum og mánuðum. Atvinnu- og menningarmálanefndar Hornafjarðar bíður það verkefni að ræða skýrslu starfshóps um endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu á grundvelli minnisblaðs bæjarstjóra um skýrlsu starfshópsins. Í ljósi frétta um afskriftir einstakra útgerðarfyrirtækja þá telur undirritaður mjög mikilvægt að upplýst verði um skuldastöðu sjávarútvegsins í heild og skuldameðferð hans hjá lánastofnunum, sbr. fyrirspurn Ólínu Þorvarðardóttur, alþingismanns til efnahags- og viðskiptaráðherra frá 4. október 2010. Slíkar upplýsingar eru nauðsynleg forsenda þess að kjörnir fulltrúar og almenningur geti myndað sér skoðun á framtíðarskipan fiskveiðistjórnunar. Tillaga til þingslályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan fiskveiðstjórnar er núna til umfjöllunar á Alþingi."


