Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 516
516 . fundur
Fundur bæjarráðs Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 4. október 2010 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson, Kristján Sigurður Guðnason,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 201010004 - Fjárlög 2011
Gerð grein fyrir fjárlagafrumvarpi sem kynnt var á föstudaginn sl. Vegna mikils niðurskurðar á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA) vill bæjarráð Hornafjarðar koma eftirfrandi framfæri:
Heilbrigðisstofnun Suð-Austurlands á Höfn er alfarið rekin af Sveitarfélaginu Hornafirði samkvæmt samningi við ríkið. Framlög til stofnunarinnar eru í ár 415 millljónir en skerðast um tæplega 16% milli ára og verða 358 milljónir á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu.
Ef þetta verður niðurstaðan er ljóst að áfallið er mikið. Eins og frumvarpið birtist er ljóst að höggvin verða skörð í velferðaþjónustu á Hornafirði því starf á HSSA telst ekki til neins annars en grunnþjónustu. Það er líka mikilvægt að komi fram að engin skurðstofa er á Hornafirði heldur eru sjúkrarými hugsuð í bráðatilfellum, fyrir fólk til að jafna sig eftir aðgerðir á spítölum, vegna lyfjameðferðar og fleira þess háttar. Þessi rými hafa verið mjög mikið nýtt á undanförnum árum og ekki hægt að sjá hvernig menn hyggjast hagræða því annars dvelur fólkið einfaldlega lengur á öðrum sjúkrastofnunum.
Á Höfn hefur fyrir áðurnefnda upphæð verið starfrækt heilsugæsla, hjúkrunarheimili, dvalarheimili, ljósmóðurþjónusta og fjögurra rýma sjúkradeild. Á síðustu árum hefur stórlega dregið úr þörf fyrir aukinni uppbyggingu hjúkrunarrýma vegna þess hversu heimahjúkrun hefur eflst. Færa má sterk rök fyrir því að sú þróun hafi þegar sparað ríkinu umtalsverða fjármuni í formi stofnanaþjónustu.
2. 201009098 - Stjórn HSSA 2. fundur
Björn Ingi vakti máls á hugmyn um aðkeypta ráðgjöf samanber fimmta lið er varðar verkefni stjórnar HSSA.
Árni Rúnar ítrekar fyrirspurn Guðrúnar Ingimundardóttur í fjórða lið er varðar viðræður milli HSSA og heilbrigðisráðuneytisins um þjónustusamning um rekstur HSSA.
Hjalti upplýsti að verkefnalisti stjórnar HSSA yrði endurskoðaður í ljósi framkomins fjárlagafrumvarps og ekki væri enn búið að ákveða í hvaða farveg endurnýjun á samningi um rekstur HSSA yrði settur.
Fundargerð samþykkt
3. 201009102 - Félagsmálaráð 209. fundur
Umræður sköpuðust um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum.
Fundargerð samþykkt.
4. 201009103 - Umhverfis- og skipulagsnefnd 4. fundur
Reynir óskaði eftir að bæjarráðsmönnum yrði send gögn er varða fyrsta og fjórða lið fundargerðar nefndarinnar. Bæjarráð samþykkir stofnun fasteignarinnar Flatey 2 fastanr. 160088 í fasteignaskrá
5. 200709065 - Kynning á Fjölskyldustefnu Hornafjarðar
Jón Kristján Rögnvaldsson gerði grein fyrir hugmynd félagsmálaráðs á útgáfu Fjölskyldustefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Bæjarráð samþykkir að veita 300.000.- kr í kynningu á stefnunni og tekið af sameginlegum kostnaði.
6. 201009097 - Hönnunarsamningur við Ask arkitekta
Haukur Ingi gerði grein fyrir samningsdrögunum. Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leiti.
7. 200905104 - Flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga -undanþágur frá ákvæði um lágmarksíbúafjölda
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð fagnar því að sveitarfélagið Hornafjörður verður sér þjónustusvæði fyrir málefni fatlaðra.
8. 200812072 - Nýtt kirkjugarðsstæði
Haukur Ingi lagði til að málið fengi almenna kynningu áður en unnið verði deiliskipulag í samræmi við tillögu 3. Bæjarráð samþykkir að starfsmenn kynni tillögur að stækkun á núverandi kirkjugarðsstæði í samræmi við bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
9. 201004004 - Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2010 - úthlutun stofnbúnaðar
Haukur Ingi gerði grein fyrir tillögum að endanlegri úthlutun á stofnbúnaði fyrir árið 2010. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur.
10. 201009106 - Aðalfundur Haust 2010
Bæjarráð felur Hauki Inga Einarssyni að fara með atkvæðisrétt Sveitarfélagsins Hornafjarðar á fundinum.
11. 201009095 - Hreindýr í vanda vegna ónýtra girðinga - innsent erindi
Bæjarráð óskar eftir fundi með Umhverfisstofnun um málefni Hreindýra í Sveitarfélaginu Hornafirði. Starfsmönnum falið að óska eftir fundi með Umhverfisstofnun. Málin einnig vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar.
12. 201009096 - Tilmæli til sveitarstjóra vegna reglna um ráðningar starfsmanna sveitarfélaga - innsent erindi
Bæjarráð óskar eftir að farið verði yfir reglur um ráðningarferli starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Málinu vísað til bæjarstjóra.
13. 200809015 - Framkvæmdir á jörðinni Uppsalir 1 - innsent erindi
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð leggur áherslu á að áður en ráðist er í framkæmdir á jörðinni þá þurfi að skýra eignarhald á jörðinni.
14. 201009099 - Ráðstefnur um almannavarnir 20. og 21. október - innsent erindi
Hjalti lagði fram tillögu um að formaður almannavarnarnefndar fari á ráðstefnuna. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.
15. 201009105 - Reglur um starf sveitarfélagadeildar Sveitamenntar SGS og Launanefndar sveitarfélaga - innsent erindi
Til kynningar.
16. 201009100 - Fyrirspurnir - bæjarráð
Reynir gerði málefni Heinabergsdal að umtalsefni í ljósi frétta um lokun ferðaleiða í Vatnajökulsþjóðgarði. Kom fram að Heinabergsdalur er opinn fyrir almennri umferð og það sé skýrt kveðið á um slíkt í tillögum að verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð.
l


