Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 515
515. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 27. september 2010 og hófst hann kl. 17:15
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Hjalti Þór Vignisson, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, Haukur Ingi Einarsson, Guðrún Ingimundardóttir,
Fundargerð ritaði: Haukur Ingi Einarsson, Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá:
1. 201009071 - Atvinnu- og menningarmálanefnd 3. fundur
Björn Ingi fjallaði um 4. lið er varðar Evrópa unga fólksins og hvar það verkefni er vistað. Hjalti gerði grein fyrir hvernig verkefnið er tilkomið og hversvegna það er vistað undir Menningamiðstöðinni, bæjarráð telur mikilvægt að haft verði samráð við skólanefnd um málið.
Umræður sköpuðust um málefni útgáfu Skaftfellings.
Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur um breytingar á stofnskrá og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarráð óskar eftir því að allur rekstur stofnanna verði sýnilegar í bókhaldi og þeim gerð skil í ársreikningum sveitarfélagsins.
2. 201009073 - Starfshópur um sameiningarkosti sveitarfélaga á Suðurlandi 2. fundur
Hjalti gerði grein fyrir 2. fundi starfshóps um sameiningakosti sveitarfélaga á Suðurlandi.
3. 201009072 - Staða bæjarsjóðs 31. ágúst 2010
Ásta gerði grein fyrir stöðu bæjarsjóðs 31. ágúst 2010, áætlanir standast í meginatriðum. Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu framkvæmda. Umræður sköpuðust um lokafrágang sundlaugar sérstaklega varðandi aðgengi, starfsmönnum falið að fara yfir málið.
4. 201004004 - Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2010
Ásta gerði grein fyrir endurskoðun á fjárhagsáætlun, farið var yfir breytingablað, breytingar á launaáætlun, úthlutun stofnbúnaðar o.fl þætti. Bæjarráð samþykkir að vísa endurskoðaðri fjárhagsáætlun til bæjarstjórnar. Bæjarráð felur starfsmönnum að gera tillögu að endanlegum úthlutun stofnbúnaðar.
5. 201008060 - Tilboð - bryggja í Óslandi
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til Hafnarstjórnar.
6. 201009078 - Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna útboðsgögn í samræmi við framlagðar teikningar og umræður á fundinum.
7. 201009074 - Ósk um umsögn á útg. rekstrarleyfis - Hólmur
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu á rekstrarleyfinu.
8. 201009077 - Skýrsla um fiskveiðistjórnun - minnisblað
Hjalti gerði grein fyrir minnisblaðinu. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til Atvinnu- og menningarmálanefndar.
9. 201009067 - Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefndar
Vísað til starfsmanns umhverfis- og skipulagsnefndar.
10. 201009075 - Hluthafafundur Lánasjóðs sveitarfél. ohf.
Bæjarráð samþykkir að senda Hjalta Þór Vignisson sem fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar á Hlutafafund Lánasjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður 1. október 2010
11. 201009080 - Alþjóðleg athafnavika á Íslandi 15.-21. nóvember 2010
Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar
12. 201009008 - Fjarskiptasamband í sýslunni - svar Mennta- og menningarmálaráðuneytisins við bréfi
Bæjarráð þakka fyrir bréfið en hefur efasemdir um að stafrænt dreifikerfi leysi vandamál dreifbýlla svæða í Austur-Skaftafellssýslu í náinni framtíð.
13. 200705114 - Önnur mál
Bæjarráð leggur til að liðurinn önnur mál heiti "bæjarráð - fyrirspurnir" samþykkt samhljóða.


