Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 513
513. fundur
Fundur í bæjarráði Hornafjarðar haldinn á Hótel Selfossi mánudaginn 13. september 2010 og hófst hann kl. 10:40.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Björn Ingi Jónsson, Árni Rúnar Þorvaldsson, Hjalti Þór Vignisson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201009022 - Staða bæjarsjóðs 31. júlí 2010
Lögð fram staða 31. júlí 2010. Óskað eftir nánari sundurliðun á framkvæmdum, t.d. um Reiðhöll og plönum og götum.
2. 200905104 - Minnisblað eftir fund verkefnisstjórnar um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaga 6. september 2010
Lagt fram minnisblað dags. 6. septemer 2010. Árni þakkaði fyrir minnisblaðið. Rætt um faglegar, fjárhagslegar og landfræðilegar ástæður fyrir því að óska eftir undanþágu um að sveitarfélagið verði sér þjónustusvæði.
3. 201009016 - Húsnæðismál - fasteigna- og leigumarkaður á Hornfirði - drög að greinargerð
Lögð fram drög að greinargerð um húsnæðismál. Rætt um gjaldskrá leigu á Hornafirði, ástand húsa, húsnæðismál í dreifbýli og hlutverki sveitarfélagsins á fasteigna- og leigumarkaði. Vísað til félagsmálaráðs til umræðu. Bent á að á fyrra kjörtímabili hafi verið unnin skýrsla á vegum sérstakrar húsnæðisnefndar sem þarf að hafa til hliðsjónar í þessum málum.
4. 201008023 - Minnisblað um Jöfnunarsjóð - Breytingar á lögum og reglugerðum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Bæjarráð leggur áherslu á að fá fund með starfshópi um endurskoðun á Jöfnunarsjóði til að koma áherslum sveitarfélagsins á framfæri.
5. 201002068 - Sameining sveitarfélaga
Lagt fram minnisblað um fund nefndar um sameiningu sveitarfélaga á Suðurlandi dags. 8. september 2010. Umræður sköpuðust um samvinnu sveitarfélagsins við önnur sveitarfélög, skipulag á velferðarþjónustu, fjármál sveitarfélaga og fleiri atriða er skipta máli þegar rætt er um sameiningarmálin. Sveitarfélagið Hornafjörður er nú þegar með þá málaflokka á sinni könnu sem fyrirhugað er að flytja til sveitarfélaga. Bæjarráð telur mikilvægt að málið verði tekið fyrir í bæjarstjórn.
6. 201009028 - Vinnuverndarstarf í fyrirtækjum og stofnunun- vinnuverndarvikan 2010
Til kynningar. Lagður fram tölvupóstur frá framkvæmdastjóra fjármála- og framkvæmdasvið dags. 13. sept. 2010 um stöðu mála.
7. 201009027 - Nýtt leiðbeiningarrit um skjalavörslu sveitarfélaga - Þjóðskjalasafn Íslands
Starfsmönnum falið að fara yfir handbókina með það fyrir augum hvort breyta þurfi vinnubrögðum.
8. 201009026 - Stefnumótun sveitarfélaga í skólamálum - Samband ísl. sveitarfélaga
Vísað til skólanefndar.
9. 201009025 - Talþjálfun barna í sveitafélaginu - erindi frá Málefli, hagsmunasamtaka foreldra barna og unglinga með tal og málþroskaröskun
Vísað til skólanefndar
10. 201009024 - Niðurgreiðsla raforku til umræðu á vettv.aðalfunda landshlutasamtaka sveitarfélaga - brýning frá Sammtökum sveitarfélaga á köldum svæðum
Til kynningar.
11. 201009023 - Skólabragur - málstofa Sambands ísl. sveitarfélaga um skólamál 1. nóv
Vísað til skólanefndar
12. 201009021 - Ályktun velferðarvaktarinnar í upphafi skólastarfs
Vísað til skólanefndar.
13. 201009034 - Kynninga á starfi umboðsmanns barna
Vísað til félagsmálaráðs.
14. 201003021 - Afrit svarbréfs frá Húsafriðunarnefnd til viðkomandi aðila vegna niðurrifs torfbæjarins að Hofi í Öræfum
Til kynningar.
15. 201009030 - Erindi um flutning málefna fatlaðra frá Félagi ráðgjafa og stuðningsfulltrúa og SFR stéttarfélagi í almannaþjónustu
Til kynningar.
16. 201009031 - Byggjum á bjartsýni og hlúum að velferð og vellíðan í skólum erindi frá mennta og menningarmálaráðherra
Vísað til skólanefndar.
17. 200705114 - Önnur mál
Rætt um rafræn fundarboð.


