Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 511
511. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í ráðhúsi mánudaginn 30. ágúst 2010 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Ásgerður Gylfadóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson sem áheyrnarfulltrúi. Einnig, Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvstj. fjármála- og framkvæmdasviðs.
1. Fundargerðir
· Atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar, 2. fundur, 24. ágúst 2010.
Bæjarráð tekur undir bókun atvinnu- og menningarmálanefndar í öðrum lið.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar 206. fundur 22. júní og 207. fundur 24. ágúst 2010, – óundirritaðar.
Undir fundargerð 206 sköpuðust umræður um hæfismál.
Árni benti á að í öðrum lið fundargerðar 207 að unnin hafi verið skýrsla um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum á síðasta kjörtímabili.
Fundargerðir samþykktar.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 126. fundur, 26. ágúst 2010.
Árni spurðist fyrir um málefni björgunar Axels. Hjalti Þór gerði grein fyrir niðurstöðu í málinu. Haukur gerði grein fyrir vinnu sem farið hefur fram við kostnaðarmat á endurbótum Vogarbryggja.
Fundargerð samþykkt.
2. Erindisbréf nefnda
Ásgerður gerði grein fyrir að stjórn HSSA fjallar um erindisbréfið n.k miðvikudag. Hjalti lagði til að verði miklar áherslubreytingar á erindisbréfi HSSA verði umfjöllun þess erindisbréfs frestað til næsta fundar Bæjarstjórnar en önnur erindisbréf verði lögð fyrir næsta fund Bæjarstjórnar. Árni spurðist fyrir um erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar Hornafjarðar. Samþykkt að vísa erindisbréfum til bæjarstjórnar með áorðnum breytingum.
3. Málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings
Hjalti gerði grein fyrir minnisblaði dags 25. ágúst. Töluverðar umræður sköpuðust um málið. Málinu vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
4. Drög að reglum um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins
Stefán fór yfir forsögu málsins og gerði grein fyrir drögunum. Töluverðar umræður sköpuðust um drögin. Bæjarráð vísar drögum að reglum um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins til umfjöllunar atvinnu- og menningarmálanefndar og skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.
5. Þjónustustöð – starfsmannamál og skipulag
Hjalti og Haukur Ingi gerðu grein fyrir minnisblaði dagsettu 27. ágúst sl. Lagt til að ráðnir verði tveir aðilar í Þjónustustöðina annar sinni m.a verkefnum gámaports og hinn aðilinn sinni vélavinnu og opnum svæðum. Ekki er um fjölgun stöðugilda að ræða miðað við núverandi stöðu. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við kaup á timburkurlara í samræmi við áætlun. Bæjarráð vísar öðrum málum til fjárhagsáætlunargerðar.
6. Minnisblað um ferð til Reykjavíkur haustið 2010
Hjalti gerði grein fyrir undirbúningi að umsóknum til fjárlaganefndar.
7. Kauptilboð í íb. 0102 Sandbakka 3
Hjalti lagði til að samþykkt verði framlagt tilboð í íbúð að Sandbakka 3, bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu í Sandbakka 3, íbúð 0102, fastanúmer 218-1174. Bæjarráð heimilar sölu á íbúðinni.
8. Efling heilsugæslunnar – drög að áfangaskýrslu nefndar heilbrigðisráðherra
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð vísar skýrslunni til stjórnar HSSA.
9. Reglur um notkun á Pakkhúsi fyrir tónlistarviðburði – bókun atvinnu- og menningarmálanefndar
Bæjarráð vísar málinu til vinnu við endurskoðun á reglum um útleigu húsnæðis í eigu sveitarfélagsins.
10. Innsend erindi
· Sigurgeir Jónsson, svarbréf dags. 19. ágúst s.l.við bréfi framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar dags 17. ágúst 2010, framkvæmdir að Uppsölum 2 í Suðursveit.
Málinu vísaði til starfsmanna
· Samfylkingin á Hornafirði, uppgjör vegna kostnaðar og styrkja vegna framboðs til sveitarstjórnarkosninga 2010.
Til kynningar
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, bréf dags. 23. ágúst 2010, eftirlitsskýrsla vegna Brennu Flosa.
Til kynningar
· Sigurgeir Jónsson, bréf dags. 23. ágúst 2010, skiltamál og nafnabreytingar á jörðum.
Málinu vísað til starfsmanna
· Sigurgeir Jónsson, bréf dags. 23. ágúst 2010, lögheimilisskráning.
Málinu vísað til starfsmanna
· Mennta- og menningarmálaráðuneyti, tölvubréf dags. 27. ágúst 2010, úttektir á leik- og grunnskólum.
Bæjarráð leggur til að Sveitarfélagið Hornafjörður taki þátt í verkefninu. Starfsmönnum falið að ræða við ráðuneytið um samstarf.
11. Önnur mál
Hjalti gerði grein fyrir samtali við framkvæmdastjóra SASS um sameiningarnefnd sem á að fara yfir sameiningarmál sveitarfélaga. Lagt er til að Hjalti Þór Vignisson taki sæti í nefndinni. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.
Árni Rúnar gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu í ljósi nýs meirihluta í bæjarstjórn en veltir upp þeirri spurningu hvort ekki væri eðlilegra að kjörinn fulltrúi sæti í nefndinni.
Samþykkt að bæjarráð fundi kl 13:00 n.k mánudag.
Ásgerður gerði grein fyrir slæmu fjarskiptasambandi í sýslunni. Starfsmönnum falið að fara yfir málið og rita áskorun um úrbætur til réttra aðila.
Fundi slitið kl. 18:25


