Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 510
510. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í ráðhúsi mánudaginn 23. ágúst 2010 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Ásgerður K. Gylfadóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson sem áheyrnarfulltrúi. Einnig, Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvstj. tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 2. fundur 18.ágúst 2010.
Árni lagði fram eftirfarandi bókun:
Áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar styður niðurstöðu skóla-, íþrótta – og tómstundanefndar varðandi skipan félagsmiðstöðvar í stjórnkerfi sveitarfélagsins enda er hún í fullu samræmi við niðurstöður skýrslu starfshóps sem unnin var um félagslíf nemenda á grunnskólaaldri á síðasta kjörtímabili.
Einnig gerði Árni skólaakstur að umtalsefni og spurði hvort komið hafi verið til móts við ábendingar um breytingar á honum. Sagði Stefán það hafa náðst að vissu marki.
Þá tók Árni undir með skólanefnd að starf ungmennaráðs falli ekki niður. Nokkur umræða spannst um störf ráðsins og voru menn sammála um að það starfi áfram.
Árni spurðist fyrir um hugmyndavinnu vegna hugsanlegra framkvæmda við Heppuskóla, hvort ákveðið hafi verið fjármagn til verksins. Því var til svarað að menn vilji ná utan um verkið í heild sinni áður en endanlega verði tekin ákvörðun um fjármögnun. Einnig var bent á að verkinu verði áfangaskipt.
Einnig var rætt um umhirðu á íþróttasvæði, sbr. 9. lið fundargerðarinnar. Þá var rætt um hugsanlegar girðingar við nýjan körfuboltavöll eða aðrar leiðir til að vernda þennan nýja völl.
Einnig rætt um „stubbahús“ við sundlaug, sbr. fundargerð. Vísað til starfsmanna.
Guðrún Ása spurði um samning á milli grunnskólans og tónskólans.
Fundargerð samþykkt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd, 2. fundur 19. ágúst 2010.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar nr. 53 við Ægissíðu. Rætt um 7. lið á dagskrá, ósk um lóð undir smáhýsi. tekið undir með nefndinni.
8. liður fundargerðar, ósk um lóðarleigusamning. (Hjalti vék af fundi undir þessum lið.) Reynir lagði til að gerður verði samningur við umsækjanda sem sé í samræmi við samninga um beiti- og ræktunarlönd. Var það samþykkt.
Haukur fjallaði um vinnu vegna frístundabyggðar í Stafafellsfjöllum, endurskoðun á deiliskipulagsskilmálum, 12. liður á dagskrá nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 22. fundur 9. ágúst 2010.
Bæjarráð tekur undir bókun svæðisráðs um veglagningu upp úr Hoffellsdal.
Fram kom að verndaráætlun þjóðgarðsins fari bráðlega til staðfestingar í umhverfisráðuneyti.
2. Niðurstöður könnunar á kostnaði við kaup á skólavörum
Stefán gerði grein fyrir vinnu við könnunina og fór yfir niðurstöður hennar. Hjalti ræddi gjaldskrár sveitarfélagsins, svo sem leikskólagjöld, mötuneytisgjöld o.fl., gjöld sem greidd eru af fjölskyldufólki. Sagðist hann vilja skoða þessi mál í heild sinni samfara vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2011.
Árni þakkaði Stefáni fyrir samantektina, hún varpi ljósi á kostnað barnafjölskyldna vegna kaupa á skólavörum. Tók hann undir tillögu Hjalta. Sagði hann mikilvægt að þessi mál verði skoðuð áfram og farið betur yfir þau.
Hjalti lagið til að unnin verði samantekt um útgjöld fjölskyldunnar, gjaldskrár o.fl. við gerð fjárhagsáætlunar 2011. Var það samþykkt.
3. Fjárhagsáætlun 2011 – drög að ferli við gerð áætlunarinnar
Hjalti fór yfir drögin og gerði grein fyrir tillögum sínum að vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2011, þ.e. forsendur fjárhagsáætlunar, ramma og stefnumótun um rekstur, framkvæmdir og fjármögnun. Voru ekki gerðar athugasemdir við tillögu bæjarstjóra.
4. Ráðning yfirmanns umhverfis- og skipulagsmála
Hjalti fór yfir málið og greindi frá hugmyndum um framhaldið. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ljúka málinu. Árni sagðist ekki styðja þessa málsmeðferð þar sem hún felur í sér breytt ferli við ráðningu í stöðuna.
5. Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna funda og ráðstefna utan sveitarfélagsins
Farið yfir málið og því vísað til áframhaldandi vinnslu.
6. Innsend erindi
Siglingastofnun, bréf dags. 12. ágúst 2010, Samgönguáætlun 2011-2014.
Vísað til hafnarstjórnar.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, bréf dags. 17. ágúst 2010 – ársþing 13. og 14. september.
Til kynningar.
Hafnasamband Íslands, bréf dags. 16. ágúst 2010, boðun á hafnasambandsþing 23. og 24. september n.k.
Vísað til hafnarstjórnar
7. Önnur mál
Engin fram borin.
Fundi slitið kl. 18:05


