Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 498
498. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 6. apríl 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 123. fundur, 24. mars 2010.
Rætt um byggingu húss á lóð í Stafafellsfjöllum og 3. lið á dagskrá, lóð undir dælustöð Skeljungs.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 110. fundur, 25. mars 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs, 50. fundur, 25. mars 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 95. fundur, 11. mars 2010.
Bæjarráð óskar eftir kostnaðarmati um lagfæringar á miðbæjarsvæði.
Þriðja lið um samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands. Vísað til bæjarstjórnar
Fundargerð samþykkt.
2. Málefni fatlaðra
Farið yfir útsend gögn sem liggja fyrir vegna fyrirhugaðs flutnings málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga.
3. Bifreiðamál hjá málefnum fatlaðra
Þriggja ára rekstrarleigusamningur vegna þeirrar bifreiðar sem nú er notuð vegna starfseminnar er runninn út. Samþykkt að ganga til samninga um kaup á bifreiðinni. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun ársins.
4. Ársreikningur HSSA 2009
Bæjarráð vísar ársreikningnum til bæjarstjórnar.
5. Staða bæjarsjóðs 28. febrúar 2010
Lögð fram staða bæjarsjóðs 28. febrúar og er hún í samræmi við fjárhagsáætlun.
6. Framtíð byggingarfulltrúaembættisins
Bréf frá Hákoni Valdimarssyni dags. 26. mars 2010 lagt fram þar sem kemur fram að starfslok hans verða í lok júlí n.k. Bæjarráð þakkar Hákoni fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
7. Ósk um umsögn á frumvarpi til breytingar á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
8. Ósk Orkustofnunar um umsögn á nýtingarleyfi fyrir efnistöku við Breiðá
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
9. Bréf Karls Ómars Jónssonar vegna sýningarsals í ráðhúsi og listaverkagjafar verka Svavars Guðnasonar
Bæjarstjóra falið að gera uppkast að svarbréfi þar sem m.a. verði óskað eftir viðræðum við Karl Ómar Jónsson um Listasafn Svavars Guðnasonar.
10. Ósk Sambands ísl. sveitarfélaga um að sveitarfélagið taki þátt í rannsóknarverkefni vegna hauggasmyndunar
Óskað er eftir kostnaðaráætlun fyrir verkefnið áður en endanleg ákvörðun er tekin.
11. Innsend erindi
· Skipulagsstofnun, bréf dags. 16. mars 2010, greiðsla kostnaðar vegna aðalskipulagsgerðar.
Til kynningar.
· Þjóðminjasafn Íslands, bréf dags. 18. mars 2010, athugasemdir vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda að Hofi í Öræfum.
Grenndarkynningu lýkur 14. apríl og að þeim tíma liðnum tekur byggingar- og skipulagsnefnd endanlega afstöðu til málsins.
· Yfirlýsing landeigenda á Hofi í Öræfum vegna fyrirhugaðrar byggingar gistirýmis að Hofi I Austurhúsum.
Grenndarkynningu lýkur 14. apríl og að þeim tíma liðnum tekur byggingar- og skipulagsnefnd endanlega afstöðu til málsins.
· Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, bréf dags. 19. mars 2010, endurgreiðsla á hækkuðu tryggingargjaldi.
Til kynningar.
· Félag íslenskra atvinnuflugmanna, bréf dags. 25. mars 2010, Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni.
Bæjarráð tekur heilshugar undir ályktun sem fram kemur í bréfinu.
· Mennta- og menningarmálaráðuneytið/Rannsókn og greining,tölvubréf 29. mars 2010, ráðstefnan „Æskan – rödd fratíðarinnar“ 20.-21. maí n.k. á Hilton Nordica.
Vísað til skólanefndar.
12. Önnur mál
· Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða í nýlagnir og yfirlagnir með malbiki í Sveitarfélaginu Hornafirði, dags. 30. mars 2010. Starfsmönnum falið að ræða við lægstbjóðanda, Hlaðbæ Colas.
Fundi slitið kl. 19.00


