Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 226
226. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn 16. október 2003, kl 10:00
Mætt voru: Halldóra B. Jónsdóttir, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Helgi Már Pálsson, Stefán Ólafsson, Ásta H. Guðmundsdóttir og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
• Byggingar- og skipulagsnefnd 47. fundur 9. október 2003.
Halldóra varpaði fram hugmynd um að safnað verði saman fram komnum óskum um breytingar á aðalskipulagi og þær afgreiddar í einu lagi á fundi bæjarráðs undir sérstökum lið. Helgi sagði nýtt kort yfir aðalskipulag eiga að liggja fyrir í árslok þar sem fram komi samþykktar breytingar.
Frestað að afgreiða 2. lið í fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar.
Fundargerð samþykkt að öðru leyti.
• Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 49. fundur 6. október 2003.
Fundargerð samþykkt.
• Umhverfisnefnd Hornafjarðar 38. fundur13. október 2003.
Kristín gerði að umtalsefni umgengni á fyrirtækjalóðum. Taldi tiltekt á mörgum þeirra ganga seint og illa. Einnig var bent á skort á girðingum umhverfis geymslulóðir. Helgi vakti athygli á samþykkt nefndarinnar um fráveitumál, sbr. 4. lið í fundargerð. Þar er meðal annars rætt um staðsetningu hreinsistöðvar í Óslandinu sunnan Ásgarðs fyrir fráveituna á Höfn. Samþykkt að fresta afgreiðslu 4. liðar til næsta fundar bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt að öðru leyti.
• Heilbrigðisnefnd Austurlands 41. fundur 7. október 2003 til kynningar
• Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 706. fundur 19. september 2003 til kynningar.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2003
• Gögn afhent á fundi
Samkvæmt þessu yfirliti er halli á fjárhagsáætlun 2003 krónur 29,1 milljón. Þar af er rekstur 13,2 milljónir og fjárfesting 15,9 milljónir. Afgreiðslu á endurskoðaðri fjárhagsáætlun frestað til næsta fundar bæjarráðs.
3. Fjárhagsáætlun 2004
• Gögn afhent á fundi
Lagt fram til kynningar fjármagnsyfirlit aðalsjóðs sveitarfélagsins, 1. drög, fyrir árið 2004. Samkvæmt drögum þessum er staða sveitarsjóðs mjög erfið og ljóst að gæta þarf fyllsta aðhalds í rekstri. Framkvæmdastjórum falið að kanna rækilega niðurskurð í rekstri sveitarfélagsins.
4. Innsend erindi og til kynningar
• Bréf frá landbúnaðarráðuneyti dags. 9. október 2003 v/óskar bæjarstjórnar um að eign ríkisins í jörðinni Flatey verði hluti fyrirhugaðs Vatnajökulsþjóðgarðs.
Bæjarstjóra falið að ræða við starfsmenn landbúnaðarráðuneytis um þetta mál.
• Bréf Heilbrigðiseftirlits Austurlands dags. 8. október v/aðalfundar sem haldinn verður á Vopnafirði 30. október nk.
Bæjarstjóra falið að tilnefna fulltrúa á fundinn.
• Bréf frá menntamálaráðuneyti og Íslenskri málstöð dags. 3. október um dag íslenskrar tungu 16. nóvember nk.
• Bréf frá Siglingarstofnun dags. 26. september sl. v/ gildistöku ákvæða alþjóðasamþykktar um siglingar- og hafnavernd.
• Bréf frá IMG – Deloitte dags 6. október um samanburðargreiningu grunnskóla og leikskóla.
Vísað til framkvstj. fræðslu- og félagssviðs.
• Upplýsingar frá Hagstofu Íslands um búferlaflutninga fyrstu 9 mánuði ársins.
5. Önnur mál
• Bæjarstjóri, Albert Eymundsson, er kominn í veikindaleyfi og gegnir Inga Jóna Halldórsdóttir stöðu bæjarstjóra meðan leyfið varir.
• Rætt um "Vistvernd í verki" og kynningarfund í Pakkhúsinu nk. sunnudag.
• Reynir spurði um stöðu mála varðandi fyrstu hæð í ráðhúsinu. Inga Jóna greindi frá fundum með sýslumanni og starfsmönnum fjármálaráðuneytis.
• Reynir spurði um stöðu samninga um handmenntastofur í Vöruhúsi. Stefán greindi frá því að kaupfélagsstjóra hefði verið kynnt síðasta tillaga bæjarráðs en henni hafi ekki verið svarað formlega. Einng kom fram að unnið er við breytingar í Vöruhúsi vegna væntanlegrar handmenntakennslu í húsinu.
• Helgi Már kynnti tvö tilboð í upptökubraut við smábátahöfn, annað 117% af kostnaðaráætlun og hitt 186%. Vísað til hafnarstjórnar.
Fundi slitið kl. 12:00


