Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 492
492. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi föstudaginn 5. febrúar 2010 kl. 17:00.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 108. fundur, 28. janúar 2010.
Rætt um OLE II og útgáfu á upplýsingabæklingi fyrir eldri borgara.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 771. fundur, 29. janúar 2010.
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum milli sín og ráðuneytisins um málefni fatlaðra og sameiningamál, umræður sköpuðust um sameiningamál.Fundargerð til kynningar.
2. Tillögur að malbikunarframkvæmdum árið 2010
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. Samþykkt var að leita eftir verðtilboðum í malbikunarframkvæmdir.
3. Bifreiðamál sveitarfélagsins
Samþykkt að kaupa VW Caddy miðað við þau verð sem komu fram á fundinum.
4. Beiðni um almenna heimild fyrir birtingu upplýsinga um stöðu lána sveitafélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Eftirfarandi bókun var samþykkt.
Hér með veitir bæjarráð Hornafjarðar, með vísan til 60. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, Lánasjóði sveitarfélaga heimild að miðla upplýsingum um lán sveitarfélagsins hjá lánasjóðnum opinberlega og til fjárfesta, þ.m.t. upplýsingar um nafn skuldara, tilgang láns, stöðu láns, lánstíma og önnur kjör. Upplýsingunum er miðlað í þeim tilgangi að fjárfestar hafi sem besta mynd af útlánasafni og starfsemi lánveitenda og mun miðlunin einkum eiga sé stað í gögnum frá lánveitanda s.s. í ársreikningum, árshlutareikningum, fjárfestakynningum og afmælisritum.
5. Innsend erindi
Engin.
6. Önnur mál
Málefni kaffiteríu í Nýheimum. Ákveðið að funda með forsvarsmönnum Nýheima við fyrsta tækifæri.
Fundi slitið kl. 17.55


