Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 494
494. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi föstudaginn 26. febrúar 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar, 122. fundur, 24. febrúar 2010.
Hjalti fór yfir málið og sagði það sína skoðun að valið stæði á milli þess að ráða aftur skólastjóra eða að ráða tvo millistjórnendur. Lagði hann og til að fengið verði ráðgjafarfyrirtæki til að koma að ráðningu nýs skólastjóra. Björn Ingi taldi farsælla að hafa einn skólastjóra og ráða aðstoðarskólastjóra nú þegar tækifæri gæfist. Með einum skólastjóra væri og ótvírætt hver réði. Reynir sagði að eftir yfirferð yfir málið hafi hann komist að þeirri niðurstöðu að ef einn skólastjóri ætti að vera við skólann yrði að vera með tvo aðstoðarskólastjóra. Björn Ingi sagðist þrátt fyrir allt ekki útiloka það að einn skólastjóri yfir skólanum kallaði á tvo millistjórnendur.
Meirihluti bæjarráðs tekur undir bókun skólanefndar um að auglýst verði staða skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar. Málinu vísað til bæjarstjóra. Björn Ingi lagði áherslu á að yfir skólanum eigi að vera einn stjórnandi og tekur því ekki undir bókun meirihluta bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, 18. fundur 25. janúar 2010.
Hjalti upplýsti að unnið væri að gerð lokaútgáfu verndaráætlunar. Áætlunin verði send til bæjarráðs um miðjan mars.
· Stjórn SASS, 431. fundur, 12. febrúar 2010.
Björn Ingi spurði um 3. lið fundargerðarinnar og hvaða upphæðir sé um að ræða þegar kemur að samanburði heilbrigðisstofnana. Árni gerði grein fyrir umræðu um þetta mál sem fram fór á fundi stjórnar SASS.
2. Drög að stöðu bæjarsjóðs 31. desember 2009
Farið yfir drögin og þau rædd. Stefnt að því að reikningar sveitarfélagsins verði lagðir fram í byrjum maí. Björn Ingi gerði framkvæmdir að umtalsefni. Bæjarráð óskar eftir að fá yfirlit yfir framkvæmdir á árinu 2009 með samanburði við áætlanir.
3. Endurskoðaðar reglur um fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins
Stefán gerði grein fyrir helstu breytingum. Bæjarráð samþykkir að vísa reglum um fjárhagsaðstoð til bæjarstjórnar.
4. Álit um flutning og samgang búfjár yfir Hornafjarðarfljót
Farið yfir álit lögfræðings Regula. Samþykkt að gera breytingar á samþykkt um búfjárhald þar sem bann er sett við flutningi fjár yfir Hornafjarðarfljót. Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
5. Drög að útboði vegna jarðvinnu gervigrasvallar/varnargarður í Sílavík.
Haukur gerði grein fyrir útboðsgögnum og stöðu verksins og tillögum að framkvæmd. Bæjarráð samþykkir verktilhögun í samræmi við útboðsgögn en leggur jafnframt áherslu á að allt verkið verði unnið í samráði við Vegagerðina. Jafnframt var minnt á að e.t.v. er nauðsynlegt að hafa ölduvörn utan á garðinum.
6. Eyjar í Hornafirði – nýtingarmöguleikar
Tækni- og umhverfissviði falið að vinna yfirlit yfir þær eyjar í Firðinum sem eru í eigu sveitarfélagsins.
7. Drög að útboðslýsingu. Malbikunarframkvæmdir
Haukur gerði grein fyrir málinu. Björn Ingi sagði að umferðarþungi skipti máli við val á götum sem lagt er til að verði malbikaðar. Bæjarráð samþykkir að boðið verði út það magn malbiks sem fyrirliggjandi gögn gera ráð fyrir.
8. Drög að samningi um nýtingu jarðhita í Skaftafelli
Björn Ingi lagði áherslu á að fullir vextir verði að vera af fjárhagslegri þátttöku sveitarfélagsins. Bæjarráðsmenn sammála um að halda samstarfinu áfram og vísað til bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
9. Málefni Hvata
Umræðu um málið frestað til til næsta fundar.
10. Kaupsamningur milli Sandbakka ehf. og sveitarfélagsins
Hjalti gerði grein fyrir framvindu málsins frá því að það var síðast rætt í bæjarráði. Bæjarstjóra falið að rita undir fyrirliggjandi samning um kaup á Sandbakka ehf. sem á líkamsræktartæki sem eru í Sporthöllinni. Eftir ítarlegar umræður og skoðun á málinu í heild var einnig samþykkt að ganga til samninga um leigu á Álaugarvegi 7 í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Komu fram efasemdir frá Birni Inga um nauðsyn þess að leigja húsið. Einnig samþykkt að fyrirhugaðar framkvæmdir sveitarfélagsins verði endurskoðaðar í samræmi við þau útgjöld sem skapast við þessi kaup.
11. Samningur um tjaldstæði
Samþykkt að framlengja samning við núverandi leigjendur tjaldstæði til eins árs. Stefnt að útboði haustið 2010.
12. Reiðhöll – Staða og næstu skref
(Birgir Árnason mætti á fundinn undir þessum lið.)
Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu verksins. Hann og Birgir lögðu til að ráðnir yrðu smiðir við reiðhöllina en ekki farið í útboð vegna eðlis framkvæmdarinnar. Reynir sagði að sé þetta gert innan þess ramma sem reglur sveitarfélagsins setja um þessi mál geti hann samþykkt þetta. Björn Ingi sagði að hægt væri að bjóða vinnuhlutann út miðað við verð á unna vinnustund.
Bæjarráð samþykkir að þessi leið verði farin en ítrekar jafnframt að þetta rúmist innan innkaupareglna sveitarfélagsins. Jafnframt er lögð áhersla á að verkið verði innan fjárhagsáætlunar.
13. Umsókn um breytingu á lóðarmörkum Vogabrautar 4 og 6
Umsóknin samþykkt.
14. Ósk um styrk til verkefnisins „Góðverkadagurinn“
Hafnað.
15. Innsend erindi
· Skipulagsstofnun, bréf dags. 10. febrúar 2010, tillaga að breytingu á aðalskipulagi – Lambleiksstaðir.
Til kynningar.
· Mennta- og menningamálaráðuneyti,bréf dags. 11. febrúar 2010, menntaþing 5. mars 2010.
Vísað til starfsmanna.
· SASS, bréf dags.15. febrúar 2010, tilnefning í starfshóp vegna tilfærslu málefna fatlaðra.
Bæjarráð tilnefnir Hjalta Þór Vignisson til setu í stafshópi vegna tilfærslu málefna fatlaðra.
· SASS, bréf dags. 16 .febrúar2010, tillögur starfshóps um framtíðarfyrirkomulag upplýsingamiðstöðva.
Til kynningar.
· SASS og Sóknaráætlun 2020, – boð um þátttöku í þjóðfundi í Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, laugardaginn 6. mars. n.k..
Til kynningar.
16. Önnur mál
Engin fram borin.
Fundi slitið kl. 19:25


