Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 493
493. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 15. febrúar 2010 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 57. fundur, 10. febrúar 2010.
Hjalti fór yfir umræður í nefndinni um bann við flutningi fjár yfir Hornafjarðarfljót. Urðu um þetta mál nokkrar umræður. Samþykkt um búfjarhald tekið fyrir sem sérliður á næsta fundi bæjarráðs. Björn Ingi spurðist fyrir um 4. lið á fundi nefndarinnar, samtal formanns atvinnumálanefndar við atvinnurekanda. Hjalti svaraði um hvað væri verið að ræða.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 120. fundur, 10. febrúar 2010.
Haukur Ingi fór yfir umræður og afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar, sbr. 6. lið, umsókn um lóð undir bensínafgreiðslu. Greindi hann einnig frá samtölum sem hann hefur átt við aðila vegna þessa máls.
Bæjarráð tekur undir álit byggingar- og skipulagsnefndar að umrædd starfsemi henti ekki fyrir þessa lóð miðað við þá uppbyggingu í íþrótta- og æskulýðsmálum sem átt hefur sér stað á miðbæjarsvæði. Einnig er nú unnið að nýju deiliskipulagi fyrir miðbæjarsvæði og ekki liggur fyrir niðurstaða í frekari nýtingu á svæðinu.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 202. fundur, 9. febrúar 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 17. fundur, 10. febrúar 2010.
Hjalti gerði grein fyrir hugmyndum um breytingar á starfsemi Menningarmiðstöðvar og Jöklasýningar yfir sumartímann og viðræðum við starfsmenn þar að lútandi.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 94. fundur, 9. febrúar 2010.
Haukur fór yfir endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi, mörk svæðisins o.fl.
Fundargerð samþykkt.
2. Leigusamningur um tjaldsvæði – ósk um endurnýjun samnings
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna við umsækjendur í samræmi við umræður í bæjarráði.
3. Viðhald Hafnarbrautar 30 – kostnaðaráætlun
Hjalti fór yfir málið og ástæðu þess að það er hér til umræðu. Bæjarstjóra falið að ræða við Urtustein.
4. Beiðni um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis vegna góuhófs í Hofgarði
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu tækifærisleyfis vegna góuhófs í Hofgarði.
5. Sameining sveitarfélaga
Hjalti fór yfir málið og ástæðu þess að það er hér til umræðu. Voru bæjarráðsmenn sammála um að þessi mál þurfi að ræða vel með þátttöku íbúanna.
6. Innsend erindi
· UMFÍ, bréf dags. 28. janúar 2010, Unglingalandsmót 2012.
Auglýst er eftir ungmennafélögum sem áhuga hafa á að taka að sér Unglingalandsmót UMFÍ 2012. Bæjarráð hvetur USÚ til að sækja um að halda mótið 2012.
· Þjóðskrá, bréf dags. 5. febrúar 2010, þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars n.k., dagsetning lögheimilisskráningar.
Vísað til starfsmanna.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 6. febrúar 2010, vinnufundur um tilfærslu þjónustu við fatlaða til sveitarfélaga.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga/Velferðarvakt ríkisstjórnarinnar, tölvubréf dags. 8. febrúar 2010, auglýsing um styrki úr Mótvægissjóði.
Vísað til félagsmálastjóra.
· Verkís, tölvubréf dags.10. febrúar 2010, styrkveiting úr Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar.
Til kynningar.
· Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum/Iðnaðarráðuneytið, ráðstöfun fjárlagaliðar 11-373 niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar o. fl. . hækkun raforkuverðs og önnur hagsmunamál íbúa sveitarfélaga á köldum svæðum.
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Hjalti greindi frá breytingum á kaffiteríu í Nýheimum. Bæjarráð gerir ekki efnislegar athugasemdir við málið.
· Samkvæmt bréfi, dags. 10. febrúar 2010, segir Þorvaldur Viktorsson upp skólastjórastöðu sinni við Grunnskóla Hornafjarðar. Bæjarstjóri gerði það að tillögu sinni að starfið verði auglýst laust til umsóknar sem fyrst.
Fundi slitið kl. 18:17


