Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 491
491. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 1. febrúar 2010 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Halldóra B. Jónsdóttir. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs..
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar, bréf dags. 119. fundur, 26. janúar 2010.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar um að Vegagerðinni verði heimilað grjótnám við Breiðá og framkvæmdaleyfi því veitt.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 121. fundur, 25. janúar 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 121. fundur, 27. janúar 2010.
Halldóra lýsti yfir vonbrigðum með afgreiðslu meirihluta skólanefndar sem snýr að sumarlokun leikskóla. Tók hún jafnframt undir bókun Sigríðar Kristinsdóttur sem mælti með skörun á sumarlokun leikskólanna. Halldóra óskaði upplýsinga um vaktaplön í sundlaug og hugsanlegar breytingar á þeim. Einnig spurði hún um athugasemd Torfa við auglýsingu um starf í sundlaug. Stefán svaraði hver sú athugasemd var. Hjalti greindi frá þeirri vinnu sem er í gangi hvað varðar vaktaplön í sundlaug og fleiri vinnustöðum í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
· Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, 25. janúar 2010.
Hjalti greindi frá vinnu við drög að verndaráætlun þjóðgarðs og að drögin hafi verið send ýmsum hagsmunaaðilum til kynningar. Einnig rætt um framlög ríkisins til þjóðgarðsins.
2. Þriggja ára áætlun
Farið yfir helstu lykiltölur þriggja ára áætlunar sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að þriggja ára áætlun verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
3. Lóðarumsókn
· Skeljungur, umsókn um lóð nr. 38 við Hafnarbraut, dags. 25. janúar 2010.
Farið yfir umsóknina. Reynir sagðist vilja sjá meira en bara bensíndælur á þessari lóð. Fyrir þurfi að liggja ákveðin áform um byggingu á lóðinni. Halldóra sagðist frekar mótfallin því að setja upp bensínstöð í hjarta bæjarins. Þá spurði hún um nýtingarhlutfall á lóðinni. Svaraði Haukur Ingi hvernig því máli væri háttað. Bæjarráð samþykkir að vísa lóðarumsókninni til umfjöllunar í byggingar- og skipulagsnefnd. Starfsmönnum falið að ræða við Skeljung vegna umsóknarinnar.
Halldóra lagði til að vísað verði til byggingar- og skipulagsnefndar að fjalla um hugsanlegar þungatakmarkanir á þeim svæðum Hafnarbrautarinnar sem hafa verið hellulögð. Var það samþykkt.
4. Grundun viðbyggingar við Lönguhóla
(Björgvin Sigurjónsson og Björn Imsland sátu fundinn undir þessum lið.)
Farið yfir nokkrar mismunandi mögulegar leiðir við grundun hússins, grafa niður á fast, fergja eða byggja á staurum.
Halldóra óskar eftir kostnaðaráætlun við heildarframkvæmd við Lönguhóla. Einnig sagðist hún hafa viljað að farin hefði verið önnur leið en að byggja við Lönguhóla.
Tekið var til afgreiðslu tilboð frá Guðna Karlssyni og Olgeiri Jóhannessyni í staurarekstur undir viðbyggingu. Samþykkt að ganga til samninga við tilbjóðendur.
5. Málefni fatlaðra
Farið yfir drög að tillögu Sveitarfélagsins Hornafjarðar um að það verði sérstakt þjónustusvæði þegar málefni fatlaðra verða flutt frá ríki til sveitarfélaga. Að lokinni yfirferð samþykkti bæjarráð að vísa til starfsmanna að breyta drögunum í samræmi við þær umræður sem fram fóru á fundinum.
6. Jöklasýning og Vatnajökulsþjóðgarður – gerð grein fyrir málinu á fundinum
Hjalti fór yfir málefni Jöklasýningar, upplýsingamiðstöðvar, gestastofu og hugmyndir um samstarf við þjóðgarðinn um þessa þætti. Sköpuðust um þessar hugmyndir töluverðar umræður.
7. Jarðvegsframkvæmdir – aðrar veitustofnanir
Haukur Ingi greindi frá samtölum við starfsmenn RARIK og Símans vegna fyrirhugaðra lagna á Leirusvæði. Einnig rætt hvaða lagnir séu nauðsynlegar vegna núverandi framkvæmda á svæðinu.
8. Innsend erindi
· Náttúrufræðistofnun Íslands, bréf dags. 20. janúar 2010, endurskoðun friðlýsingarskilmála fyrir fólkvang í Óslandi – umsögn.
Halldóra óskaði eftir að farið yrði yfir forsögu málsins og á hvaða forsendum það sé til umræðu. Einnig ræddar athugasemdir Náttúrufræðistofnunar. Málinu vísað til umverfisnefndar og óskað eftir að nefndin fari yfir athugasemdir Náttúrufræðistofnunar.
· Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti/Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, bréf dags. 21. janúar 2010, uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði vegna 2009.
Til kynningar.
· Landssamband hestamannafélaga, bréf dags. 21. janúar 2010, hálendisvegir og slóðir.
Vísað til starfshóp um endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
· Matvælastofnun, tölvubréf dags. 22. janúar 2010, fræðslufundur vegna nýrrar matvælalöggjafar.
Til kynningar.
9. Önnur mál
· Halldóra óskar eftir því að aðal- og varamenn í bæjarráði fái sömu gögn, þau ekki aðeins send á aðalmenn.
· Halldóra spurðist fyrir um hvenær ákveðið var að fundarboð bæjarráðs færu í tölvupósti. Hjalti gerði grein fyrir hvernig að því var staðið og jafnframt að fundarboð fari einnig á pappír til þeirra sem þess óska.
· Halldóra óskaði eftir að notkun farsíma og netnotkun á bæjarstjórnar- og bæjarráðsfundum verði tekin til umfjöllunar við endurskoðun á fundarsköpum sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 18:10


