Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 490
490. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi laugardaginn 23. janúar 2010 kl. 9:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson varaformaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 55. fundur 12. janúar 2010 og 56.fundur 14. janúar 2010.
Hjalti sagði að þróun atvinnuleysis væri svipuð og á sl. ári. Bæjarstjóra falið að taka saman yfirlit á mögulegum átaksverkefnum á vegum sveitarfélagsins. Farið yfir umsóknir og úthlutanir í atvinnu- og rannsóknasjóð sveitarfélagsins. Nokkur umræða var um hvernig úthlutanir fara fram og rætt hvort ekki þurfi að skerpa úthlutunarreglur sjóðsins.
Fundargerðir samþykktar.
· Byggingar- og skipulagsnefndar Hornafjarðar, 118. fundur 14. janúar 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 16. fundur 2010.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu,m 32. fundur 16. desember 2009.
Fundargerð samþykkt.
2. Skiptitjald í íþróttahúsi
Haukur Ingi fór yfir málið. Greindi frá því að efni í dúk sé þegar til staðar. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við þá einstaklinga sem buðu í skiptitjald, kr. 2.115.000. Samþykkt að taka af óráðstöfuðu.
3. Drög að endurskoðun samninga vegna jarðhitaleitar
Haukur Ingi gerði grein fyrir breytingum á milli funda. Bæjarráð sammála um að unnið verði eftir fyrirliggjandi drögum að samningi. Starfsmönnum falið að kynna samninga fyrir landeigendum og undirbúa næstu skref.
4. Fasteignagjöld Íbúðalánasjóðs vegna íbúða á Hornafirði
Vegna fyrirspurnar Íbúðalánasjóðs bendir bæjarráð á gildandi reglur um staðgreiðsluafslátt á fasteignagjöldum. Hvað varðar sorphirðugjöld af íbúðum sem ekki eru nýttar verður tekin afstaða í hverju tilfelli fyrir sig óháð hver er eigandi íbúðarinnar í lok árs.
5. Beiðni um framkvæmdaleyfi til efnistöku við Breiðá í Öræfum
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
6. Fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir á Höfn 2010
Haukur Ingi fór yfir málið og ræddi mögulega nýtingu á fergingarefni á gervigrasvelli á Leirusvæði – Sílavík. Urðu töluverðar umræður um málið. Hauki Inga falið að ræða við viðkomandi veitustofnanir vegna lagna í götur sveitarfélagsins.
7. Innsend erindi
· Vinnumálastofnun, desember 2009, erindi Vinnumarkaðsráðs Austurlands varðandi stuðning við atvinnulífið.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Sigurgeir Jónsson/Hvítingur ehf. , afrit bréfs til samgönguráðuneyti dags. 29. desember 2009, málefni Uppsala I og II.
Vísað til byggingarfulltrúa.
· Brynjúlfur Brynjólfsson vegna Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands, tölvubréf dags. 18. janúar 2010, höfnun fjárlaganefndar um Alþingis um styrk.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga/Menntmálaráðuneytið, tölvubréf dags. 18. janúar 2010, Dagur leikskólans 6. febrúar n.k..
Er á dagskrá skólanefndar 27. janúar nk.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 20. janúar 2010, athygli vaki á fréttum um styrki sveitarfélaga til hjálparstarfs á Haítí.
Samþykkt að styrkja hjálparstarf á Haítí um 210.000 kr. og upphæðin verði afhent Rauða kross Íslands. Tekið af óráðstöfuðu.
· Ríkiskaup, tölvubréf 20. janúar 2010, rammasamningur Ríkiskaupa 2010.
Upplýst að staðfest hafi verið aðild sveitarfélagsins að samningunum..
8. Önnur mál
· Rætt um viðbyggingu við Lönguhóla, grundun byggingar, áætlaðan verktíma o.fl.
· Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með lokun á svæðisútvarpsstöðvum Ríkisútvarpsins.
· Hjalti gerði grein fyrir viðræðum um möguleg kaup Sveitarfélagsins á líkamsræktartækjum. Bæjarstjóra falið að halda áfram að vinna að málinu.
Fundi slitið kl. 11: 40


