Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 489
489. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 19. janúar 2010 kl. 9:00.
Mættir voru: Reynir Arnarson varaformaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 93. fundur 13. janúar 2010.
Guðrún lagði til að settar verði reglur um uppsetningu mastra og samsvarandi loftneta og vitnaði til fyrri samþykkta bæjarráðs um það mál. Var undir þetta tekið.
Fundargerð samþykkt.
2. Styrkir til félagastarfsemi og verkefna – gögn send sér.
Björgunarsveitin Kári 200.000,-
Félagsstarf eldri borgara í Öræfum 100.000,-
Skógræktarf. Austur- Skaftafellssýslu 100.000,-
Fjallafélag 100.000,-
Björgunarbátasjóður Hornafjarðar 100.000,-
Björgunarfélag Hornafjarðar 200.000,-
Halldór Halldórsson 50.000,- Styrkur til þýðingar á matreiðslubók.
Framhaldsskólinn í A-Skaft 50.000,-
Félag eldri Hornfirðinga 500.000,-
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands 250.000,-
Landgræðsla ríkisins 50.000,-
Bæjarráð samþykkir framangreinda styrki til félaga og einstaklinga.
Haukur Ingi vék af fundi undir þessum lið.
3. Breytingar á jarðhæð Ráðhússins, Svavarssafn, fundarsalur bæjarstjórnar og skrifstofurými
(Björg Erlingsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið.)
Farið yfir tillöguteikningar Glámu – Kím að neðstu hæð ráðhúss. Þá fór Haukur Ingi yfir nauðsynlegt viðhald á húsinu, fyrstu aðgerðir, sem farið verður í á þessu ári.
4. Skiptitjald í íþróttahúsi
Rætt fyrra tilboð í verkið og greinargerðir frá Umf. Sindra og Grunnskóla Hornafjarðar. Hauki Inga falið að vinna áfram að málinu. Tekið fyrir aftur á næsta fundi bæjarráðs.
5. Breytingar á aðalskipulagi
Haukur Ingi fór yfir málið og rætt var bréf Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats áætlana.
6. Ósk um umsagnir á útgáfu tækifærisleyfa
· Þorrablótsnefnd Hornafjarðar, þorrablót í íþróttahúsi Hafnar 23. janúar 2010.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
· Þorrablótsnefnd Nesja- og Lónmanna, þorrablót í Mánagarði 30. janúar 2010.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
7. Samningur milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Matís um smáframleiðslu matvæla á Hornafirði – framhaldsumræður frá 487. fundi
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi.
8. Drög að endurskoðun samninga vegna jarðhitaleitar
Farið yfir fyrirliggjandi drög. Farið fram á að skýrt verði í samningnum að nýtingarréttur sveitarfélagsins á jarðhita verðri tryggður ef til eigendaskipta kæmi. Einnig að skýrt verði kveðið á um endurgreiðslur til sveitarfélagsins ef viðkomandi landeigandi hefur umfangsmikla starfsemi á jörðinni í kjölfar jarðhitaleitar.
9. Innsend erindi
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 5. janúar 2010, vegna refaveiða á uppgjörstímabilinu 1. september til 31. ágúst 2010.
Til kynningar.
· Fasteignaskrá Íslands, úrskurður dags. 7. janúar 2009, vegna skráningar fasteigna á Uppsalajörðunum.
Vísað til byggingarfulltrúa.
· Umboðsmaður barna, tölvubréf dags. 12. janúar 2010, niðurskurður hjá sveitarfélögum á þjónustu sem varðar börn.
Til kynningar.
· Veðurstofa Íslands, tölvubréf dags. 11. janúar 2010, landupplýsingar, Náttúruvefsjá.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 14. janúar 2010, ráðstefnan Landnotkun á Íslandi 2010 á Hótel Selfossi, 28. janúar 2010.
Til kynningar.
· Ingi Stefán Guðmundsson, bréf dags. 14. janúar 2010, framtíð líkamsræktar í sveitarfélaginu.
Til kynningar.
10. Önnur mál
· Málefni líkamsræktar á Hornafirði. Bæjaráð fór yfir málið og vísaði til starfsmanna áframhaldandi vinnu að því.
· Rætt um tilboð í Reiðskemmu. Samþykkt að ganga til samninga við óstofnað samvinnufélag Vélsmiðjunnar Foss og Vélsmiðju Hornafjarðar við byggingu reiðskemmu. Samningsupphæð er kr. 10.992.203.
· Rætt um stöðu rekstrar kaffiteríu í Nýheimum eftir útboð á rekstrinum.
Fundi slitið kl. 11:45


