Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 488
488. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 11. janúar 2010 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson, formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs og Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta Halldóra Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Formaður bauð fundarmenn velkomna til fyrsta fundar bæjarráðs á nýju ári.
1. Fundargerðir
· Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs, 5. janúar 2010.
Hjalti greindi frá vinnu við verndaráætlun þjóðgarðsins.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 770. fundur 11. desember 2009.
Björn Ingi spurðist fyrir um varasjóð húsnæðismála og hvort eitthvert fjármagn væri á leið í sjóðinn.
Til kynningar.
2. Álit Samkeppniseftirlitsins nr. 3/2009 – Skipulag, lóðaúthlutanir og samkeppni.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
3. Álit Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2009 – Opinber útboð, samkeppni og samkeppnishindranir
Farið yfir álit Samkeppniseftirlits um opinber útboð m.m. og þau rædd. Vísað til starfsmanna að hafa þetta álit að leiðarljósi.
4. Málefni Háskólasetursins á Hornafirði
Hjalti greindi frá viðræðum við forstöðumann um málefni setursins og fjárhagslegri stöðu þess og þeim breytingum sem orðið hafa, svo sem vegna þess að fjármagn sem fylgdi mótvægisaðgerðum er búið. Ljóst sé að fjármunir til setursins fari minnkandi.
5. Reglur um niðurfellingu á fasteignaskatti hjá sveitarfélaginu
Samþykkt að reglurnar verði uppfærðar í samræmi við breytingar á launavísitölu.
6. Aðgerðir til hagræðingar og sparnaðar í vetrarþjónustu/verklagsreglur um snjómokstur á Hornafirði
Nýjar reglur Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu á þjóðvegum ræddar. Bæjarráð leggur þunga áherslu á 7 daga þjónustu m.a. með tilliti til þeirra miklu flutninga sem eru til og frá svæðinu. Einnig rædd framkvæmd vetrarþjónustu á „helmingamokstursvegum“ í sveitarfélaginu.
7. Tillögur starfshóps um framtíðarfyrirkomulag upplýsingamiðstöðva
Sigurlaug Gissurardóttir, formaður Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu, Unnur Halldórsdóttir formaður Ferðamálasamtaka Íslands og Ólafur Hilmarsson starfsmaður Markaðsstofu Suðurlands mættu á fundinn kl: 17:35
Hjalti fór yfir málið og sagði frá þeim verkefnum sem sveitarfélagið hefur styrkt varðandi ferðaþjónustu .
Ólafur kynnti starf Markaðsstofu Suðurlands
Unnur kynnti starf Ferðamálasamtaka Íslands
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skrifa umsókn á grundvelli umræðna á fundinum.
8. Niðurstöður könnunar á hagræðingaraðgerðum sveitarfélaga í skóla- og fræðslumálum
Skólamálanefnd Sambands ísl. sveitarf. kannaði í tvígang á sl. ári hagræðingaraðgerðir sveitarfélaga í skóla- og fræðslumálum. Svör bárust frá sveitarfélögum sem ná til 97% íbúa landsins. Niðurstöður sýna að sveitarfélög eru almennt að leita að möguleikum til að hagræða í rekstri viðkomandi stofnana. Skýrslunni vísað til umfjöllunar í skólanefnd.
9. Beiðni um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis vegna þorrablóts að Hrollaugsstöðum
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu framangreinds tækifærisleyfis.
10. Innsend erindi
· Askar Capital hf., bréf dags.16. desember 2009, kynning á þjónustu.
Til kynningar.
· Félags- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 4. janúar 2010, húsaleigubætur - uppreiknuð eignamörk.
Til kynningar.
· Félags- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 4. janúar 2010, uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna félagslegra leiguíbúða.
Til kynningar.
· Umferðarstofa, bréf dags. 6. janúar 2009, gerð umferðaröryggisáætlun
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
11. Önnur mál
· Greint frá erindi íbúa á Mýrum sem fer fram á að sérstakur akstur verði á þriðjudögum fyrir yngri börnin þannig að þau þurfi ekki að bíða eftir þeim eldri. Bæjarráð felur starfsmönnum að kanna þá kosti sem eru í stöðunni og leita samstarfs við foreldra grunnskólabarna á Mýrum og í Suðursveit með það að markmiðið að koma til móts við sjónarmið foreldra. Einnig rætt um hvort sveitarfélagið eigi að setja sér viðmiðunartíma í skólaakstri.
· Opnun tilboða í stálvinnu vegna reiðskemmu
Hlutfall af kostnaðaráætlun
Vélsmiðjan Foss 10.992.203.- 138,37%
Vélsmiðja Hornafjarðar 11.200.000.- 140,99%
Kostnaðaráætlun 7.944.000.-
Bæjarráð samþykkir að áður en ákvörðun verður tekin verði leitað til Ríkiskaupa til að fara
yfir tilboðin.
· Jarðhiti í Skaftafelli. Bæjarstjóri sagði frá stöðu málsins.
Fundi slitið kl. 18.35


