Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 487
487. Fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 22. desember 2009 kl. 18:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson, formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs og Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 54. fundur, 8. desember 2009.
Farið yfir tölur um atvinnuleysi í sveitarfélaginu árinu 2009 með tilliti til aldurs, menntunar
og starfa. Fram kom að lítið atvinnuleysi hafi verið í sveitarfélaginu á árinu.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 117. fundur 17. desember 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 199. fundur, 10. nóvember og 200. fundur 8. desember 2009.
Fundargerðir samþykktar
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 120.fundur, 18. desember 2009.
Haukur greindi frá tillögum um endurbætur á Hafnarvoginni. Einnig greint frá niðurstöðu um skiptingu björgunarlauna og forsendum skiptingar vegna strands flutningaskipsins Axels. Þá var rætt um símastreng sem liggur með rafstreng á Suðurfjörum í Hvanney.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 107. fundur, 26. nóvember 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 92. fundur 10. desember 2009.
Vakin athygli á umræðu á utanvegaakstri og ræddi bæjarráð í framhaldi um aukinn fjölda ferðamanna, utanvegaakstri mótócrosshjóla og mikilvægi þess að sporna við utanvegaakstri. Rætt um að setja skilti til að vara við utanvegaakstri.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Samband ísl. sveitarfélaga, 769. fundur 27. nóvember og 770. fundur
11. desember 2009.
Til kynningar.
2. Endurskoðun auglýsingar fyrir fólkvang í Óslandi
Haukur Ingi kynnti auglýsinguna. Samþykkt.
3. Samningur um söfnun á raf- og rafeindatækjaúrgangi
Haukur Ingi kynnti samninginn. Spurt um kostnað sveitarfélagsins og skyldur þess í samningnum Haukur Ingi upplýsti að sveitarfélagið leggi til aðstöðu en fái greitt fyrir hana skv. gjaldskrá sem umhverfisráðuneytið leggur út. Enginn beinn kostnaður á að falla á sveitarfélagið vegna samningsins. Samningurinn samþykktur.
4. Skiptitjald í íþróttahúsi
Undir þessum lið var tekið fyrir tilboð frá Gunnari Pálma Péturssyni í skiptitjald. Efnið í tjaldinu, sbr. tilboð.
Málinu vísað til starfsmanna til frekari úrvinnslu.
5. Lambleiksstaðir á Mýrum – skipulag
Tekið undir bókun byggingar- og skipulagsnefndar um að fá álit frá ráðgjafa sveitarfélagsins í skipulagsmálum um fyrirhugaða landnotkun og staðsetningu.
6. Flugmál á Hornafirði
Hjalti upplýsti um samtal við forsvarsmenn Ernis um samskipti þeirra við Vegagerðina. Einnig upplýsti um áform Vegagerðarinnar að fækka um eina ferð til Hornafjarðar vegna kröfu um niðurskurð.
Um leið og bæjarráð hrósar Flugfélaginu Erni fyrir góða flugþjónustu þá minnir bæjarráð Vegagerðina á að reglulegar almenningsflugsamgöngur séu grundvallaratriði fyrir búsetu á Hornafirði.
7. Íbúaþing
Árni greindi frá umræðum í stýrihóp um aðalskipulag um samráðsfund með íbúum. Bæjarráð samþykkir að ganga til viðræðna við Alta en skoða betur tímasetningar fyrir fundinn.
8. Sóknaráætlun 20/20
Gerð grein fyrir viðræðum við nefndarmenn í nefnd um sóknaráætlanir, starfsmenn í iðnaðarráðuneytinu og fleiri. Bæjarráð er sammála um að fara í fundarferð í upphafi næsta árs til að koma sjónarmiðum á framfæri.
9. Verkfallslistar
Lögð fram tillaga um verkfallslista. Samþykkt.
10. Gervigras
Haukur Ingi fór yfir fyrirliggjandi tilboð. Bæjarráð samþykkir að ganga til viðræðna við Polytan um kaup á ligaturf gervigrasi skv. tilboði. Samþykkt að ganga frá kaupum á búnaði til lýsingar og gólfhitarörum.
11. Staða bæjarsjóðs 30. nóvember 2009
Farið yfir stöðu bæjarsjóðs sem er í samræmi við áætlanir. Útlit er fyrir jákvæða rekstrarniðurstöðu á árinu 2009.
12. Málefni fatlaðra
Maren Sveinbjörnsdóttir kom inn á fundinn undir þessum lið. Hún gerði grein fyrir sjónarmiðum sínum hvað varðar rekstur og flutning á málaflokknum frá ríki til sveitarfélaga. (Hjalti vék af fundi á meðan rætt var um þátt sambýla í fyrirhuguðum verkefnaflutningi.) Bæjarráð er sammála félagsmálaráði um eftirfarandi áherslur sem bókaðar voru á fundi ráðsins 8. desember 2009:
„Sveitarfélagið Hornafjörður hefur með þjónustusamningi við félagsmálaráðuneytið sinnt þjónustu við fatlaða frá ársbyrjun 1997. Á þeim tíma hefur starfsfólk sveitarfélagsins byggt mikla þekkingu á málaflokknum og fengið orð fyrir að veita fyrirmyndarþjónustu ásamt því að bregðast ávallt skjótt við þegar nýrra úrræða hefur verið þörf. Í ljósi góðrar reynslu sveitarfélagsins af rekstri málefna fatlaðra leggur félagsmálaráð Hornafjarðar áherslur mikilvægi þess að Sveitarfélagið Hornafjörður verði skilgreint sem sérstakt þjónustusvæði þegar málaflokkurinn verður fluttur frá ríki til sveitarfélagsins í ársbyrjun 2011 enda hafi það sýnt getu og þekkingu til að sinna þessum málaflokki.“
Enn fremur leggur bæjarráð áherslu á að nægjanlegir fjármunir flytjist með málaflokknum til að sveitarfélagið getið staðið undir kröfum um þjónustu og aðbúnað allra þeirra sem falla undir málaflokkinn í sveitarfélaginu.
13. Innsend erindi
· Fornleifavernd ríkisins, bréf dags. 24. nóvember 2009, ný veglína um Skeiðarársand.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Sigurgeir Jónsson/Hvítingur ehf., bréf til bæjarráðs vegna Uppsala I og II ásamt afriti bréfs til Fasteignaskrár ríkisins um endurskráningu á túni á Uppsölum II.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga,bréf dags. 30. nóvember 2009, tilfærsla á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga, samþykkt stjórnarfundar 27. nóvember 2009.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga,bréf dags. 1. desember 2009, félagsþjónustunefnd Sambands ísl. sveitarfélaga bréf og erindisbréf fyrir nefndarmenn.
Til kynningar.
· Undirskriftalisti frá börnum á Mýrum vegna leikvallar við Holt.
Vísað til starfsmanna á tækni- og umhverfissviði um að koma með tillögur að úrbótum á leiksvæði í kringum Holt.
· Menntamálaráðuneytið, tölvubréf dags. 4. desember 2009, úttektir á grunnskólum.
Vísað til skólanefndar.
· Vegagerðin, fréttatilkynning dags. 4. desember, styrkir til almenningssamgangna.
Til kynningar.
· Matvælastofnun, bréf dags.7. desember 2009,breyting á lit á eyrnamerkjum.
Til kynningar.
· Rannsóknarnefnd umferðaslysa, bréf dags. 2. desember 2009, ábending vegna alvarlegs umferðaslyss á Hvanneyrarbraut, Siglufirði, þann 17.nóvember 2009.
Vísað til byggingarfulltrúa.
· Varasjóður húsnæðismála, bréf dags. 9. desember 2009, Söluframlög Varasjóðs húsnæðismála.
Vísað til fjármálastjóra.
· Félags- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 215. desember 2009, grunnfjárhæðir fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga.
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun,bréf dags. 11. desember 2009, lagning vegar upp úr botni Hoffellsdals.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
14. Önnur mál
· Sandfok á Leirusvæði. Greint frá athugasemdum íbúa á Leirusvæði. Bæjarráð felur starfsmönnum að leita leiða til að hefta fok yfir veturinn. Í vor verði við fyrstu hentugleika sáð í svæðið.
· Reynir óskaði eftir að starfsmenn færu yfir kostnað og ræddu við ungmennasambandið um að halda unglingalandsmót næsta sumar.
· Lögð fram samningsdrög á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Matís um smáframleiðslu matvæla á Hornafirði. Fundarmenn ánægðir með drögin og ákveðið að taka málið fyrir á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 21.00.


