Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 486
486. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 30. nóvember 2009 kl.16:10.
Mætt voru: Árni Þorvaldsson, formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Fundargerð skólanefndar, 120. fundur, 25. nóvember 2009.
Rætt um viðbyggingu við Lönguhóla. Bæjarráð sammála um að á þessu stigi verði lögð áhersla á viðbyggingu og svara þannig nýjum lögum um leikskóla. Undir þessum lið var tekin fyrir gjaldskrá sundlaugar. Björn Ingi velti því upp hvort til greina komi að hjón geti nýtt saman árskort, svo sem þegar verið er að fara með börn í sund, þó ekki samtímis báðir aðilar. Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar að gjaldskrá fyrir árið 2010.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 til annarrar umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem samþykktar hafa verið frá fyrri umræðu.
3. Þriggja ára áætlun
Bæjarráð samþykkir að vísa þriggja ára áætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4. Sorpmál í sveitum
Hjalti gerði að umtalsefni ábendingar og athugasemdir sem komið hafa frá íbúum dreifbýlisins um sorpmál í sveitum. Haukur Ingi fór yfir hugmyndir að breytingum í þessum málaflokki.
Bæjarráð samþykkir að starfsmenn haldi áfram vinnu við útfærslu á sorpmálum í dreifbýli.
5. Umsögn heilbrigðisfulltrúa Austurlands um gjaldrá fyrir sorphirðu/eyðingu 2010
Farið yfir athugasemdir Heilbrigðiseftirlits Austurlands, sbr. bréf þess, dags. 25. nóvember 2009.
6. Innsend erindi
· Heilbrigðisráðuneytið, bréf dags. 16. nóvember 2009, þjónusta á flugvöllum við sjúkraflug.
Vísað til heilbrigðis- og öldrunarráðs.
· Samtök atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði, bréf dags. 18. nóvember 2009, þjónusta rafverktaka.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 24. nóvember 2009, boð á norræna ráðstefnu: Fjármálakreppan, húsnæðismarkaðurinn og heimilin.
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Hjalti gerði grein fyrir undirritun samnings vegna útleigu á Hrollaugsstöðum og samtali við leigutaka um nauðsynlegar lagfæringar og endurbætur á húsinu.
· Hjalti gerði grein fyrir samræðum við forsvarsmenn Hestamannafélagsins Hornfirðings og kynnti drög að sameiginlegri yfirlýsingu félagsins og sveitarfélagsins. Í yfirlýsingunni kemur fram með hvaða hætti áframhaldandi bygging reiðhallar verður útfærð. Bæjarstjóra falið að skrifa undir yfirlýsinguna.
· Haukur Ingi kynnti hugmyndir um stofnun og uppbyggingu hitaveitu í Öræfum með tengingu við borholu í Skaftafelli. Undir þessum lið var einnig rætt (í fundarsíma) við framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs um framkvæmd við hugsanlega hitaveitu. Bæjarráð samþykkir að fé sem fara átti í borholu í Svínafelli verði nýtt í borholu í Skaftafelli að því gefnu að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs heimili að nýtanlegt vatn úr borholunni verði einnig nýtt fyrir bæi austan við þjóðgarðinn.
Fundi slitið kl. 18:45


