Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 485
485. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 23. nóvember 2009 kl.16:10.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson, formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn 119. fundur, 19. nóvember 2009.
Björn Ingi spurði um ályktun hafnarstjórnar um að hafa vigt og vigtarhús á sama stað. Reynir upplýsti um afgreiðslu hafnarstjórnar og ástæður þess að hafa vigtina og húsið á núverandi stað. Sagði Reynir að ekki þyrfti að endurnýja vigtarpall á allra næstu árum.
Björn Ingi spurði um björgunarlaun vegna v/s Axels. Reynir og Hjalti upplýstu um umræður í hafnarstjórn og að óskað hafi verið eftir lögfræðiáliti.
Fundargerð samþykkt.
2. Rekstrarstaða 31. október 2009
Gerð grein fyrir rekstrarstöðu 31. október sem er í samræmi við áætlanir.
3. Fjárhagsáætlun
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2010 í bæjarráði. Samþykkt að afgreiða hana frá í bæjarráði í næstu viku.
Mikil umræða skapaðist um uppbyggingu á félagssvæði Hestamannafélagsins Hornfirðings, girðingar umhverfis félagssvæðið og hvernig best sé að standa að framkvæmdum.
Reynir lagði fram tilboð frá Gunnari Pálmi Péturssyni, dags. 17. nóvember 2009 vegna skiptitjalds í íþróttahúsinu.
4. Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Farið yfir stöðu málsins. Bent á eftirfarandi texta í viljayfirlýsingu sem ritað var undir á milli ríkisins og Sambands sveitarfélaga:
„Þjónustusvæði verða mynduð um rekstur þjónustu og er miðað við að þau hafi að lágmarki um átta þúsund íbúa. Ráðherra getur þó í undantekningartilfellum veitt undanþágu frá þessu viðmiði á grundvelli landfræðilegra aðstæðna, enda hafi viðkomandi sveitarfélög sýnt fram á getu til að veita alhliða þjónustu.“
Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að Sveitarfélagið Hornafjörður verði skilgreint sem sérstakt þjónustusvæði. Ekki er séð hvaða ávinning þjónustuþegar á Hornafirði hafi með því að vera hluti af stærra þjónustusvæði. Auk þess hefur Sveitarfélagið Hornafjörður sýnt fram á að veita megi góða þjónustu á hagkvæman og skilvirkan hátt þrátt fyrir að þjónustusvæði telji færri íbúa en viðmið í viljayfirlýsingu ríkis og sveitarfélaga gera ráð fyrir.
Bæjarráð vísar málinu til félagsmálaráðs til frekari umfjöllunar.
5. Jarðhitaleit
Haukur Ingi gerði grein fyrir viðræðum við framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs, landeigendur í Öræfum og ráðgjafa um áframhaldandi jarðhitaleit í Öræfum og hugmyndum um virkjun jarðhitans í Skaftafelli. Starfsmönnum falið að vinna áfram að undirbúningi virkjunar í Skaftafelli sem nýtist fyrir nærsvæðið.
Lögð fram tilboð um dýpkun á holum og borun á hitastigulsholum. Samþykkt að taka tilboði Jarðborana í hitastigulsholur og dýpkun í H-14 frá Ræktunarsambandinu.
6. Útboðsgögn vegna gervigrasvallar
Til kynningar.
7. Drög að reglum um úthlutun styrkja menningar- og tómstundanefndar
Mikil umræða skapaðist um úthlutun styrkja frá sveitarfélaginu. Rætt um að tengja styrki betur við rekstur og viðburði á vegum félagasamtaka en ekki eingöngu hefðbundið starf þeirra. Bæjarráð vísar til menningar- og tómstundarnefndar að undirbúa úthlutun næsta árs með góðum fyrirvara með það fyrir augum að kalla eftir ítarlegri áætlunum um starfsemi og sérstök verkefni á vegum félagasamtaka.
Framlög drög samþykkt.
8. Innsend erindi
· Bjarni Sævar Geirsson, afrit svarbréfa til Fasteignaskrár ríkisins, dags. 10. október og 10. nóvember 2009, skráning mannvirkja á jörðinni Uppsalir.
Til kynningar.
· Ungmennafélag Íslands, bréf dags. 10. nóvember 2009, áskoranir til sveitarfélaga um stuðning við íþrótta- og æskulýðsstarf og yfirlýsing vegna uppbygginga íþróttamannvirkja á landinu.
Til kynningar.
· Mennta- og menningarmálaráðuneytið, bréf dags. 13. nóvember 2009, kynning á íslenskri málstefnu.
Til kynningar.
· Jafnréttisráð, tölvubréf dags. 17. nóvember 2009, þema ársins 2010 “Samþætting fjölskyldu- og athafnalífs„.
Til kynningar.
· Umhverfisnefnd Alþingis , tölvubréf dags. 19. nóvember 2009, ósk um umsögn um tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009–2013, 200. mál: http://www.althingi.is/altext/138/s/0224.html.
Til kynningar.
9. Önnur mál
· Lagt fram tilboð í tvær íbúðir sveitarfélagsins á Sandbakka. Samþykkt að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboðin.
Fundi slitið kl. 19.55


