Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 482
482. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 2. nóvember 2009 kl.16:15.
Mætt voru: Reynir Arnarson varaformaður, Björn Ingi Jónsson og Guðrún Ingimundardóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd Hornafjarðar 119. fundur, 28. október 2009.
Undir þessum lið voru afhentar niðurstöður á könnun sem gerð var meðal foreldra í dreifbýli vegna aukaakstursins og nýtingu á honum sl. 5 fimmtudaga en hann hafa nýtt frá 1 upp í 4 börn í ferð. Bæjarráð samþykkir að aukaakstur standi til áramóta. Rætt var um forvarnamál og samþykkt að taka þessi mál fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vega fjölskyldustefnu, 26. fundur, 28. október 2009.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2010
Margrét mætti á fundinn og gerði grein fyrir rekstrarramma Lönguhóla og óskum skólans um stofnbúnað. Samþykkt að starfsmenn fari yfir nýtingu á leikskólaplássum eftir kl. 16.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2010 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3. Staða bæjarsjóðs 30. september 2009
Farið yfir útsend gögn. Fram kom að reksturinn er betri en áætlanir gera ráð fyrir.
4. Endurskoðuð skólastefna sveitarfélagsins (gögn með skólanefndarfundargerð)
Stefán gerði grein fyrir vinnu skólanefndar við endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins. Sagði hann endurskoðunina vera að stærstum hluta vera vegna nýrra laga og og reglugerða um leik- og grunnskóla en einnig vegna breytinga sem orðið hafa á skólum sveitarfélagsins undanfarin tvö ár. Bæjarráð vísar endurskoðaðri skólastefnu til bæjarstjórnar.
5. Íþróttasalur
Haukur Ingi fór yfir tilboð í tjöld (drapperingar) í íþróttahúsið á Höfn. Einnig farið yfir hugmyndir um efni á gólf. Samþykkt að starfsmenn vinni áfram að málinu.
6. Innsendi erindi
· Kennarasamband Íslands og Samb. ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 23. október 2009, hvatning til skóla og sveitarfélaga um hagnýtingu nýlegra rannsóknaniðurstaða í skólastarfi.
Vísað til skólanefndar.
· Mosfellsbær,tölvupóstur dags. 26. október 2009, málþing um sjálfbæra þróun í sveitarfélögum á Íslandi.
Til kynningar.
· Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, bréf dags. 27. október 2009, afrit af bréfi til heilbrigðisráðuneytisins með samþykkt ársþings SASS um þjónustusamning milli ríkisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Til kynningar.
· Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, bréf dags. 27. október 2009, afrit af bréfi til Umhverfisráðuneytisins með samþykkt ársþings SASS um Vatnajökulsþjóðgarð.
Til kynningar.
· Fjármálaráðuneytið, tölvupóstur dags. 28. október 2009, málstofa um ríkisaðstoð.
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Réttur til að nýta heitið Eystrahorn til blaðaútgáfu. Í kjölfar auglýsingar hefur borist ein umsókn um að nýta nafnið til útgáfu héraðsfréttablaðs. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri gangi til samninga við umsækjanda, Albert Eymundsson.
· Hjalti greindi frá samtölum við rekstararaðila í ferðaþjónustu vegna viðburða og ráðstefnuhalds í sveitarfélaginu.
· Þjónustumiðstöð SKG ehf. óskar eftir að leigja Hafnarbraut 52 (þjónustumiðstöð á tjaldstæði) yfir vetrarmánuðina. Bæjarráð samþykkir að starfsmenn ræði við viðkomandi vegna málsins.
Fundi slitið kl. 18:40


