Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 481
481. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi miðvikudaginn 28. október 2009 kl.13:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fjárhagsáætlun 2010 - forstöðumenn mæta á fundinn
Farið var yfir rekstrarramma og óskir forstöðumanna um stofnbúnað.
2. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 53. fundur, 20. október 2009.
Fundurinn var ólögmætur, aðeins mættu tveir kjörnir fulltrúar á fundinn.
Bæjarráð samþykkir að taka stuðning við Matvælasmiðju fyrir sem sér liður á næsta bæjarráðsfundi.
Fundargerð til kynningar.
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar, 24. fundur, 19. október 2009.
Upplýst var að Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra komi til fundar 13. nóvember n.k.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 106. fundur, 22. október 2009.
Fundargerð samþykkt.
3. Stuðningur sveitarfélagsins við fyrirtæki í atvinnurekstri
Bæjarráð er sammála um að sveitarfélaginu sé ekki stætt á að koma með beinum hætti að rekstri einstakra fyrirtækja. Bæjarráð telur að allur atvinnurekstur í sveitarfélaginu sé á sinn hátt samfélagslega mikilvægur. Bæjarráð beinir til fyrirtækja og atvinnurekenda að sveitarfélagið rekur atvinnu- og rannsóknasjóð sem getur veitt styrki í einstök þróunarverkefni.
4. Endurskoðun reglna um flutningsstyrki og húsaleigustyrki starfsmanna
Bæjarráð samþykkir að fella úr gildi reglur um flutnings- og húsaleigustyrk til starfsmanna frá og með næsta fjárhagsári. Núgildandi samningar við starfsfólk haldi gildi sínu.
5. Endurskoðun gjaldskrár og samþykktar um sorphirðu í sveitarfélaginu
Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu og málið tekið upp á næsta bæjarráðsfundi.
6. Sorpmál í Öræfum
Rætt var um málefni Brennu-Flosa. Bæjarráð er sammála um það að lagfæra brennsluofn. Starfsmönnum falið að ljúka málinu.
7. Innsendi erindi
· Sólheimar, tölvubréf dags. 15. október 2009, ósk um til byggingar vinnustofu og verkstæðishúss.
Erindinu hafnað
· Snorraverkefnið, bréf dags. 16. október 2009, ósk um stuðning við verkefnið.
Erindinu hafnað.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 21. október 2009, úrskurðir mennta- og menningarmálaráðuneytisins vegna vettvangsferða og skólagöngu fósturbarna.
Vísað til skólanefndar.
· Landgræðslan, auglýsing um málþing um notkun lífræns áburðar.
Vísað til tækni og umhverfissviðs.
8. Önnur mál
· Afnot af Eystrahorni. Bæjarráð samþykkir að auglýsa eftir aðilum sem áhuga hafa á notkun á nafninu Eystrahorni.
· Bæjarstjóri ræddi um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Fundi slitið kl. 17.40


