Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 479
479. fundur
Bæjarráð Hornafjarðar
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 12. október 2009 kl.16:15.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Í upphafi fundar var samþykkt að bæta inn nýjum lið (5.), tilboð í Sandbakka 3, íbúð nr. 010103.
1. Fundargerðir
· Stýrihópur um fjölskyldustefnu, 25. fundur 7. október 2009.
Fundargerð samþykkt
2. Fjárhagsáætlun 2010 – forsendur – gögn send út í tölvupósti
Ásta kynnti fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2010. Vísað til áframhaldandi vinnu hjá starfsmönnum m.v. fyrirliggjandi forsendur.
3. Umsókn um afnot af atvinnulóð við Bugðuleiru
Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga frá málinu í samræmi við umræður á fundinum.
4. Tilboð í gervigasvöll – gögn send í tölvupósti
Tvö tilboð bárust í jarðvegsskipti undir gervigrasvöll: Ólafur Halldórsson bauð kr. 14.069.100 (92,8% af kostnaðaráætlun). Rósaberg ehf. bauð kr. 10.230.858 (67,% af kostnaðaráætlun). Kostnaðaráætlun var kr. 15.158.000.
Bæjarráð frestar ákvörðun til næsta bæjarráðsfundar.
5. Tilboð í Sandbakka 3, íbúð nr. 010103
Bæjarráð samþykkir að gert verði gagntilboð og starfsmönnum heimilt að ljúka málinu m.v. umræður á fundinum.
6. Markaðsstofa Suðurlands
Málinu vísað til Atvinnumálanefndar.
7. Útboð á útleigu Hrollaugsstaða – drög
Farið var yfir drögin og ýmsar breytingar gerðar. Bæjarráð samþykkir með drögin með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
8. Jarðhitaleit
Haukur Ingi kynnti málið og fór yfir samninginn og ræddi um tillögur að borunum. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og tillögur að úthlutun með fyrirvara um forgangsröðun á borunum.
9. Eftirlitsgjöld Haust og kostnaður vegna sýnatöku
Bæjarráð gerir athugasemdir við þennan kostnað og vísar málinu til starfsmanna.
10. Innsend erindi
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar,bréf dags. 29. september 2009, leyfi til að rífa trésmíðaverkstæði við Víkurbraut.
Til kynningar.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, afrit bréfs til Margrétar Ingólfsdóttur dags. 29. september 2009, ósk um stækkun lóðar að Dalbraut 10.
Til kynningar.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, afrit bréfs til Ásgríms Ingólfssonar, dags. 29. september 2009, ósk um stækkun lóðar að Hafnarbraut 47a.
Til kynningar.
· Barnaheill, bréf dags. 30. september 2009, ályktun til ríkisstjórnar og sveitarfélaga um að standa vörð um réttindi barna.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, bréf dags. 5. október 2009, ályktun fundar stjórnar- og trúnaðarmanna Foss um að koma í veg fyrir skerðingu á þjónustu sveitarfélaganna, m.t.t. starfsmannahalds.
Til kynningar.
· Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, bréf dags. 5. október 2009, varðar trúnaðarmenn félagsins hjá sveitarfélaginu.
Til kynningar.
· Þórhallur F. Þóroddsson, afrit bréfs til Umhverfisstofnunar vegna hugsanlegra brota á 34. gr. laga um Náttúruvernd nr. 44/1999 við lagningu vegar upp úr Hoffellsdal.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Melland Partners, tölvubréf dags. 7. október 2009, upplýsingar um ráðgjöf á sviði sveitarstjórnarmála.
Til kynningar.
11. Önnur mál
Fyrirspurn um vatnstjón í Nesjahverfi og nágrenni aðfaranótt laugardags. Haukur upplýsti að fundur um málið yrði á morgun.
Rætt var um málefni Hestamannafélagsins varðandi byggingu reiðskemmu.
Fundi slitið kl: 19:35


