Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 478
478. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 5. október 2009 kl. 16:15.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Félagsmálaráð, 197. fundur, dags. 8. september 2009
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd, vinnufundur, dags. 22.09. 2009
Samþykkt að minnispunktar af fundinum verði sendir á bæjarstjórn.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 105. fundur, 24. september 2009
Ræddur niðurskurður hjá HSSA, sbr. fjárlög 2010
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 23. fundur, 10. júní 2009
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 24. fundur, 3. september 2009
Fundargerð samþykkt.
2. Málefni Hestamannafélagsins Hornafirðings – fulltrúar félagsins mæta á fundinn
Undir þessum lið sátu fundinn fulltrúar Hornfirðings þau Bryndís Hólmarsdóttir, Eydís Benediktsdóttir, Pálmi Guðmundsson og Þorbjörg Gunnarsdóttir. Gerð var grein fyrir kostnaðaráætlun vegna byggingar reiðskemmu og einnig var farið yfir minnisblað bæjarstjóra vegna framkvæmdarinnar. Pálmi fór yfir stöðu mála og áherslur hestamanna vegna byggingarinnar. Þá sagði Pálmi að húsið gæti nýst fyrir aðra íþróttastarfsemi en hestamennsku og einnig mætti nota það til sýningarhalds o.fl. Bæjarráðsmenn sammála um að sveitarfélagið komi að verkefninu, ljúka byggingu reiðskemmu, en að jafnframt þurfi að að vinna nánari útfærslu áður en endanleg ákvörðun verður tekin (Elín vék af fundi undir þessum lið)
3. Byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum
Bréf Skipulagsstofnunar, dags. 25. september 2009
Haukur Ingi greindi frá samtali við starfsmann Skipulagsstofnunar vegna málsins. Erindinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
4. Tilboð í niðurtöku/niðurrif á Trésmíðaverkstæði við Víkurbraut. (Samþykkt á fundinum að bæta þessu inn sem lið á dagskrá)
Eitt tilboð barst í verkið og óskaði verktakinn eftir því að eignast og flytja húsið fyrir 0 kr. Kostnaðaráætlun við að rífa húsið og fjarlægja allt efni og urða er kr. 2.595.000. Bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu.
5. Innsend erindi
· Ungmennafélag Íslands, bréf. dags. 21. september 2009, Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum í Dalabyggð.
Til kynningar.
6. Önnur mál
Forvarnamál í grunnskólum. Farið yfir stöðu mála. Starfsmenn lögðu til að lögð verði aukin áhersla á þennan þátt. Hjalti lagði til að málið fari til skólanefndar og félagsmálaráðs og var það samþykkt.
· Upplýsingar um tilboð í malbikun, sbr. minnisblað Hauks Inga, dags. 2. okt. 2009. Samþykkt að unnið verði að málinu áfram. Vísað til fjárhagsáætlunar 2010.
Fundi slitið kl. 17:35


