Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 476
476. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 21. september 2009 kl. 16:15.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson varaformaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar 113. fundur, 10. september 2009.
Árni greindi frá fyrirhuguðum fundum með landeigendum í Stafafellsfjöllum og Félagi sumarhúseigenda í Stafafellsfjöllum.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingar- og skipulagsnefndar um stækkun lóða við Dalbraut 10 og Hafnarbraut 47a. (Hjalti vék af fundi undir þessum lið.)
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 13. fundur, 16. september 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Verkfundur 6 – þekja Álaugarey , 17. september 2009.
Fram kom að Siglingastofnun er ánægð með þetta verk.
Til kynningar.
· Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, 16. fundur, 10. september 2009.
Hjalti greindi frá fyrirhuguðum fundi með ferðaþjónustuaðilum vegna málefna sem varða þjóðgarðinn og ferðaþjónustu á svæðinu.
Til kynningar.
· Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, 426. fundur, 11. september 2009.
Til kynningar.
2. Stofnun hitaveitu í Suðursveit – framhaldsumræður – gögn áður send
Hjalti greindi frá vinnu sem farið hefur fram á milli funda um þetta mál. Urðu um málið töluverðar umræður. Bæjarráðsmenn sammála um að bæjarstjóri fundi með landeigendum og færi inn á þann fund skilaboð í samræmi við það sem fram kom á fundinum.
3. Viðhald utanhúss á Holti á Mýrum
Bæjarráð samþykkir að fara í endurbætur á Holti á Mýrum fyrir kr. 4.200.000., sbr. kostnaðaráætlun.
4. Opnunartími sundlaugar
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi opnunartíma sundlaugar sem gildir frá 1. október 2009 – 15. maí 2010: Mánud. – föstud. frá kl. 06:45 – 21:00. Laugard. og sunnud. frá kl. 10:00 – 17:00.
5. Hrollaugsstaðir
Bæjarráð sammála um að bjóða Hrollaugsstaði út til leigu til 3 – 5 ára með fyrirvörum.
6. Innsend erindi
· Bæjarstjóri Dębica í Póllandi, bréf dags. 7. september 2009, boð um þátttöku í The Europe of Towns Project.
Vísað til bæjarstjóra.
· Bandalag íslenskra leikfélaga, bréf dags. 10. september 2009, ósk um útvegun húsnæðis fyrir Sumarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga.
Vísað til menningarmálanefndar.
· Samgönguráðuneytið. bréf dags. 11. september 2009, uppgjör á framlagi vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2009.
Til kynningar.
· Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, bréf dags. 11. september 2009, ósk um styrk til Eldvarnaátaks 2009.
Til kynningar.
7. Önnur mál
· Björn Ingi gerði að umtalsefni minnisblað sem unnið er að vegna heimsóknar bæjarráðs á fund fjárlaganefndar og var með ákveðnar ábendingar þar að lútandi.
· Björn Ingi spurði um undirbúning fyrir aðalfund SASS sem haldinn verður á Höfn 15. og 16. október nk. Hjalti greindi frá þeim undirbúningi sem er í gangi.
· Stefán gerði grein fyrir fundi með starfsmanni ARKÞING vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Lönguhóla.
Fundi slitið kl. 17:55


