Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 475
475. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 14. september 2009 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðar, 118.fundur, 9. september 2009.
Bæjarráð gerir athugasemd við fyrirsögnina í 4 lið um er að ræða Flutningaskipið Axel.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 90. fundur, 9. september 2009.
Reynir benti á að mikið vatn væri notað við endurvinnsluna t.d. við skolun á mjólkurfernum.
Fundargerð samþykkt.
2. Stofnun hitaveitu í Suðursveit – framhaldsumræður – gögn áður send
Björn Ingi gerði athugasemdir við samningsdrögin, Haukur Ingi svaraði. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu og leggja það fyrir á næsta fund í samræmi við umræður á fundinum.
3. Fundir í stofnunum í Reykjavík haustið 2009
Lagt var fram drög að minnisblaði varðandi málið. Árni ræddi um áherslur sveitarfélagsins á fundum með stofnunum í Reykjavík.
4. Fiskur í mynd – ósk um styrk vegna gerðar þáttaraðar Saga Film
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna áhuga hjá matvælaklasa í Ríki Vatnajökuls varðandi málið.
5. Verkferlar fjármálasviðs – drög
Ásta kynnti málið, Bæjarráð óskar eftir umsögn endurskoðenda sveitarfélagsins.
6. Uppbygging gervigrasvallar - tilboð í hönnun
Haukur fylgdi málinu úr hlað. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.
7. Sorpgjöld - drög að gjaldskrá
Haukur ræddi um gjaldskrána og breytingu frá fyrir gjaldskrá. Bæjarráð vísar drögunum til áframhaldandi vinnu.
8. Vistvænir áfangastaðir - verkefni um uppbyggingu vinsælla áningarstaða
Bæjarráð vísar málinu til tæknideildar.
9. Viðbygging við tjaldstæðishús – kostnaðaráætlun
Haukur kynnti málið. Bæjarráð vísar málinu til fjárhagsáætlunar 2010.
10. Innsend erindi
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 7. september 2009, evrópskur tungumáladagur 26. september 2009.
Vísað til skólaskrifstofu og grunnskóla sveitarfélagsins.
· Evrópuskrifstofan, bréf ódagsett, kynning á ráðgjafaþjónustu.
Til kynningar.
11. Önnur mál
· Hugmyndir um útboð á rekstri kaffiteríu í Nýheimum. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við hugmyndir um útboð.
· Viðhald á Holti á Mýrum, klæðning eða múrviðgerð og málun útveggja. Björn Imsland fór yfir málið og kynnti kostnað við þessa framkvæmd. Ákveðið að taka málið á dagskrá á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 19:10


