Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 474
474. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 8. september 2009 kl. 18:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 52. fundur 1. september 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 766. fundur 28. ágúst 2009.
Fundargerð til kynningar.
2. Málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við Sparisjóð Vestmannaeyja sem á hagsmuna að gæta. Miklar umræður sköpuðust um málið. Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu bæjarstjóra.
3. Stofnun hitaveitu í Suðursveit
Lögð fram drög að stofnun hitaveitu. Framlögð drög rædd og vísað til næsta fundar bæjarráðs.
4. Drög að samningi um jarðhitaréttindi í sveitarfélaginu
Framlögð drög samþykkt með fyrirvara um yfirferð lögfræðings og kynningu meðal bæjarráðs.
5. Endurskoðun Samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Rætt um hugmynd að vinnuferli við endurskoðun. Samþykkt að setja á fót vinnufund í bæjarráði. Vísað til áframhaldandi vinnu.
6. Ósk um leyfi fyrir uppsetningu á loftnetsstöngum á gamla vatnstanki og búnaði innandyra
Hjalti greindi frá fyrirhugaðri komu starfsmanna NOVA á staðinn. Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
7. Viðbygging við tjaldstæðishús
Vísað til starfsmanna að gera kostnaðarmat.
8. Byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
9. Tillaga að staðsetningu gervigrasvallar og staðsetningu knattspyrnuhúss
Björgvin Sigurjónsson mætti á fundinn undir þessum lið. Haukur Ingi og Björgvin gerðu grein fyrir viðræðum við Vegagerðina, rannsóknum á jarðvegi og skoðun verkfræðinga á grundun vallarins.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu sem felur í sér staðsetningu sem næst Lönguvitleysu og fjærst Garðshólnum innan byggingareitsins. Völlurinn verði 68m á lengd og 48m á breidd.
Lögð fram drög að kostnaðaráætlun og framkvæmdaáætlun.
10. Drög að greingerð vegna hitaveitu og vatnsveitu
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
11. Drög að verklýsingu fyrir niðurrif/niðurtöku á trésmíðaverkstæði við Víkurbraut
Björgvin Sigurjónsson mætti á fundinn undir þessum lið. Haukur Ingi og Björgvin gerðu grein fyrir útboðslýsingu. Haukur Ingi gerði grein fyrir samskiptum við RARIK um að tæma trésmíðaverkstæðið.
Björn Ingi spurði um ástæðu þess að skila eigi efni sem rifið er niður í gámaporti og benti á kostnað sem falli á sveitarfélagið vegna aksturs með efnið á eyðingarstað. Haukur Ingi svaraði fyrirspurnum og benti á að skv. útboðsgögnum verði verktakanum uppálagt að flokka efnið sem fellur til. Björn Ingi gerði einnig athugasemdir við hvar eigi að urða steypumulning.
Bæjarráð samþykkir framlögð útboðsgögn með áorðnum breytingum.
12. Innsend erindi
· Ferðamálastofa, bréf dags. 26. ágúst 2009, uppsögn samnings um rekstur upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Hornafirði.
Hjalti gerði grein fyrir áformum um endurskoðun á skipan upplýsingamiðstöðva. Jafnframt greint frá samtali við tvo fulltrúa í nefnd um endurskoðun.
· SAMAN, bréf dags. 27. ágúst 2009, segulspjöld með útivistarreglum.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Alþingi, bréf dags. 28. ágúst 2009, bréf vegna fundarhalda með sveitarstjórnarmönnum í septemberlok 2009.
Til kynningar.
· Lagastoð – innheimtuþjónusta ehf.,bréf dags. 1. september 2009, frumvarp til úthlutunar úr db/Ástu Eiríksdóttur.
Vísað til menningar- og tómstundanefndar.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, bréf dags. 2. september, varðar lóðarleigusamningur um skógrækt við Lionsklúbbs Hornafjarðar.
Samningurinn samþykktur.
13. Önnur mál
· George Haney meistaranemi við Háskóla Íslands kom á fundinn til að kynna verkefni sitt um hvernig meta beri umverfisleg áhrif af námum áður en þær eru teknar inn í aðalskipulag.
· Hjalti greindi frá samtali sínu við rekstraraðila Sporthallarinnar
· Elín lagði til að matsalur í Hafnarskóla yrði prýddur með myndlist í eigu sveitarfélagsins. Vísað til starfsmanna.
Fundi slitið kl. 20:30


