Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 473
473. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 31. ágúst 2009 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um kosningar til sveitarstjórna, 149. mál, persónukjör - frestað á síðasta fundi
Bæjarstjóra falið að vinna drög að umsögn til Alþingis sem sendi verði í tölvupósti á bæjarráðsfulltrúa á milli funda.
2. Málefni fatlaðra
Árni taldi að landfræðileg lega okkar og reynsla sveitarfélagsins af rekstri málaflokksins styðji það að okkar sveitarfélag verði eitt þjónustusvæði þrátt fyrir það 8000 manna lágmark sem sett er fram í hugmyndum um flutning málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga. Var undir þetta sjónarmið tekið.
3. Vatnsmál
Hjalti greindi frá átöppun vatns í einn gám úr vatnsbóli við Grjótbrú. Einnig greindi Haukur frá stöðu mála við vatnsbólið og frágangi þess, fyrirhugaða lögn frá Grjótbrú til Hafnar o.fl. mál sem lúta að vatnsbólinu og flutningi vatns til Hafnar. Hann sagði rennsli gott í lindinni og gæði vatnsins mikil.
4. Samþykkt um stjórn og fundarsköp
Hjalti lagði til að bæjarráð haldi utan um fyrirhugaða vinnu að þessu máli og nefndi nokkur atriði sem hann taldi að ættu að vera til umræðu. Einnig ræddi hann siðareglur sem hann taldi að kallað verði eftir, lýðræðisþátttöku almennings o.fl. Björn Ingi minnti á að ýmislegt í núverandi fundarsköpum mætti nýta betur en gert er. Björn Ingi sagði eðlilegt að þessi umræða verði tekin en það verði næstu bæjarstjórnar að ljúka vinnunni endanlega. Var undir það tekið.
5. Lausaganga búfjár á vegsvæði
Farið yfir bréf Ragnars Jónssonar, bónda í Akurnesi, dags. 18. ágúst 2009 og lögfræðiálit Jóns Jónssonar, lögm. hjá lögmannsstofunni Regula, dags. 24. ágúst 2009. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfi Ragnars Jónssonar.
6. Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis vegna Kistugils ehf.
Bæjarráð gerir engar athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfisins.
7. Staða bæjarsjóðs 31. júlí 2009
Ásta fór yfir stöðu bæjarsjóðs og svaraði fyrirspurnum. Fram kom að staðan er að mestu leyti í samræmi við áætlanir.
Einnig farið yfir stofnkostnað nýrrar sundlaugar sem nú stendur í kr. 470.886.306.
8. Innsend erindi
· Sigurgeir Jónsson, afrit bréfs dags. 6.ágúst 2009, málefni Uppsala.
Til kynningar.
· Háskóli Íslands, bréf dags. 18. ágúst 2009, ósk um styrk vegna forvarnarfræðslu í efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum.
Vísað til bæjarstjóra.
· Hafnasamband sveitarfélaga, bréf dags. 21. ágúst 2009, hafnafundur 2009 á Eskifirði 18. september n.k.
Vísað til hafnarstjórnar.
· Vegagerðin, bréf dags. 20. ágúst 2009, varðar skilgreiningu „Hafnarvegar“ sem þjóðvegar í endurskoðun aðalskipulags.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar og starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi. Jafnframt er lagt til að starfsmenn og byggingar- og skipulagsnefnd verði í sambandi við Vegagerðina vegna þessa máls.
· Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, tölvubréf dags. 27. ágúst 2009, Göngum í skólann.
Vísað til skólanefndar.
9. Önnur mál
· Hjalti greindi frá tillögu um að fjallskil verði gerð með sama hætti og sl. ár.
· Hjalti greindi frá bréfi til þeirra íbúa sem leigja íbúðir á Sandbakka 1 og 3 vegna hugsanlegrar sölu á kaupleiguíbúðum.
Fundi slitið kl. 18:13


