Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 472
472 fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 17. ágúst 2009 kl. 20:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs, Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Skólanefnd, 117. fundur, dags. 12. ágúst 2009
Björn Ingi gerði að umtalsefni hugmyndir um akstur innan bæjar á Höfn með nemendur grunnskólans og einnig öryggi skólabarna sem eru gangandi á leið í skóla. Stefán sagði að öryggi gangandi nemenda hafi verið töluvert rædd í starfshópi fyrir yfirstandandi skólabreytingar en sérstakur akstur innan Hafnar væri ekki á dagskrá. Bæjarráð samþykkir að beina til stjórnenda grunnskólans að hafðar verði í huga meginleiðir gangandi nemenda á leið í skólann og hugsanlega gangbrautarvörslu á þyngstu gatnamótum.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar-og skipulagsnefnd, 112. fundur, dags. 12. ágúst 2009
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um kosningar til sveitarstjórna, 149. mál, persónukjör
Umsögn um frumvarpið frestað til næsta fundar bæjarráðs.
3. Málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings
Bæjarstjóri fór yfir málið og greindi frá samskiptum sínum við forsvarsmenn Hornfirðings vegna þeirrar stöðu sem uppi er í byggingu reiðskemmu á vegum félagsins. Björn Ingi spurði um rekstrarkostnað eftir að (ef) húsið rís. Ekki kom fram hver hann yrði. Bæjarstjóra falin ákv. vinna í málinu.
4. Beiðni um stækkun á lóð að Hafnarbraut 47a
Erindinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
5. Sala á kaupleiguíbúðum – kynnt á fundinum
Hjalti greindi frá málinu og ræddar voru hugmyndir að næstu skref.
6. Fjarskiptafélag Öræfinga
Bæjarstjóri fór yfir málið og og greindi frá fyrirhuguðum fundi hans með starfsmönnum Fjarska ehf. Björn Ingi sagði að efasemdir hans um fjárhagslega aðkomu sveitarfélagsins að Fjarskiptafélaginu séu enn til staðar. Samþykkt að sveitarfélagið kaupi tengingu fyrir Hofgarð.
7. Gjaldskrá Vatnsveitu – kynnt á fundinum
Hjalti fór yfir málið og greindi frá gjaldskrá vatnsveitna nokkurra sveitarfélaga. Ræddi hann hugmyndir um afslátt á gjaldskrá vatnsveitunnar til stórnotenda. Bæjaráð samþykkir að veita 25% afslátt á vatnsgjaldi til notenda sem kaupa 5 þúsund til 10 þúsund tonn á ári og 50% afslátt fyrir það vatnsmagn sem er umfram 10 þús. tonn.
8. Samningar við landeigendur vegna jarðhitaleitar – gögn send í tölvupósti
Haukur Ingi fór yfir málið, greindi frá samskiptum við landeigendur og fór yfir drög að samningum sem farið hafa á milli starfsmanna og landeigenda sem í hlut eiga. Hauki Inga falið að vinna áfram að málinu og koma með það inn á bæjarráðsfund þegar fyrir liggja drög að samkomulagi við landeigendur.
9. Tilraun á klæðningu á plönum og götum
Haukur Ingi gerði grein fyrir hugmyndum sem uppi eru um klæðningu á plönum og götum á miðbæjarsvæði við Nýheima og Miðbæ. Samþykkt að leggja klæðningu í samræmi við það sem kynnt var í útsendum gögnum á afmörkuðu svæði sem tilraun.
10. Stjórnsýslukæra Sigurgeirs Jónssonar, bréf frá samgönguráðuneyti dags. 11. ágúst 2009
Bæjarstjóri fór yfir málið og kynnti drög að umsögn, sbr. bréf samgönguráðuneytisins, dags. 11. ágúst 2009. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
11. Lögfræðiálit varðandi ágang búfjár, dags. 12. ágúst 2009
Málinu vísað til umfjöllunar í atvinnumálanefnd.
12. Hringvegur um Hornafjörð. Álit Skipulagsstofnunar, dags. 7. ágúst 2009
Farið yfir álit Skipulagsstofnunar. Samþykkt að óska eftir fundi með Vegagerðinni og þingmönnum kjördæmisins vegna málsins.
13. Önnur mál
Hjalti greindi frá erindi fyrirtækisins Northern Light Energy um verkefnið 2012 sem snýr að rafvæðingu í samgöngumálum. Samþykkt að skrifað verði undir viljayfirlýsingu , óskuldbindandi, um samstarf við fyrirtækið vegna þessa verkefnis.
Rætt um endurbætur á minnisvarða um Þórhall Daníelsson og Ingibjörgu Friðgeirsdóttur.
Fundi slitið kl. 22:45


