Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 471
471. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 4. ágúst 2009 kl. 16:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs.
1. Fundargerðir
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 104. fundur, 21. júlí 2009
Undir þessum lið var rætt um dvalarheimilið, sbr. umrædda fundargerð. Einnig rætt um stöðu á ráðningarmálum lækna.
Fundargerð samþykkt.
2. a) Ósk um umsögn á tækifærisleyfi vegna dansleiks í Sindrabæ
Engar athugasemdir gerðar.
3. Ágangur búfjár á heimalönd í landi Horns
Stefán greindi frá samskiptum við eiganda jarðarinnar Horns o. fl. jarðeigendur í Nesjum. Þá lagði hann fram drög að beiðni um lögfræðiálit vegna málsins. Bæjarráð samþykkir að leitað verði eftir lögfræðiáliti vegna málsins, sbr. meðfylgjandi drög.
4. Rekstraryfirlit janúar – júní 2009
Farið yfir rekstraryfirlit 30. júní 2009. Rætt um rekstrarstöðuna og framsetningu reikninga. Lögð áhersla á að rekstraryfirlit gefi sem gleggsta mynd af stöðu bæjarsjóðs frá mánuði til mánaðar þannig að það nýtist vel sem stjórntæki.
5. Staða bæjarsjóðs 30. júlí 2009
Farið yfir drög að stöðu bæjarsjóðs 30. júlí 2009.
6. Innsend erindi
· Félag fagfólks í frítímaþjónustu, bréf dags. 15. júlí 2009, áskorun um að standa vörð um starfsemi félagsmiðstöðva og frístundaheimila fyrir börn og unglinga.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 17. júlí 2009, lýðræðismál í sveitarfélögum og málþing 19. ágúst nk.
Lagt til að hvert framboð tilnefni einn fulltrúa á málþingið.
· AFS á Íslandi, bréf dags. 20. júlí 2009, dvöl skiptinema á Íslandi.
Til kynningar.
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 21. júlí 2009, svar við ósk um tímabundna undanþágu frá gassöfnun á sorpurðunarstað.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 21. júlí 2009, tilkynning um skerðingu framlaga til námsgagnasjóðs fyrir árið 2009.
Vísað til skólanefndar.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 21. júlí 2009, framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Til kynningar
7. Önnur mál
· Ósk um umsókn á tækifærisleyfi vegna tónleikahalds og vínveitinga í Pakkhúsi. Engarathugasemdir gerðar.
· Samþykkt að vísa endurskoðun á gjaldskrá vatnsveitu sveitarfélagsins til starfsmanna.
· Björn Ingi óskaði eftir uppgjöri vegna byggingar nýrrar sundlaugar og framkvæmda við Grunnskóla Hornafjarðar.
· Björn Ingi sýndi mynd af grenndargámastöð í Lóni og umgengni um svæðið. Voru menn sammála um að þessi mál þurfi að endurskoða í ljósi reynslunnar eftir þetta sumar.
· Elín spurði hvort ekki væri ástæða til að auglýsa sundlaugina á gatnamótum við þjóðveg 1.
Fundi slitið kl. 17:00


