Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 469
469. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 6. júlí 2009 kl. 13:00.
Mætt voru: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
Menningar og tómstundaráð, 12. fundur 16. júní 2009.
Fundargerð samþykkt.
2. Fornleifaskráning í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Hjalti gerði grein fyrir að skrá þurfi fornleifar í Hornafirði. Gerði grein fyrir skráningu fornleifa á Horni vegna uppbyggingar leikmyndar. Taldi í ljósi þessa máls að mikilvægt væri að skrá fornleifar í sveitarfélaginu til að auðvelda framkvæmdir á við þá sem fram fer á Horni núna. Lagt til að menningarmálanefnd setji á fund með Minjaverði Austurlands um skyldur sveitarfélaga varðandi fornleifaskráningu.
3. Notkun á íþróttahúsi í Nesjum
Hjalti gerði grein fyrir fundi með þjálfara fimleikadeildar þar sem rætt var um möguleika á að gera íþróttahús í Nesjum að fimleikahúsi. Umræðu vísað til skólanefndar.
4. Tölvu- og tæknimál – tölvur í grunnskóla Hornafjarðar – gögn send út í tölvupósti
Farið yfir minnispunkta dags. 2. júlí 2009 vegna tölvumála í Grunnskóla Hornafjarðar. Bæjarráð samþykkir tillögu sem þar kemur fram, um kaup á 51 fartölvu og gera fjármögnunarsamning við HP-finance samkvæmt fyrirliggjandi tilboði.
Lagt fram tilboð í fartölvur frá Martölvunni ehf. og Hátíðni ehf. Farið fyrir tilboðin. Rætt um stærð skjáa, minni, örgjörva og fleira. Samþykkt að kaupa HP ProBook 4515s á 99.725 m.vsk hver tölva.
Rætt um tölvumál almennt hjá sveitarfélaginu. Rætt um hvort bjóða eigi út vinnu við viðhald og umsjón tölvukerfis sveitarfélagsins eða ráða fastan starfsmann til sveitarfélagsins. Rætt um mikilvægi þess að taka ákvörðun útfrá fjárhagslegum viðmiðum og öryggi í starfseminni. Vísað til starfsmanna að afla frekari gagna.
5. Skotveiðifélag Austur-Skaftafellssýslu
Lögð fram umsókn frá félaginu um uppsetningu skotsvæðis sem næst Höfn. Bæjarráð vísar umsókninni til byggingar- og skipulagsnefndar til umræðu.
6. Viðburðir á vegum sveitarfélagsins
Hjalti gerði grein fyrir því að veitingamenn hafi komið að máli við sig og rætt um samstarf við sveitarfélagið vegna uppsetningu viðburða á þess vegum. Bæjarráð leggur ríka áherslu á að sem flestir viðburðir sem eru settir upp á vegum sveitarfélagsins og stofnana þess verði í sem mestri samvinnu við veitingamenn á staðnum.
7. Samvinna sveitarfélagsins við félagasamtök
Hjalti lagði til að fundað verði með félagasamtökum í haust. Samþykkt.
8. Ósk um að húseignin að Hafnarbraut 11 verði skráð sem safnahús í fasteignaskrá
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
9. Ósk um umsagnir á útgáfu rekstrarleyfa
· á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir gististað fl. I gistiskála, Stafafell.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
· á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir gististað fl. V gististað, Smyrlabjörg.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
· á rekstrarleyfi fyrir gististað fl. III gististað, Gerði og Hrollaugsstaðir.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
10. FAB Lab smiðja
Hjalti lagði fram útreikninga vegna kaupa á FabLab smiðju og rekstur hennar. Kom fram að ef hugmyndin verði að veruleika þurfi sveitarfélagið að kaupa búnaðinn en reksturinn yrði samvinnuverkefni með fleiri aðilum. Reynir sagði frá heimsókn sinni í FabLab smiðju í Vestmannaeyjum. Rætt um hverjir myndu nýta þetta og hvað FabLab myndi bæta við starfið sem fram fer í Nýheimum.
Vísað til frekari vinnu starfsmanna og samþykkt að taka málið upp við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2010.
11. Umsókn um framkvæmdaleyfi til lagningar ljósleiðara á bæi í Öræfasveit.
Bæjarráð samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis með fyrirvara um samþykki annarra hagsmunaaðila, s.s. veghaldara og með fyrirvara um umhverfismat. Vísað til afgreiðslu starfsmanna.
12. Innsend erindi
· Heilbrigðisráðuneytið,bréf til Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands, dags. 11. júní 2009, lækkun framlags vegna hækkunar á sértekjum.
Vísað til kynningar í heilbrigðis- og öldrunarráði.
· Byggingafulltrúi Hornafjarðar, bréf dags. 22. júní 2009, afgreiðsla byggingar- og skipulagsnefndar á erindi bæjarráðs vegna lóðarumsóknar Humarhafnarinnar sem var vísað til nefndarinnar á 465. fundi bæjarráðs.
Til kynningar.
· Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 15. júní 2009, tilkynning um undirbúning viðbragðsáætlana vegna inflúensufaraldurs.
Til kynningar
· Slysavarnafélagið Landsbjörg, bréf dags. 24. júní 2009, björgunarsveitir á hálendinu sumarið 2009.
Til kynningar.
· Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 26. júní 2009, vegna breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Kemur fram að ráðuneytið hafi staðfest breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins og auglýsi breytinguna á næstu dögum.
· Samkeppniseftirlitið, tölvubréf dags. 29. júní 2009, fréttatilkynning um „Aðgerðir til opnunar markaða og eflingar atvinnulífsins“.
Til kynningar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags. 30. Júní 2009, skil á mánaðarlegum upplýsingum um fjármál sveitarfélaga.
Til kynningar.
13. Önnur mál
· Lögð fram umsókn frá leikskólastjóra á Lönguhólum um kaup á stofnbúnaði. Samþykkt að veita kr. 50 þúsund til stofnbúnaðarkaupa.
· Lögð fram tilboð í frágang lóðar við Hafnarskóla. Kostnaðaráætlun var upp á kr. 15.000.000 og bárust tvö tilboð. Jarðverk ehf. bauð kr. 13.970.000,- og Rósaberg ehf. bauð kr. 13.453.300,-. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda en undirstrikað að verklok verði eigi síðar en 15. ágúst og beitt verði dagsektum að öðrum kosti með fyrirvara. Fram kom óánægja í bæjarráði um skil á verkum og taka verði innkaupareglur sveitarfélagsins upp með það að markmiði að verktakar verði að standa við gerða samninga og skila verkum á réttum tíma.
Fundi slitið 16.00


