Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 468
468. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 22. júní 2009 kl. 16:00.
Mætt voru: Reynir Arnarson formaður, Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd, 111. fundur 10. júní 2009.
Björn Ingi lagði áherslu á að unnið yrði deiliskipulag fyrir sem flest svæði sveitarfélagsins. Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir tillögu um að veita Humarhöfninni afnotarétt af lóð nr. 6 við Hafnarbraut. Framkvæmdir á lóðinni eru háðar samráði við byggingar- og skipulagsnefnd og bæjarráð.
Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð, 196. fundur 9. júní 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar 117. fundur 16. júní 2009.
Björn Ingi gerði athugasemdir við orðalag í fundargerð Hafnarstjórnar.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 103 . fundur 10. júní 2009.
Björn Ingi gerði málefni dvalarheimilis að umtalsefni. Guðrún Ingimundardóttir ræddi um bókun sem hún lagði fram vegna málsins á síðasta fundi HÖR. Hjalti ræddi um tildrög og aðdraganda málsins.
Björn Ingi ræddi um mönnun lækna. Umræður sköpuðust í kjölfarið.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 116. fundur 12. júní 2009.
Björn Ingi gerði skólamáltíðir að umtalsvefni. Hjalti fór yfir útreikninga varðandi málið.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs - suðursvæði, 15. fundur 5. júní 2009.
Til kynningar.
2. Tölvu- og tæknimál
Vísað til starfsmanna.
3. Reglur fyrir sundlaug
(Haukur Helgi Þorvaldsson mætti á fundir undir þessum lið). Hjalti gerði grein fyrir aðdraganda málsins. Haukur Helgi gerði grein fyrir því að mjög mismunandi væri frá sundlaug til sundlaugar hvernig reglur væri og viðurlög þar af lútandi. Nefndi Haukur Helgi dæmi um að hætta hafi skapast vegna þess að reglur voru brotnar og fólk jafnvel meiðst. Sagði hann að hann hefði myndir úr öryggismyndavélum dæmi sínu til stuðnings.
Bæjarráð leggur áherslu á að gestir sundlaugar fari eftir tilmælum sundlaugarvarða í hvívetna og samþykkir framlagðar reglur Sundlaugar Hafnar. Bæjarráð samþykkir að viðurlög fyrir fyrsta brot á öryggisreglum sundlaugar verði þrír dagar og við ítrekuð brot ein vika fyrir hvert brot.
4. Ósk um að setja niður hraðahindranir við íþróttasvæði við Víkurbraut
Samþykkt.
5. Ósk um umsögn á rekstarleyfi fyrir veitingastofu og greiðasölu í Upplýsingamiðstöð í Skaftafelli
Ekki gerð athugasemd við útgáfu leyfisins.
6. Umsókn um byggingarleyfi fyrir aðstöðuhús í Skaftafelli – Jöklamenn ehf.
Samþykkt með þeim fyrirvara að hálmur sem nota eigi í húsið verði ekki fluttur í Skaftafell nema með samþykki Matvælastofnunar. Bent á mikilvægi þess að ekki berist búfjársjúkdómar í Öræfin.
7. Ósk um styrk
Samþykkt að vísa til bæjarstjóra.
8. Drög að kaupsamningi vegna Leifshúss
Framlögð drög samþykkt.
9. Innsend erindi
· Afrit af bréfi Skipulagsstofnunar til Umhverfisráðuneytisins, bréf dags. 3. júní 2009, breyting á aðalskipulagi Hornafjarðar 1998-2018, vegur yfir Hornafjaðrarfljót, efnistökusvæði og niðurfelling flugbrautar.
Til kynningar.
· Norden, Jafnréttisstofa,Menntamálaráðuneytið, Félags og tryggingamálaráðuneytið, boð á ráðstefnu um jafnréttisfræðslu í skólum 21. og 22. september 2009.
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 8. Júní 2009 – Hljóðvist í leik- og grunnskólum – málstofa í september.
Til kynningar.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, bréf dags. 11. júní 2009, undanþága frá gassöfnun á urðunarstöðum fyrir úrgang og undanþága vegna endurnýjunar starfsleyfis.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs.
· Samband ísl. Sveitarfélaga, tölvubréf dags. 18. júní 2009, listi yfir heildarfasteignamat eftir sveitarfélögum og listi yfir fasteignamat íbúðareigna.
Til kynningar.
· Fornleifavernd ríkisins, bréf dags. 11. júní 2009, eftirlit með byggingu leikmyndar að Horni.
Til kynningar.
10. Önnur mál
· Hjalti gerði grein fyrir fundi sem haldinn var fyrr um daginn í Mánagarði um sauðfjárveikivarnir. Tók fram að mistök hafi átt sér stað um boðun fundarins en eingöngu sauðfjárbændur hafi fengið boðið þegar markmið var að boða alla landeigendur á fundinn. Greindi Hjalti frá tillögu sem samþykkt var á fundinum. Lagði Hjalti fram undirskriftarlista sem honum var afhendir frá bændum í Öræfum, Suðursveit, Mýrum og Lóni þar sem því er mótmælt að sauðfjárveikivarnarlína um Hornafjarðarfljót verði lögð niður. Kom fram að íbúar frá eftirfarandi bæjum hefðu skrifað undir: Litla Hofi, Hofi, Svínafelli, Svínafelli II, Hnappavöllum, Hala, Gerði, Kálfafelli, Jaðri, Brunnavöllum, Lækjarhúsum, Borgarhöfn, Króki, Gamla-Garði, Vagnstöðum, Hestgerði, Sunnuhlíð, Smyrlabjörgum, Skálafelli, Hólmi, Nýpugörðum, Stóra-Bóli, Holtahólum, Hólabrekku, Tjörn, Holtaseli, Viðborðsseli, Vík, Svínhólum, Hlíð, Hraunkoti, Stafafelli, Brekku, Hvammi og Volaseli.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um málið.
· Hjalti lagði fram bréf frá Sigurgeiri Jónssyni dags. 7. apríl 2009 um málefni Uppsala 1 og 2 og jörðina Sunnuhlíð. Bæjarráð ítrekar fyrri afgreiðslu vegna málsins.
· Bæjarráð samþykkir að kaupa útgáfurétt að Eystrahorni ásamt meðfylgjandi léni, ljósmyndum og tveimur heildarútgáfum blaðsins frá upphafi á kr. 50.000.
· Björn Ingi ræddi um alheimsfaraldur vegna inflúensu. Benti hann á að bæjarstjórn verði að gera sér áætlun um hvernig ákveðnir þættir sem eru á ábyrgð sveitarfélagsins eigi að ganga ef hér geisar öflug inflúensa. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara í þessa vinnu í samráði við vinnuhóp sem starfar að málinu undir formennsku Björns Inga.
Fundi slitið 18.37


