Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 467
467. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 8. júní 2009 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 116. fundur 2. júní 2009.
Fundargerð samþykkt.
2. Fjarskiptafélag Öræfa
Hjalti gerði grein fyrir samtali við forsvarsmenn félagsins. Bæjarstjóra falið að gera drög að samningi milli sveitarfélagsins og Fjarskiptafélags Öræfa. Björn Ingi lagði áherslu á hlutverk ríkisins í fjarskiptamálum. Sagði að aðkoma sveitarfélagsins ætti að takamarkast við það að gæði fjarskipta verði meiri en útboð Fjarskiptasjóðs gerir ráð fyrir.
3. Erindi vegna Hafnarbrautar 59
Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu fráveitumála við Hvítasunnukirkjuna. Erindinu vísað til starfsmanna á tækni- og umhverfissviði til frekari vinnslu. Fagnað er fyrirhuguðum endurbótum á lóð Hvítasunnukirkjunnar.
4. Ósk um leyfi til að reisa skógarhýsi í Hrossabithaga
Haukur greindi frá tilurð málsins og hugmyndum sem að baki liggja. Samþykkt leyfi til að reisa skógarhýsi í Hrossabithaga.
5. Framtíð kaupleiguíbúða
Hjalti greindi frá því að allar íbúðir hafi verið sölumetnar.. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu með það í huga að selja ákv. fjölda íbúða úr húsnæðiskerfi sveitarfélagsins árlega, sbr. fyrri bókun bæjarráðs. Samstaða um að sveitarfélagið eigi áfram Silfurbraut 2 – 4.
6. Innsend erindi
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 28. maí 2009, rafrænar kosningar – tilraunaverkefni.
Bæjarráð lýsir yfir áhuga á að taka þátt í þessu verkefni.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 27. maí 2009, frumvarp til vegalaga.
Til kynningar.
· Boð vegna opnunar hagleikssmiðju „Aurlandssko Èconomusèe“ í Hordaland í Noregi.
Hjalti greindi frá málinu. Bæjarstjóra falið að kanna málið.
· Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags.4. júní, ungt fólk og lýðræði.
Vísað til menningar- og tómstundanefndar.
7. Önnur mál
· Hjalti greindi frá því að lögfræðingur þjóðlendumála verði hér á morgun.
· Greint frá bókun Djúpavogshrepps um kostnaðarskiptingu vegna samstarfs um komu farþegaskipa og ferðar á kaupstefnu sem tengist verkefninu. Samþykkt að greiða 50% af kostnaði vegna ferðar á kaupstefnu.
· Samþykkt að vinna við skólalóð við Hafnarskóla verði boðin út.
· Samþykkt að fundir bæjaráðs verði á tveggja vikna fresti fram í ágústbyrjun.
· Björn Ingi spurðist fyrir um sauðfjárveikivarnagirðingu á aurum austan Hornafjarðarfljóta. Hjalti gerði grein fyrir stöðu málsins.
· Björn Ingi gerði að umtalsefni reykingar starfsmanna vinnuskólans í bílum sem tilheyra starfi skólans.
· Björn Ingi ræddi fyrirhugaðar parhúsbyggingar á vegum sveitarfélagsins. Hjalti sagði það sína skoðun að reisa eigi húsin í haust ekki síst ef staðan á vinnumarkaði kallar á framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.
Fundi slitið kl. 17:25


