Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 466
466. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 2. júní 2009 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir framkvstj. fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 86. fundur 26. maí 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 11. fundur 19. apríl 2009.
Bæjarráð lýsir áhyggjum yfir rekstri menningarmiðstöðvar og að fjárhagsáætlun stofnunarinnar standist sbr. bókun nefndarinnar af neikvæðri fjárhagsstöðu Menningarmiðstöðvar, sbr. 2. lið. Einnig tekur bæjarráð undir 5. lið á dagskrá, önnur mál, þar sem fagnað er áhuga einstaklinga og fyrirtækja á að viðhaldi og varðveislu gamalla húsa á Höfn.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar 115. fundur 27. maí 2009.
Bæjarráð tekur undir þá hugmynd meirihluta skólanefndar að boðið verði upp á eina aukaferð á viku (austur og vestur) vegna tómstundastarfs grunnskólanema eftir hefðbundinn skóladag sem tilraun til áramóta. Björn Ingi spurðist fyrir um breytinga og lagfæringar á Lönguhólum, það kom fram í svari Stefáns að ný lög tóku gildi varðandi leikskóla en nauðsynlegt er að laga aðstöðu fyrir sérkennslu og starfsmenn. Töluverðar umræður urðu um málið. Einnig var vísað til þriggja ára áætlunar sveitarfélagsins 2010-2012
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 764. fundur 22. maí 2009.
Bæjarráð vísar því til starfsmanna að fara yfir og bregðast við 15. lið í fundargerð stjórnar sambandsins ef ástæða þykir til.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009
Ásta fór yfir helstu breytingar, þar kom fram m.a að skatttekjur lækka um 4. m.kr. og færðar eru 6 m.kr. á launabreytingalykil. Framkvæmdir A-hluta hækka um 84,7 m.kr. sem eru að mestu leyti vegna framkvæmda sem voru á fjárhagsáætlun 2008 og færast á milli ára en í B-hluta lækka um 7 m.kr. Samtals er því hækkun um 77,7 m.kr. Uppfærsla langtímalána lækka úr 6,5% í 4,5% . Rekstrarniðurstaða A-hluta verður 25,5 m.kr. og hækkar um 3,6 m.kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta verður 25,3 m.kr. og hækkar um 22,8 m.kr. Handbært fé í árslok verður 361,6 m.kr. í stað 377,9 m.kr. og lækkar um 16,3 m.kr.
Bæjarráð samþykkir að vísa endurskoðun á fjárhagsáætlun 2009 til bæjarstjórnar.
3. Fjölskyldustefna – drög
Lögð fram til umræðu og kynningar.
Bæjarráð hvetur til að haft verði samráð við íbúa áður en fjölskyldustefnan verði samþykkt.
4. Tölvu og tæknimál
Greint frá samskiptum bæjarstjóra við tvo aðila sem sinna tölvuþjónustu á Hornafirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
5. Drög að kaupsamningi á útgáfurétti héraðsfréttablaðsins Eystrahorni og léninu eystrahorn.is
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu.
6. Fjarskiptafélag Öræfa
Tölvupóstur frá Fjarskiptafélagi Öræfinga lagður fram til kynningar og umræðu.
Miklar umræður urðu um málið.
7. Innsend erindi
· Stjórn smábátafélagsins Hrollaugs, yfirlýsing dags. 7. maí 2009 um áform ríkisstjórnar Íslands um innköllun veiðiheimilda.
Til kynningar.
· Stjórn Landssambands smábátaeigenda, ályktun 15. maí 2009, varðar áform ríkisstjórnar Íslands um innköllun veiðiheimilda.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið, tölvubréf dags. 26. maí 2009, áframhaldandi vinna við eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Til kynningar.
· Björn Jóhannsson, bréf dags. 26. maí 2009, varðar umsókn um starf lyfjafræðings hjá Lyfju á Höfn.
Til kynningar. Bæjarstjóra falið að kanna málið.
· Byggingarfulltrúi Hornafjarðar, bréf dags. 26. maí , svör við erindi bæjarráðs um byggingarleyfi fyrir parhús að Álaleiru13 og 15 á Höfn.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, Guðjón Bragason, tölvubréf dags. 26. maí, varðar reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við endurbætur íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæði.
Vísað til fjármálasviðs og tækni- og umhverfissviðs.
· World harmony run, bréf dags. 27. maí 2009, Friðarhlaup á Höfn 3. júlí 2009.
Fulltrúi bæjarráðs tekur á móti friðarhlaupinu.
· Önnur mál
Ársreikningar Hornafjarðarveitna undirritaðir.
Bæjarráð samþykkir að fresta bæjarstjórnarfundi um viku, til 11. júní n.k.
Bæjarráð ræddi um starfsmannamál í sundlaug, álag, þjónustu og fl.
Hjalti ræddi um tvö fundi sem hann var á í Reykjavík.
Fundi slitið kl. 18:50


