Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 464
464. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 18. maí 2009 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Byggingar og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 110. fundur 14. maí 2009.
Rætt um leyfi til niðurrifs útihúsa í Svínafelli, sbr. 2. lið á dagskrá nefndarinnar og breytingar á Litlubrú 1, sbr. 1. lið. Björn Ingi spurði hvort byggja eigi tvö parhús á Leirusvæðinu. Svarað til að byggja eigi eitt.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 89. fundur 14. maí 2009.
Rætt um fyrrum sorphauga við Fjárhúsavík og hvað gera eigi á svæðinu, sbr. fundargerð nefndarinnar. Fram kom að vatnssýni við Grjótbrú komi mjög vel út, magn og gæði. Rætt um 2. lið á dagskrá og tillögu umhverfisnefndar um samþykktir um umgengni og þrifnað utanhúss. Samþykkt að málið verði sett á dagskrá bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga, 763. fundur 29. apríl 2009.
Til kynningar.
Undir þessum lið greindi Hjalti frá samráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hann sat í lok síðustu viku.
2. Lóðarumsóknir
· Álaleira 13 og 15
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar nr. 13 og 15 við Álaleiru fyrir parhús, sbr. umsókn dags. 12. 05. 2009.
3. Fjarskiptafélag Öræfa - ljósleiðari
Hjalti greindi frá málinu og hugmyndum að aðkomu sveitarfélagsins að því. Björn Ingi sagði það sína skoðun að sveitarfélagið ætti ekki að koma fjárhagslega að þessu máli, með jafnræði allra íbúa í huga. Benti m.a. á fyrirhugaða háhraðanettengingu Símans. Bæjarstjóra falið að vinna að málinu og leita frekari upplýsinga.
4. Auglýsing á starfi launafulltrúa
Hjalti greindi frá því að núverandi launafulltrúi hafi sagt starfi sínu lausu og jafnframt að auglýsa þurfi starfið. Einnig greindi hann frá hugmyndum um þjónustuver og breytta verkaskiptinu á fjármálasviði. Samþykkt að starf launafulltrúa verði auglýst.
5. Staða bæjarsjóðs 31. mars 2009
Hjalti greindi frá stöðunni eins og hún er 31. mars. Urðu töluverðar umræður um stöðuna og hugsanlegar sparnaðarleiðir.
6. Ávöxtun handbærs fjár sveitarfélagsins
Málið tekið fyrir og rætt. Frekari vinnslu vísað til starfsmanna og málið tekið upp aftur á næsta fundi.
7. Innra eftirlit sveitarfélagsins
Hjalti greindi frá vinnu við innra eftirlit og kynnti hugmyndir þar að lútandi.
8. Bílastæði að Hafnarbraut 2 – kostnaðaráætlun
Haukur Ingi fór yfir málið. Fram kom að kostnaðaráætlun sé kr. 380.000. Tveir bæjarfulltrúar af þremur samþykkja að fara í þessa framkvæmd, Björn Ingi sat hjá. Fé til framkvæmdarinnar verður tekið af óráðstöfuðu.
9. Innsend erindi
· Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, bréf dags. 7. maí 2009, krafa um að sveitarfélög og stjórnvöld hafi víðtækt samráð um þær aðgerðir sem grípa þarf til vegna ástandsins í efnahagsmálum.
Til kynningar.
· Jón Gunnlaugur Viggósson, tölvubréf dags. 7. maí 2009, ósk um styrk til að halda handknattleiksnámskeið.
Erindinu hafnað.
· Djúpavogshreppur, bréf dags. 7. maí 2009, breyttar áherslur varðandi meðferð úrgangs.
Reynir spurði hvort breyttar áherslur varðandi meðferð úrgangs hjá Djúpavogshreppi hefðu áhrif á útgjöld vegna urðunar sorps í Lóni. Haukur sagði þetta ekki hafa áhrif sem neinu nemi. Samþykkt að farið verði yfir samning við Djúpavogshrepp um urðun sorps.
· Samgönguráðuneytið/Jöfnunarsjóður, bréf dags. 8. maí 2009, tilkynning um greiðslur vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum 2009.
Til kynningar.
· ÍSÍ, tölvubréf dags. 8. maí 2009, ályktanir 69. íþróttaþings 17.-18. apríl.
Til kynningar.
· Skólahreysti, bréf í maí 2009, ósk um styrk.
Ósk um styrk hafnað.
· SSÁ, bréf í maí 2009, ósk um styrk í formi kaupa á Álfinum.
Vísað til bæjarstjóra.
· Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, bréf dags. 11. maí 2009, ósk um umsögn sveitarfélagsins um landskipti Skógeyjar vegna beiðni Sævars Kristins Jónssonar um staðfestingu ráðuneytisins á skiptunum, sbr. 13. gr. jarðalaga.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við landskipti Skógeyjar í Hornafirði.
· Önnur mál
· Rætt um þörf fyrir sendibíl við Áhaldahús. Bæjarráð samþykkir að starfsmönnum verði falið aða ganga frá kaupum á bifreið fyrir Áhaldahús.
· Björn Ingi spurðist fyrir um biðlista í leikskóla. Samþykkt að svara fyrirspurn á næsta fundi bæjarráðs.
· Reynir gerði að umtalsefni útsendingar frá bæjarstjórnarfundum sem hafi skilað sér illa á þessu ári. Óskaði hann eftir skýringum á þessu og að þetta verði lagfært.
· Samþykkt að boða fulltrúa útvegsmanna á næsta fund bæjarráðs.
Fundi slitið kl. 18:15


