Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 463
463. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 11. maí 2009 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Halldóra B. Jónsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Almannavarnanefnd Hornafjarðar, 33. fundur,4. maí 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 109. fundur, 6. maí 2009.
Halldóra bar upp spurningar sem lúta að bréflegum svörum vegna athugasemda sem fram hafa komið við breytingar á aðalskipulagi vegna nýs hringvegar og lagði til ákv. breytingar.
Bæjarráð samþykkir að vísa drögum að svörum til Lex lögmannstofu og Hanný Heiler til bæjarstjórnar með þeim breytingum sem gerðar voru við drögin á fundinum.
Halldóra ræddi um bílastæði við Hafnarbraut 2, sbr. fundargerð, og spurði hvort leyfi hafi verið til rekstrar í húsinu. Hjalti gerði grein fyrir ferli leyfisveitinga og Haukur Ingi benti á að starfsemi sem fram eigi að fara í húsinu sé í samræmi við skipulagsskilmála.
Reynir taldi að bílastæði á þessu svæði muni einnig nýtast annarri starfsemi á svæðinu.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 115. fundur, 4. maí 2009.
Haukur greindi frá undirbúningi að dælingu úr höfninni á Leirusvæði. Halldóra spurði hvernig eigi að tryggja öryggi barna á því svæði sem dælt verður á og taldi mikilvægt að bæjarbúar verði upplýstir um þessa framkvæmd. Haukur sagði að girt muni verða um svæðið. Einnig greint frá fundi Hjalta og Hauks með íbúum á Leirusvæði vegna þessarar dælingar.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur vegna fjölskyldustefnu, 22. fundur, 6. maí 2009.
Fundargerð samþykkt.
2. Ársreikningar 2008 - sbr. útsendur tölvupóstur
Farið yfir ársreikning 2008 og endurskoðunarskýrslu með ársreikningi og fyrirspurnum svarað.
Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningum 2008 til bæjarstjórnar.
3. Samningur um sorpurðunarsvæði í landi Syðri-Fjarðar
Hjalti greindi frá samskipum við landeigendur vegna sorpurðunar í landi Syðri-Fjarðar.
Bæjarráð samþykkir að starfsmaður Regula sitji í gerðardómi fyrir hönd sveitarfélagsins vegna krafna um auknar greiðslur fyrir sorpurðunarsvæði í landi Syðri-Fjarðar.
4. Breyting á sauðfjárveikivarnarlínum milli sóttvarnarsvæða
Bæjarráð mótmælir málsmeðferð og samráðsleysi Matvælastofnunar vegna tillagna stofnunarinnar um breytingar á varnarlínum milli sóttvarnarsvæða. Halldóra sagðist vera hissa á þessum tillögum Matvælastofnunar og lagði til að haldinn verði opinn fundur með bændum í sveitarfélaginu vegna málsins. Hjalti tók undir orð Halldóru um víðtækt samstarf við bændur vegna málsins en efaðist um stóran sameiginlegan fund á meðan sauðburður er í fullum gangi.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til atvinnumálanefndar.
5. Innsend erindi
· Þórey Bjarnadóttir f.h. Kvenfélagsins Óskar, bréf dags. 27. apríl 2009, ósk um aðgang að læstu herbergi að Hrollaugsstöðum sem geymslu fyrir kvenfélagið.
Vísað til starfsmanna
· Vinnumálastofnun, bréf dags. 30. apríl 2209, tilkynning um jákvæða afgreiðslu umsóknar til sérstaks átaksverkefnis „Girðingarvinna og önnur tilfallandi verkefni“.
Til kynningar.
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, bréf dags. 4. maí 2009, varðar fyrrverandi urðunarstað í Fjárhúsavík.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs og umhverfisnefndar.
· Mannréttindadómsstóll Evrópu, niðurstaða í máli Þorláks Arnar Bergssonar og fl. gegn Íslandi vegna ákvörðunar óbyggðanefndar um að skilgreina hluta jarða þeirra sem þjóðlendur.
Til kynningar.
· Kvenfélagið Vaka, bréf dags. 30. apríl 2009, áskorun til bæjarstjórnar um að stækka eldhús í Mánagarði.
Halldóra benti á að ekki hafi verið undirskrift á framangreindu bréfi og gerði við það athugasemd. Vísað til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2010.
6. Önnur mál
· Hjalti fór yfir greinargerð Fjarskiptafélags Öræfinga (FÖ) vegna möguleika á fjarskiptatengingum í Öræfum. Sagði hann málið verða tekið fyrir síðar.
· Halldóra spurðist fyrir ársreikning HSSA. Ásta sagði hann í vinnslu hjá endurskoðendum.
· Farið yfir starfsemi félagsþjónustunnar. Fram kom að fjárhagsaðstoð hefur ekki aukist á milli áranna 2008 og 2009 miðað við 4 fyrstu mánuði ársins. Tilkynningar til barnaverndarnefndar eru fleiri en var fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 en færri en á sama tíma 2007.
Fundi slitið kl. 17:45


