Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 461
461. fundur
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 10. fundur 25. mars 2009.
Árni spurðist fyrir um hvort eitthvað nýtt væri að frétta um menningarsamstarf milli sveitarfélagsins og sveitarfélaga á austurlandi. Hjalti gerði grein fyrir upplýsingum sem nú liggja fyrir. Björn Ingi spurðist fyrir um skipulagsbreytingar á bókasafni, Hjalti gerði grein fyrir breytingunum. Fundargerð samþykkt.
· Félagsmálaráð Hornafjarðar, 194. fundur 28. apríl 2009.
Reynir spurðist fyrir um hvort óskir um fjárhagslegan stuðning hafi aukist. Hjalti gerði grein fyrir því að sú aukning sem hefur orðið rúmist innan þess fjárhagsramma sem sveitarfélagið hefur gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 108. fundur 29. apríl 2009.
Bæjarráð fór yfir drög að svörum til þeirra sem gerðu athugasemd við breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar - Vegstæði yfir Hornafjarðarfljót. Umræður sköpuðust um fyrirhugaðar breytingar á starfsemi á Hafnarbraut 2. Gerð var grein fyrir því að erindi er að vænta frá húseiganda vegna málsins sem lagt verður fyrir byggingar- og skipulagsnefnd á næsta fundi nefndarinnar. Fundargerð samþykkt.
· Nefnd um íþróttamannvirki, 55. fundur 29. apríl 2009.
Bæjarráð ítrekar þakkir til nefndarmanna. Fundargerð samþykkt.
2. Ársreikningar 2008
Ársreikningur lagður fram.
3. Ákvörðun um kaup á knattspyrnumörkum
Farið var yfir það fjármagn sem úthlutað hefur verið af óráðstöfuðu frá bæjarráði og óráðstöfuðu af framkvæmdafé. Bæjarráð samþykkir að kaupa ný mörk og taka af óráðstöfuðu frá bæjarráði.
4. Samningur um sorpurðunarsvæði í landi Syðri-Fjarðar
Hjalti Þór fór yfir málið og gerði grein fyrir stöðu mála og lagt fram bréf frá Lex lögmannsstofu. Bæjarráð leggur til að Regula lögmannsstofa fari með málið fyrir hönd sveitarfélagsins.
5. Innsend erindi
· Vegagerðin, bréf dags. 22. apríl 2009, varðar greiðslu vegna vegahalds þjóðvega í þéttbýli.
Til kynningar.
· Orkustofnun, bréf dags. 22. apríl 2009, vatnsverndarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélaga.
Vísað til byggingarfulltrúa.
6. Önnur mál
Hlynur Pálmason kom á fundinn og lýsti hugmynd sinni um kynningarmyndband um sveitarfélagið Hornafjörð og ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls. Umræður sköpuðust um verkefnið. Hjalti gerði grein fyrir umfangi verkefnisins, tímaáætlun og áætluðum kostnaði við verkefnið, lagði Hjalti til að sveitarfélagið styðji við verkefnið með fjárhagslegum stuðningi. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og leggja fyrir drög að samningi fyrir bæjarráð.
Rætt var um nauðsyn þess að hreinsa rusl og fegra sveitarfélagið sem allra fyrst og reglulega.
Fundi slitið kl. 19:00


