Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 460
160. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 27. apríl 2009 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 50. fundur, 20. apríl 2009.
Stefán lagði fram bréf frá Vinnumálastofnun dags. 22.4 .09 þar kemur fram að samþykkt voru 3 störf í 4 mánuði hvert varðandi átaksverkefnið „Atvinnuátak Skógræktarfélags Íslands“
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 88. fundur, 20. apríl 2009.
Haukur upplýsti um stöðu mála varðandi flokkun á sorpi. Haukur minnir á málþing í Nýheimum 3. maí um umhverfismál.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 114. fundur, 22. apríl 2009.
Rætt var um skólaakstur og tómstundir barna í dreifbýli og kostnað vegna þessa. Stefán upplýsti um stöðu mála varðandi breytingar og endurbætur á Hafnarskóla.
Fundargerð samþykkt.
2. Minnisblað eftir fund vallarstjórnar íþróttavalla
Haukur ræddi um kaup á öðru setti af keppnismörkum til að hafa á Mánavöllum, kostnaður er um 500.000.- kr. Ákvörðun um kaup á mörkum frestað til næsta fundar.
3. Ósk um umsókn við endurnýjað rekstrarleyfi Jöklaveraldar ehf. vegna sölu gistinga og veitinga
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við leyfisveitinguna.
4. Innsend erindi
· Landgræðsla ríkisins, boð um fund þann 30. apríl nk. kl 13:00 vegna fyrirkomulags afhendingar landsvæða á Skógeyjarsvæðinu.
Samþykkt að Haukur Ingi Einarsson sitji fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
5. Önnur mál
· Bæjarráð samþykkir að veita 10% afslátt á árskorti í sundlaug Hafnar til 15. maí 2009 í tilefni opnunar sundlaugarinnar.
· Rætt var um leigusamning sem í gildi er um leigu á Hrollaugsstöðum. Bæjarráð samþykkir að segja upp núgildandi leigusamningi í samræmi við 8. grein samningsins.
· Bæjarráð telur mikilvægt að markaðssetja nýju sundlaugina með góðum og áberandi auglýsingum og felur starfsmönnum að koma með tillögur varðandi málið.
Fundi slitið kl. 17:20


