Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 222
222. Fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss, fimmtudaginn. 18. september 2003, kl 10:00
Mætt voru: Einar Karlsson, Reynir Arnarson, Elín Magnúsdóttir og Kristín Gestsdóttir sem áheyrnarfulltrúi
Einnig: Albert Eymundsson, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Inga Jóna Halldórsdóttir.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerðir
Almannavarnanefnd Hornafjarðar 23. fundur 9. september 2003.
Fundargerð samþykkt.
Félagsmálaráð Hornafjarðar 96. fundur 26. ágúst og 97. fundur 9. september 2003.
Bæjarráð vekur athygli á að frá og með opnun Þrykkjunnar á haustdögum er opnunartími hennar til 22 á föstudagskvöldum og því í fullu samræmi við löglegan útivistartíma unglinga. Í reglum um útivistartíma er undanskilin bein heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Skv. 57. grein laga nr. 58/1992 um vernd barna og ungmenna.
Fundargerð samþykkt.
Heilbrigðis- og öldrunarráð 43. fundur 27. ágúst 2003.
Fundargerð samþykkt.
Menningamálanefnd Hornafjarðar 49. fundur 10. september 2003.
Fundargerð samþykkt.
Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar 52. fundur 25. ágúst 2003.
Fundargerð samþykkt.
Heilbrigðisnefnd Austurlands 38. fundur 9. september 2003 til kynningar.
2. Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2003
Ásta lagði fram drög að endurskoðaðri tekjuáætlun 2003. Launagreiðslur í sveitarfélaginu fyrstu 6 mánuði ársins benda til þess að áætlanir um staðgreiðslu muni ekki standast heldur verða talsvert minni enn ráð var fyrir gert.
3. Tillögur um frágang Hafnarbrautar
Bæjarráð óskar upplýsinga um stöðu framkvæmda við Hafnarbraut og felur tækni- og umhverfissviði að útfæra nánar hugmyndir og tillögur að frágangi götunnar og leggja fyrir bæjarráð sem fyrst.
4. Lóðarumsókn
• Umsókn Gunnars Pálma Péturssonar dags. 9. september 2003.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Gunnari Pálma Péturssyni lóðinni að Bugðuleiru 4. Um gjaldtöku vegna lóðarúthlutunarinnar vísast til settra reglna.
5. Forkaupsréttur að hluta jarðarinnar Fell
• Bréf Jónasar Runólfssonar, dags. 2. september 2003.
Bæjarráð afsalar sér forkaupsrétti að hluta jarðarinna Fell og samþykkir aðilaskiptin.
6. Fundur með fjárlaganefnd Alþingis 29. september
Bæjarstjóri lagði fram minnisblað vegna fundar bæjarstjórnarfulltrúa með fjárlaganefnd Alþingis.
7. Innsend erindi og til kynningar
Bréf Haust vegna útgáfu vínveitingaleyfa, dags. 1. júlí 2003
Bæjarráð Hornafjarðar telur útgáfu vínveitingaleyfa í sveitarfélaginu vera í fullu samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Aðalfundarboð aðalfundar Eignarhaldsfélagsins Bunabótar dags. 10. júlí 2003
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum. Varamaður er Ólafur Sigurðsson.
Bréf Haust v. Heppuskóla dags. 23. ágúst 2003.
Bæjarráð vísar erindinu til tækni- og umhverfissviðs og fræðslu- og félagssviðs.
Bréf SSA ásamt gögnum frá aðalfundi, dags. 29. ágúst 2003.(gögn höfð sér)
Til kynningar.
Bréf Félagsmálráðuneytisins v. árs fatlaðra dags. 27. ágúst 2003
Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og félagssviðs.
Niðurstaða um daggjöld 30 manna hjúkrunarheimils, dags. 30. júní 2003.
Til kynningar.
Bókun bæjarstjórnar um tillögur starfshóps um Jöklasetur dags. 1. sept. 2003.
Bæjarráð telur rétt að bíða með frekari ákvarðanir varðandi Jöklasetur þar til fyrir liggur ákvörðun fjárlaganefndar um frekari stuðning við verkefnið.
Bréf Menntamálaráðuneytisins v. mats á skólastarfi dags. 2. september 2003.
Stefán kynnti stöðuna varðandi sjálfsmat á skólastarfi í sveitarfélaginu.
Bréf Menntamálaráðuneytisins v.tónmenntakennslu í grunnskólum dags. 3. september 2003.
Til kynningar.
Bréf fjárlaganefndar Alþingis v. funda með sveitarstjórnarfólki dags. 4. september 2003.
Bæjarstjóri gerði tillögu um að einn fulltrúi frá hverju framboði fari á fundinn auk bæjarstjóra.
Bréf Samb ísl. sveitarf. v. fjármálaráðstefnu sveitarfélaga, dags. 4. september 2003
Til kynningar.
Bréf Félagsmálaráðuneytisins v úthl úr Jöfnunarsjóði dags. 8. september 2003.
Til kynningar.
Yfirlit skólaskrifstofu yfir fjölda nemenda í skólum á Hornafirði eftir árgöngum.
Til kynningar.
8. Önnur mál
Beiðni um afhendingu viðskiptasamnings
Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir að fela lögfræðingi að fara yfir umbeðinn viðskiptasamning og meta hvaða hlutar hans verða yfirstrikaðir vegna fjárhags- eða viðskiptahagsmuna áður en afrit verður afhent 3ja aðila.
Það er markmið bæjarstjórnar að stjórnsýsla sveitarfélagsins sé opin og gagnsæ og réttur almennings til aðgangs að upplýsingum og gögnum í vörslu þess verði í samræmi við upplýsingalög nr. 50/1996.
Reynir ræddi um kaffiteríu í Nýheimum. Hann óskar eftir upplýsingum um aðkomu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar að rekstri kaffiteríunnar.
Fundi slitið kl. 12:40


