Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 459
459. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 20. apríl 2009 kl. 16:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, 7. apríl 2009.
Til kynningar.
· Starfshópur um endurskoðun aðalskipulags, 14. apríl 2009.
Fundargerð samþykkt.
2. Vátryggingar sveitarfélagsins
Bæjarráð felur starfsmönnum að fara yfir tryggingar sveitarfélagsins og leggja síðan aftur fyrir bæjarráð.
3. Tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Menningarráðs Austurlands 7. maí 2009
Samþykkt að Hjalti Þór Vignisson, Guðrún Ingimundardóttir og Björg Erlingsdóttir sitji fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. Auk þess er gert ráð fyrir að fundinn sitji aðal- og varamenn í stjórn ráðsins.
4. Tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Sláturfélagsins Búa 28. apríl 2009
Samþykkt að Ásgrímur Ingólfsson, formaður atvinnumálanefndar, sitji fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins og til vara Gunnar I. Valgeirsson.
5. Ósk um niðurgreiðslu/niðurfellingu leikskólagjalda
Samþykkt að umsækjandi haldi leikskólaplássi án greiðslu við tímabundna brottför af staðnum en hafnað að greiða fyrir pláss utan lögheimilissveitarfélags.
6. Innsend erindi
· Heilbrigðiseftirlit Austurlands, bréf dags. 3. apríl 2009, heildarúttekt á neysluvatni.
Til kynningar.
· Umferðarráð, tölvubréf dags. 8. apríl 2009, ályktun um bílastæði fatlaðra.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Skipulagsstofnun, tölvubréf dags. 15. apríl 2009, ráðstefnan „AÐ MÓTA BYGGГ, 30. apríl 2009.
Vísað til starfsmanna og byggingar- og skipulagsnefndar.
· Velferðarvaktin/Félags- og tryggingamálaráðuneytið, bréf dags. 8. apríl 2009, varðar vinnumarkaðsaðgerðir á vegum Vinnumálastofnunar.
Vísað til félagsmálaráðs og atvinnumálanefndar.
· Bændasamtök Íslands, bréf dags. 15. apríl 2009, kynning á skýrslu milliþinganefndar búnaðarþings um fjallskil.
Vísað til atvinnumálanefndar.
7. Önnur mál
· Við lok byggingar fyrsta áfanga nýrrar sundlaugar vill bæjarráð þakka nefnd um íþróttamannvirki, verktökum, hönnuðum og þeim starfsmönnum sveitarfélagsins sem að verkinu hafa komið fyrir vel unnin störf. Jafnframt felur bæjarráð nefnd um íþróttamannvirki að koma saman til lokafundar.
· Reynir benti á aða fara þurfi yfir upplýsingar á vef sveitarfélagsins, m.a. með tilliti til breytinga á nefndaskipan.
Fundi slitið kl. 16:55


