Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 458
458. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi þriðjudaginn 14. apríl 2009 kl. 17:00.
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundstóttir framkvæmdarstjóri fjármálasviðs, Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs og Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs.
1. Fundargerðir
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 114. fundur, 6. apríl 2009
Hjalti greindi frá fundi með íbúum á Leirusvæði, sbr. fundargerð. Sagði hann þann fund hafa verið góðan og gagnlegan. Fram kom það sjónarmið hjá bæjarráðsmönnum og bæjarstjóra að allt þurfi að gera til að koma fyrir fok lausra jarðefna á Leirusvæðinu. Einnig þurfi verktími að vera eins skammur og mögulegt er. Bæjarráð samþykkir að efni verði dælt upp á svæðið.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 101. fundur, 2. apríl 2009.
Hjalti ræddi samning um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu við heilbrigðisráðuneytið og stöðu þess máls.
Fundargerð samþykkt.
· Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 762. fundur, 26. mars 2009.
Til kynningar.
2. Gjaldskrá og reglur bókasafns
Gjaldskrá bókasafns og reglur bókasafns, sbr. útsend gögn, borin undir atkvæði og samþykkt með ákv. breytingum á 5. lið reglnanna.
3. Ósk um styrk vegna uppbyggingar stjórnstöðvar og aðstöðu Björgunarfélags Öræfa
Samþykkt að sveitarfélagið veiti styrk að upphæð krónur 300.000.-. Tekið af óráðstöfuðu.
4. Bygging leiguíbúða
(Gunnar Borgarsson var í síma undir 4. og 5. lið.) Gerði Gunnar grein fyrir teikningum af umræddu húsi og svaraði spurningu fundarmanna. Nokkur umræða skapaðist um staðsetningu þvottahúss, einkum hvort breyta eigi teikningunni með það að markmiði að þvottahúsið liggi að útvegg með sérinngangi. Einnig var rætt um hvernig húsið snúi á lóðinni. Hauki Inga falið að fylgja málinu eftir. Samþykkt að unnið verði að útboðsgögnum.
5. Sundlaug - 2. áfangi
Farið yfir útsend gögn, drög að teikningum að tengibyggingu sundlaugar og íþróttahúss.
6. Lóðarumsóknir
Sótt er um lóð nr. 14 við Álaleiru og var umsókn samþykkt.
Sótt er um lóð nr. 8a við Hagaleiru og var umsókn samþykkt.
Sótt er um lóð nr. 10a við Álaleiru og var umsókn samþykkt.
7. Skil Landgræðslu ríkisins á Skógeyjarsvæði
Farið yfir gögn frá Landgræðslu ríkisins sem lúta að umræddu svæði. Hjalti lagið til að stefnt verði að því að land sveitarfélagsins í Skógey (hlutur Austurhóls) verði girt af. Var undir þá skoðun tekið.
8. Staða bæjarsjóðs 28. febrúar 2009
Ásta fór yfir stöðuna.
9. Drög að samningi við Bólholt um rannsókn og hönnun á hreinsivirki fráveitu á Höfn og í Nesjum
Haukur Ingi fór yfir útsend gögn og greindi frá einstökum efnisatriðum. Björn Ingi gerði athugasemd við að ekki kæmi fram áætlun um fjölda tíma í sérfræðiþjónustu. Hjalti tók undir það og sagði að tímafjöldi þyrfti að koma fram. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Bólholt ehf. á grundvelli draga að samningi sem kynnt voru á fundinum að teknu tilliti til þeirra athugasemda sem fram komu.
10. Tilboð vegna breytinga á Hafnarskóla
(Björn Þór Imsland sat fundinn undir þessum lið.) Eitt tilboð barst í breytingar á Hafnarskóla, þ.e. frá Þingvaði ehf. sem bauð kr. 75.455.414.- Kostnaðaráætlun fyrir verkið var 65.638.455.-. Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Þingvað ehf. á grunni frávikstilboðs nr. 1.
11. Verkefni á vegum Skógræktarfélags Austur- Skaftafellssýslu
Hjalti greindi frá fundi með forsvarsmönnum Skógræktarfélags A.-Skaft. Þar hafi verið óskað eftir samstarfi við sveitarfélagið og fjárframlagi vegna skógræktarverkefna sem stefnt væri að í sumar. Bæjarráð samþykkir að fara í samstarf við Skógræktarfélagið vegna umrædds verkefnis.
12. Vinnuskóli sumarið 2009
Haukur Ingi lagði til að launagreiðslur í vinnuskólanum verði með sama hætti og undanfarin ár en jafnframt verði vinnuskólastarfið betur skilgreint sem slíkt, þ.e. námsþátturinn. Hauki Inga falið að skipuleggja starfið í samræmi við athugasemdir og ábendingar á fundinum.
13. Ósk um samþykki sveitarfélagsins á friðlýsingu landssvæðis í sveitarfélaginu sem mun verða innan Vatnajökulsþjóðgarðs
Bæjarráð samþykkir tillögur að friðlýsingu
14. Innsend erindi
· Jöklajeppar/Ís&ævintýri, bréf dags. 26.mars 2009, ósk um aðstoð sveitarfélagsins við að fá úthlutun fjármuna frá Vegagerðinni til endurbóta á vegi í Jöklasel.
Bæjarstjóra falið að fylgja erindinu eftir.
· Samahópurinn, tölvubréf dags. 30. mars 2009, hvatning til sveitarstjórna vegna barna og unglinga.
Til kynningar.
· Skipulagsstofnun, tölvubréf dags. 1. apríl 2009, samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaganna um skipulagsmál og umhverfismat 7.- 8. maí n.k. í Reykjanesbæ.
Vísað til tækni- og umhverfissviðs og byggingar- og skipulagsnefndar..
· Byggingar- og skipulagsnefnd, bréf dags. 6. apríl 2009, afgreiðsla á umsókn um staðsetningu á færanlegum kennslustofum og tengibyggingu á lóð Hafnarskóla.
Til kynningar.
· Sjóvá, bréf dags. 2. apríl 2009, vátryggingar sveitarfélagsins.
Hjalti lagði til að þakkað verði fyrir bréfið og bent á að þegar núverandi samningum um tryggingar rennur út verði stefnt að útboði.
· Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, bréf dags. í apríl 2009, Alþingiskosningar 25. apríl 2009, fyrirmæli og leiðbeiningar um meðferða kjörskrárstofna frá Þjóðskrá.
Til kynningar.
15. Önnur mál
· Kynnt drög að dagskrá við opnun nýrrar sundlaugar. Var nokkuð rætt um drögin. Samþykkt að breyta dagskránni í samræmi við ábendingar sem fram komu.
· Rætt um upphaf sumaropnunartíma laugarinnar.
Fundi slitið kl. 20:00


