Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 457
457. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 30. mars 2009 kl. 16.00
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Ásta H. Guðmundstóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 49. fundur, 20. mars 2009.
Bæjarráð tekur undir bókun nefndarinnar um smáframleiðslu á matvælum þess efnis að farið verði í þessa vinnu og hugmyndin kynnt sem víðasta meðal hagsmunaaðila. Björn Ingi benti á að markmiðssetning þyrfti að vera skýrari.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar,107. fundur, 18. mars 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 113. fundur, 25. mars 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar,9. fundur, 25. mars 2009.
Árni greindi frá því að unnið sé að breytingum á menningarsamningi, m.a. með fundum í menntamálaráðuneytinu. Bæjarráð lýsir ánægju sinni með vel heppnaða spurningakeppni fyrirtækja.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 113. fundur 24. mars 2009.
Rætt var um endurskoðun á skólastefnunni.
Fundargerð samþykkt.
2. Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis f. Víkina
Bæjarráð gerir ekki athugsemd við útgáfu leyfisins.
3. Útboð á göngustígagerð
Haukur kynnti ný gögn vegna útboðsins. Bæjarráð samþykkir að bjóða verkið út miðað við fyrirliggjandi gögn og þær ábendingar sem komu fram á fundinum. Bæjarráð áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
4. Drög að byggðaáætlun 2010-2013 http://www.byggdastofnun.is/static/files/Byggdaaetlun1013/Byggdaaaetlun_drog_i_vinnslu_090309.pdf
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að umsögn með ábendingum og athugasemdum við fyrirliggjandi drög að byggðaáætlun.
5. Gjaldskrá og opnunartími sundlaugar
Eftirfarandi tillaga að gjaldskrá sundlaugar og opnunartíma.
Fullorðnir Börn
Almennt gjald, stakur miði 350 kr. 150 kr.
15 miða kort 3.300 kr. 1.500 kr.
Árskort 25.000. kr. 10.150 kr.
Sturtugjald 220 kr. 100 kr.
Sundföt og handklæði - leiga 260 kr. 260 kr.
Opnunartími sundlaugar verði frá kl. 06:45 – 21:00 virka daga og 10:00 – 18:30 um helgar.
Jafnframt lagt til að frítt verði í sund fyrir alla fyrstu viku frá opnun nýrrar laugar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu skólanefndar með þeim breytingum að opnunartími um helgar verði 10:00 – 19:00 til 1. sept. 2009.
6. Gamla sundlaugin
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við hæstbjóðenda í gömlu sundlaugina, þeirra Ásbjörns Þórarinssonar og Vigdísar Vigfúsdóttur.
7. Endurnýjun tækja í þjónustumiðstöð – pallbíll
Samþykkt að kaupa pallbíl fyrir 1.600 þús m.vsk.
8. Ósk um styrk v. útgáfu Gautavíkurskýrslu
Bæjarráð hafnar beiðninni.
9. Innsend erindi
· Brunamálastofnun, bréf dags. 16. mars 2009, óleyfisíbúðir – eftirlit með framkvæmd sveitarfélaga.
Vísað til starfsmanna
· Þjóðskrá, bréf dags. 20. mars 2009, Alþingiskosningar 2009.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið – Jöfnunarsjóður, bréf dags. 20. mars 2009, tilkynning um endanlegt framlag vegna nýbúafræðslu 2009.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið, bréf dags. 24. mars 2009, svar við bréfi með bókun bæjarráðs Hornafjarðar vegna skerðingar á þjónustu Flugstoða ohf. á Hornafjarðarflugvelli.
Til kynningar.
· LEX lögmannsstofa, bréf dags. 26. mars 2009, athugasemnidir vegna breytinga á aðalskipulagi Hornafjarðar – vegstæði yfir Hornafjarðarfljót.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
10. Önnur mál
Fjármálastjóri kynnti tillögu að afskriftum á skuldum sem ekki hefur náðst að innheimta með aðstoð lögfræðings: Skuld við bæjarsjóð kr. 631.864 og hafnarsjóð 103.875. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um afskrift.
Rætt var um Fjarskiptasjóð og háhraðatengingar í dreifbýli.
Erindi frá Sigrúnu Ingu Sigurgeirsdóttir sem barst í tövlupósti dags. 30. mars þar sem óskað er eftir samstarfi við bæjaryfirvöld varðandi verkefnið „Fuglar á Suðausturlandi“. Bæjarráð lýsir yfir samstarfsvilja.


