Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 456
456. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 23. mars 2009 kl. 16.00
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundstóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Nefnd um íþróttamannvirki, 53. fundur 17. mars 2009.
Ákveðið að fara í vettvangsferð á morgun, þriðjudaginn 24. mars til að ákveða um opnunardag sundlaugar. Bæjarráð felur starfsmanni og arkitekt að klára kaup á búnaði í afgreiðslu. Samþykkt að starfsmenn ræði við Umf. Sindra um að þeir reki sjálfsala í anddyri sundlaugar. Jafnframt samþykkt að þetta verði gert í fyrstu til eins árs sem tilraun. Björn Ingi sagðist, þrátt fyrir þessa afgreiðslu, vera með ákveðnar áhyggjur um ónæði af sjálfsölum í sundlauginni.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð 23. landsþings Sambands ísl. sveitarfélaga 13. mars 2009 og lýsing á framsöguerindum.
Hjalti og Reynir greindu frá umræðum á landsþingi Sambands ísl. sveitarfélaga, einkum um fjármál sveitarfélaga og hvernig þau hafa þróast.
2. Lóðarumsókn
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar nr. 5A við Fákaleiru fyrir einbýlishús, sbr. umsókn dags. 12. mars 2009.
3. Tilboð í gömlu sundlaugina
Tvö tilboð bárust. Ásbjörn Þórarinsson og Vigdís Vigfúsdóttir buðu kr. 5.000.000.- með hugmynd um að setja þar upp steinasafn og Jón Björnsson sem bauð kr. 2.000.000.- með hugmynd um að koma á fót listamiðstöð, kaffihúsi ásamt lítilli hönnunar- og myndlistarbúð. Hjalti fór yfir tilboðin og hugmyndir bjóðenda um starfsemi í gömlu sundlauginni. Samþykkt að bæjarstjóri ræði við bjóðendur. Jafnframt samþykkt að Hvítasunnukirkjan fái heitan pott sem losna mun, sbr. umsókn.
4. Umsóknir um styrki
Styrkbeiðni fjögurra unglinga í Ungmennasambandinu Úlfljóti vísað til starfsmanna með jákvæðum undirtektum um styrk.
Styrkbeiðni vegna útgáfu á nótum af lögum Inga T. Lárussonar hafnað.
5. Jarðhitaleit
Undir þessum lið var rætt um möguleika á nýtingu heits vatns sem fundist hefur í Skaftafelli. Hjalti lagði áherslu á að nýta þurfi það vatn sem nú er til staðar í Skaftafelli. Vísað til starfsmanna að kanna möguleika á nýtingu þess vatns. Hjalti greindi frá áhuga nokkurra aðila í dreifbýlinu á jarðhitaleit. Rædd voru útsend drög að verksamningum þar sem Jarðfræðistofan Stapi tæki að sér framhald jarðhitaleitar í Suðursveit og á Mýrum. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Ómar Bjarka Smárason um að hann haldi utan um jarðhitaleitina sem ráðgjafi og jafnframt var samþykkt að leita sérstaklega tilboða í sjálfa jarðborunina.
6. Viðræður við heilbrigðisráðuneytið um þjónustusamning um heilbrigðis- og öldrunarmál
Undir þessum lið var m.a. tekið fyrir bréf framkvæmdaráðs HSSA þar sem settar eru fram tillögur um markmið með nýjum samningi um heilbrigðis- og öldrunarmál. Samþykkt að vísa þessum ábendingum framkvæmdaráðs til bæjarstjóra og þeirra starfsmanna sem vinna að samningsgerðinni. Hjalti fór yfir stöðu málsins, samskipti við heilbrigðisráðuneyti o.fl. atriði sem lúta að hugsanlegum samningi. Björn Ingi sagði mikilvægt að sveitarfélagið hafi skýr markmið um hvað það vill ná fram með nýjum samningi. Fór hann yfir ýmsa þætti sem að samningnum lúta, svo sem starfsmannamál og lífeyrisskuldbindingar, sjúklingatryggingar o.fl. Meirihluti bæjarráðs leggur áherslu á að endanleg drög að samningi liggi fyrir sem fyrst þannig að samningum verði lokið eigi síðar en 16. apríl nk.
7. Bygging leiguíbúða
Haukur Ingi fór yfir málið og greindi frá samanburði sínum á því að sveitarfélagið leigi annars vegar nýtt húsnæði eða kaupi sama húsnæði og leigi sjálft. Samþykkt að sveitarfélagið nýti fyrirliggjandi lánsloforð, eða hluta þess, um byggingu tveggja leiguíbúða með það að leiðarljósi að eiga þær íbúðir í skamman tíma. Markmiðið með þessu er að auka fjölbreytni á fasteignamarkaði og örva hann um leið. Jafnframt samþykkt að stefna að sölu a.m.k. fimm íbúða í kaupleigukerfinu á þessu ári. Bæjarráð verði jafnframt byggingarnefnd vegna þessara húsa. Undir þessum lið greindi Hjalti frá hönnunarvinnu við tengibyggingu við sundlaug/íþróttahús og hugmyndum um að byrja með gervigrasvöll sem fyrsta áfanga knattspyrnuhúss.
8. Grjótbrúarlind – framgangur mála
Haukur greindi frá stöðu málsins og samskiptum við Þórólf Hafstað sem kom að leit að fersku vatni fyrir Höfn á sínum tíma
9. Innsend erindi
· Hanný Heiler, bréf dags. 4. mars 2009, athugasemd vegna breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
· Menntamálaráðuneyti, bréf dags. 12. mars. 2009, Menningarlandið 2009 – ráðstefna í Stykkishólmi 11. og 12. maí 2009.
Vísað til menningar- og tómstundanefndar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 13. mars 2009, tillögur UST að laga- og reglugerðarbreytingum vegna hreindýraveiða.
Vísað til umhverfisnefndar.
· Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi, bréf dags. 13. mars 2009, varðar rekstur stundstaða með tilliti til ástands í samfélaginu.
Til kynningar.
· UMFÍ, bréf dags, 13. mars 2009, unglingalandsmót 2011.
Til kynningar
· Talnakönnun, bréf 14. mars 2009, áfallnar lífeyrisskuldbindingar sveitarfélagsins hjá LSR og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga.
Til kynningar.
· Umhverfisstofnun, bréf dags. 16. mars 2009, raf- og rafeindaúrgangur.
Til kynningar.
· Sýslumaðurinn í Stykkishólmi, bréf dags. 16. mars. 2009, málefni þjóðlenda.
Vísað til starfshóps um endurskoðun á aðalskipulagi.
10. Önnur mál
· Reynir greindi frá fundi með starfsmönnum Byggðastofnunar. Hvatti hann til þess að menn fylgdust með vef stofnunarinnar vegna væntanlegrar byggðaáætlunar.
· Reynir ræddi stöðu útibús Lyfju. Hjalti greindi frá stöðu málsins.
· Haukur ræddi sauðfjárveikivarnagirðingu í Nesjum frá Hornafjarðarfljótum að Arnarbæli og kynnti kostnaðaráætlun og viðræður við landeigendur á svæðinu um framkvæmdina. Bent á að girðingin eigi að vera á höndum Matvælastofnunar sem ekki hefur aðhafst neitt í málinu. Sveitarfélagið muni síðan sækja fé vegna framkvæmdanna til Matvælastofnunar, þ.e. þann hluta sem sveitarfélagið leggur til. Samþykkt að halda áfram með málið.
· Samþykkt að bæjarstjóri fari með umboð sveitarfélagsins á aðalfundi Frumunnar.
· Björn Ingi gerði að umtalsefni frétt um háhraðatengingar í dreifbýli og misvísandi skilaboð um hraða framkvæmda. Bæjarráð samþykkir að málið verði skoðað og tekið fyrir á næsta fundi.
· Árni spurði um hversu margir hafi nýtt tómstundakort. Fram kom að 94 einstaklingar hafi nýtt sér það. Árni óskaði eftir sundurliðun á því í hvaða tómstundum umsækjendur eru.
Fundi slitið. 18:05


