Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 455
455. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 16. mars 2009 kl. 16.00
Mættir voru: Árni Þorvaldsson formaður, Elín Magnúsdóttir og Halldóra B. Jónsdóttir.
Einnig: Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar 85. fundur, 10. mars 2009.
Bæjarráð tekur undir bókun húsnæðisnefndar um að vanda verði vel til vinnu við hugsanlega sölu á íbúðum úr kaupleigukerfinu.
Fundargerð samþykkt.
· Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 87. fundur, 12. mars 2009.
Bæjarráð vísar hugmyndum umhverfisnefndar um að skilgreina þurfi áhugaverð fuglasvæði til vinnu við aðalskipulag sveitarfélagsins. Haukur gerði grein fyrir hugmyndum að breytingum á fyrirkomulagi reglna um umhverfisviðurkenningu.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð suðursvæðis svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs frá 10. mars 2009.
Til kynningar.
2. Fráveitumál
Á fundinn mættu þau Helga Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands og Óskar Vignir Bjarnason framkvæmdastjóri Bólholts ehf. til að fara yfir hugmyndir að lausnum á fráveitukerfi o.fl. þætti sem snerta fráveitumál. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu í samvinnu við Bólholt.
3. Bygging leiguíbúða
Haukur Ingi greindi frá málinu. Starfmönnum falið að bera saman kosti og galla þess að kaupa parhúsin eða leigja þau og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
4. Þjónustusamningur um heilbrigðis- og öldrunarmál – gögn hafa verið send í tölvupósti
Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdarstjóri HSSA mætti undir þessum lið. Árni greindi frá því að vinna undanfarin misseri við þjónustusamninginn hefði fyrst og fremst snúist um forsendur fjármögnunar en ekki texta samningsins. Halldóra Bergljót harmar að fá ekki að fjalla um innihald þjónustusamningsins á þessum fundi eins og hún óskaði eftir þar sem formaður bæjarráðs vildi ekki heimila það. Hún lagði til að það yrði gert á næsta fundi bæjarráðs þar sem bæjarstjóri er fjarverandi. Halldóra Bergljót gerði grein fyrir því að í fyrri samningum við ríkið leiddi sveitarfélagið samningarviðræðurnar en því væri ekki til að dreifa núna. Halldóra telur að fara þurfi lið fyrir lið yfir texta samningsins. Hún benti á að markmið vantaði að hennar mati í samningsdrögin auk þess þarf að fara yfir starfsmannamál, árangursmælingar sjúklingatryggingar ofl sem ekki er nógu skýrt. Guðrún Júlía lagði áherslu á að HSSA verði með í þeirri vinnu sem nú fer fram hjá heilbrigðisráðuneytinu um árangursstjórnun. Þessi vinna sem fram fer í ráðuneytinu er mikilvæg til að mæla árangur þjónustusamningsins þegar fram líða stundir. Árni Rúnar lagði til að framkvæmdarráð HSSA vinni drög að markmiðasetningu og leggi fyrir næsta fund bæjarráðs og var sú tillaga samþykkt.
5. Innsend erindi
· Fljótsdalshérað, bréf dags. 3. mars 2009, aðalskipulag Fljótsdalshéraðs 2008-2028.
Til kynningar.
· Samband ísl. sveitarfélaga, bréf dags. 6. mars 2009, hagnýting niðurstaðna Forvarnardagsins 2009.
Vísað til félagsmálaráðs.
· Samgönguráðuneytið/Jöfnunarsjóður, bréf dags 2. mars 2008, heildaryfirlit yfir framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2008.
Til kynningar.
6. Önnur mál
Stefán kynnti drög að samningi um skólamáltíðir. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og felur starfsmönnum að ljúka við gerð hans og undirrita hann.
Fundi slitið kl. 18:30


