Bæjarráð
Fundargerð Bæjarráðs 453
453. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 2. mars 2009 kl. 16.00
Mættir voru: Árni Þorvaldsson, Reynir Arnarson og Halldóra B. Jónsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Byggingar og skipulagsnefnd, 106. fundur, 25. febrúar 2009
Haukur greindi frá vinnu nefndarinnar við aðalskipulag sveitarfélagsins og stöðu málsins almennt.
Fundargerð samþykkt
· Hafnarstjórn, 112. fundur, 25. febrúar 2009
Halldóra gerði að umtalsefni lágmarksdýpi innan hafnarinnar og spurði hvort hægt væri að ná 9 metrum, t.d. innan hafnar við stálþil. Hjalti sagði nýja þilið hannað fyrir 9 metra dýpi og Krosseyjarþil hannað fyrir 8 metra dýpi. Spurði Halldóra einnig hvort ekki þyrfti að gera nýja samninga við Siglingastofnun vegna aukins dýpis sem miðað hefur verið við 7,5 m samkvæmt upplýsingum bæjarstjóra. Var því svarað játandi.
Fundargerð samþykkt
· Heilbrigðis- og öldrunarráð, 100. fundur, 26. febrúar 2009 – fundargerð send út í tölvupósti að fundi loknum.
Fundargerð ekki borist og því tekin fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
· Menningar- og tómstundanefnd, 7. fundur, 9. febrúar 2009 (fundarg. óundirrituð)
Fundargerð samþykkt
· Skólanefnd, 112. fundur, 25. febrúar 2009
Halldóra fjallaði um könnun, sbr. fundargerð skólanefndar. Sagðist vera sammála niðurstöðu Sigríðar um að láta opnun leikaskólanna skarast, sagðist harma niðurstöðu skólanefndar. Þá taldi Halldóra að þessi skörun mundi ekki kalla á aukin útgjöld fyrir sveitarfélagið.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir að tillaga skólanefndar um sumarlokun leikskóla standi óbreytt, Halldóra sat hjá.
Fundargerð samþykkt
2. 3ja ára áætlun - gögn áður send
Hjalti greindi frá því að 3ja ára áætlun hafi ekki breyst frá fyrri umræðu í bæjarstjórn. Greindi hann frá því að allar áætlanir væru erfiðar við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu. Hann taldi að leggja ætti til grundvallar að framkvæmdir væru fyrst og fremst atvinnuskapandi en kölluðu síður á aukin rekstrarútgjöld.
3ja ára áætlun vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
3. Tengibygging milli sundlaugar og grunnskóla
Haukur Ingi fór yfir útsend gögn, hugmyndir að tengibyggingu milli sundlaugar og íþróttahúss og skóla. Reynir lagði áherslu á að menn færu vel í genum allar hugmyndir að þessari tengibyggingu áður en hönnun hefst. Halldóra sagði þessar hugmyndir nokkuð í samræmi við hugmyndir sem ræddar voru í byggingarnefnd íþróttamannvirkja á sínum tíma. Lagði hún áherslu á að liggja þurfi til grundvallar hvað/hvernig nýta eigi húsið til framtíðar. Ræddi meðal annars um möguleika á líkamsræktarstöð, sem kæmi á 2. hæð, nýjum búningsklefum og opnari aðkomu að sundlaug og íþróttahúsi. Hjalti taldi að klárlega vantaði sal í tengslum við íþróttahúsið sem kæmi á neðri hæð. Spurði hvort ástæða væri til að ganga á búningsklefa í íþróttahúsi og byggja í stað þess nýja og dýra búningsklefa í tengibyggingu. Reynir sagðist taka undir þau sjónarmið að bæta aðkomu að núverandi íþróttasal sem m.a. er notaður undir ýmsar hátíðir á vegum íbúa. Þá taldi hann að ekki ætti að byggja nýja búningsklefa í stað þeirra sem nú eru til staðar í íþróttahúsi. Halldóra sagðist ekki leggja til að búningsklefar hyrfu og geymslur kæmu í staðinn heldur mætti nýta gömlu búningsklefana fyrir þyngri líkamsræktartæki og hina sem búningsaðstöðu vegna útiíþrótta.
4. Útboð/framkvæmdir við Grunnskóla Hornafjarðar
Starfsmenn greindu frá stöðu mála við útboð á framkvæmdum við skóla sveitarfélagsins. Sköpuðust nokkrar umræður um þessar framkvæmdir, útboðsgögn og kostnaðaráætlanir vegna verkanna. Gerði Halldóra athugasemdir við að ekki liggi fyrir kostnaðaráætlanir fyrir einstaka liði framkvæmdarinnar. Hjalti sagði að vinna við kostnaðaráætlun væri unnin samfara vinnu við útboðsgögn þegar öll efnisatriði væru fram komin.
5. Útboð á skólamáltíðum – tilboð kynnt
(Ásta og Árni viku af fundi undir þessum lið.)
Eftirfarandi fjögur tilboð bárust í skólamáltíðir 2009 – 2012, sbr. fundargerð frá opnun tilboða, dags. 2. mars 2009:
| Heildarupphæð fyrir | Heildarupphæð í matsal í 3 skólaár | |||
| Nöfn bjóðenda: | 131.382 skammta í 3 ár | fyrir nemendur í 7. - 10. bekk | ||
| Hótel Höfn | 63.720.270 | Ekkert tilboð barst. | ||
| KaffiHornið | 75.019.122 | 0 krónur | ||
| Veitingastaðurinn Víkin | 55.837.350 | 3.990.000 | ||
| Hótel Jökull | 72.128.718 | Ekkert tilboð barst. |
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu í samræmi við útboðið.
6. Samvinna í menningarmálum
Hjalti greindi frá fundum sem fram hafa farið um málið, samskiptum við menningarfulltrúa á Suðurlandi og Austurlandi sem og fulltrúa í menntamálráðuneyti. Hann sagði það sína skoðun að stefna ætti að sem mestri samvinnu á kjördæmavísu. Samþykkt að bæjarstjóri riti menningarfulltrúum Suðurlands, Austurlands og fulltrúa menntamálaráðuneytis bréf þar sem óskað verði eftir viðræðum um framtíð samstarfs í menningarmálum.
7. Ágangur sjávar og fallvatna/jökulvatna
Farið yfir minnisblað framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs sem varða málið. Reynir lagði áherslu á að sérfræðingar á sviði jöklarannsókna verði kallaðir til að gefa álit á mögulegum hættum sem stafað gætu af breytingum á Vatnajökli.
8. Fjárhagsáætlun HSSA
Ásta og Hjalti fóru yfir áætlunina sem gerir ráð fyrir tekjum upp á 445.220.000 og gjöldum að upphæð kr. 453.567.000. Halli verði því samkvæmt áætluninni krónur 8.347.000. Einnig greindi Hjalti frá viðræðum við heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti um nýjan þjónustusamning um heilbrigðismál. Halldóra sagði óviðunandi að skila fjárhagsáætlun HSSA með tapi því þannig væru íbúar að tvíborga fyrir hluta þjónustunnar. Hún sagðist ekki geta tekið afstöðu til nýs þjónustusamnings á þessari stundu þar sem engin gögn lægju fyrir. Hjalti tók undir þessi orð Halldóru um hallarekstur en sagði að búið væri að fara alveg niður undir þolmörk þjónustunnar. Árni sagði fjárhagsáætlunina endurspegla þá grunnþjónustu á þessu sviði í sveitarfélaginu sem verði að vera til staðar og það væri ríkisins að standa undir henni. Fjárhagsáætlun HSSA vísað til bæjarstjórnar.
9. Innsend erindi
- Samgönguráðuneytið - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga,20. febrúar 2009, áætlanir um úthlutun framlaga á árinu 2009
Til kynningar.
· Hagstofa Íslands o.fl., 23. febrúar 2009, fjármál sveitarfélaga.
Vísað til fjármálsviðs.
· Jón Friðrik Sigurðsson, 24. febrúar 2009, aðstoð við kaup á malbikunarstöð.
Beiðni sem fram kemur í bréfinu hafnað.
· Samgönguráðuneytið, 25. febrúar 2009, bæir í sveitarfélaginu sem verða háhraðatengdir.
Starfsmönnum falið að fara yfir listann sem til umfjöllunar er. Bæjarráð fagnar þessum áfanga. Bæjarstjóra falið að koma fram athugasemdum við ráðuneytið um að íbúar á Mýrum séu undanskildir í þessum áætlunum.
· Orkusetur iðnaðarráðuneytisins, 25. febrúar 2009, bætt einangrun íbúðarhúsa í eigu sveitarfélaga.
Erindinu vísað til tækni- og umhverfissviðs. Undir þessu var rætt um hvað gerist hjá þeim íbúum sem nú kynda með raforku og njóta niðurgreiðslna þeirra vegna ef heitt vatn verður lagt til sveitarfélagsins í framtíðinni. Bæjarstjóra falið að kynna sér málið.
· Flugstoðir, 25. febrúar 2009, þjónustustig tiltekinna flugvalla vegna sparnaðarráðstafana.
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af fyrirætlunum Flugstoða að skerða þjónustu og hugsanlega að draga úr öryggi íbúanna með því að takmarka opnun Hornafjarðarflugvallar. Þá mótmælir bæjarráð því að ekkert samráð hafi verið haft við sveitarfélagið þegar ákvörðun sem þessi var tekin. Ríkisstofnunum og ríkisfyrirtækjum beri eðlileg skylda að hafa samráð við sveitarfélög þegar breytingar verða nauðsynlegri þjónustu. Mikilvægi Hornafjarðarflugvallar í öryggismálum og sjúkraflugi á þessu svæði landsins verður ekki dregið í efa.
10. Önnur mál
Hjalti greindi frá samtali við aðila í byggingariðnaði vegna hugmynda um byggingu leiguhúsnæðis. Samþykkt að skoða málið áfram.
Fundi slitið kl. 18.25


