Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 452
452. fundur
Yfirlit
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 23. febrúar 2009 kl. 16.00
Mættir voru: Árni Þorvaldsson, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, Haukur Ingi Einarsson.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
- Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 48. fundur 19. febrúar 2009, óundirrituð fundargerð.
Árni lagði áherslu á að atvinnumálanefnd héldi vöku sinni um atvinnuástandið. Reynir benti á að væntingar um loðnuvertíð hefðu brugðist sem kynni að hafa áhrif á atvinnuástand.
Fundargerð samþykkt.
- Umhverfisnefnd Hornafjarðar, 85. fundur, 19. febrúar 2009.
Haukur Ingi gerði grein fyrir hugmyndum um endurskoðun á gjaldtöku á fyrirtæki og þannig að hvetja fyrirtæki til aukinnar flokkunnar.
Fundargerð samþykkt.
2. Málefni Uppsala
Bæjarráð ítrekar þá ákvörðun sína að beita sér ekki fyrir breytingu á skráningu hjá fasteignamati ríkisins. Rökin eru þau að fyrirliggjandi gögn um upphaflega skiptingu Uppsalajarðarinnar og landamerki við skipti jarðarinnar eru óljós og ekki óumdeild. Bæjarstjóra falið að skrifa bréf til þinglýstra eigenda Uppsala.
3. Sauðfjárveikivarnir
Mikil umræða skapaðist um sauðfjárveikivarnarlínu við Hornafjarðarfljót. Bæjarráð leggur þunga áherslu á að ráðist verði í úrbætur við varnarlínuna. Bæjarráð er tilbúið að leggja út fyrir framkvæmdum ef vilyrði verði gefin út af ráðuneyti og stofnunum um að framkvæmdin verði greidd út eftir samkomulagi við bæjarráð.
4. 3ja ára áætlun
Lögð fram drög að áætlun um rekstrarkostnað og stofnkostnað fyrir færslu þjóðvegar í þéttbýli, moltugerð, þriðja áfanga hellulagnar á Hafnarbraut, stofnkostnað vegna Listasafns Svavars Guðnasonar, malbikunarframkvæmdir á götum og plönum, grófhreinsun á fráveitu, viðhaldi eigna, vallarhúsi við Sindravelli, knattspyrnuhús, innisundlaug, tengibyggingu á milli Heppuskóla og nýrrar sundlaugar, uppbyggingu aðstöðu fyrir list- og verkgreinakennslu, endurbótum á leikskólum, gervigrasvöll og úrbætur á urðunarsvæði í Lóni.
Bæjarráð ákveður að hefja undirbúning að næsta áfanga sundlaugar og taka fyrir á næsta fundi.
5. Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfa
- Umsókn um leyfi vegna góuhófs í Hofgarði 8.mars 2009.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
- Umsókn um leyfi vegna árshátíðar Nemendafélag FAS í Sindrabæ 28. febrúar 2009.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
6. Grjótnámur í skipulagi sveitarfélaga - mælikvarðar fyrir ábyrga stjórnun
Haukur Ingi gerði grein fyrir samtali við nema sem vinnur að setningu þessara mælikvarða.
Haukur Ingi fór yfir skilmála fyrir uppbyggingu húsa á Leirusvæði. Sagði hann að reglurnar væru samþykktar en ætti eftir að auglýsa lóðirnar lausar. Lagði til að skilmálar væru óbreyttir og lóðirnar auglýstar þegar lóðar og hæðarblöð liggja fyrir innan tveggja vikna.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa allar lausar lóðir hjá sveitarfélaginu til úthlutunar.
8. Sorpmál
(Stefán mætti á fundinn undir þessum lið).
Lagt fram bréf frá Þorbjörgu Arnórsdóttur, dags. 23. febrúar 2009, þar sem lýst er yfir áhyggjum af sorpmálum í kjölfar þess að settar voru upp grenndargámastöðvar í sveitunum í stað gáma. Rætt um þjónustu við fyrirtæki í sveitum og eyðingu á dýrahræjum. Haukur Ingi rakti samtöl sín við fjölmarga aðila í sveitum um þetta verkefni. Sagði líka að á næstunni yrði farið af stað með söfnun á brotajárni, timbri og rúlluplasti. Eins yrði staðsettur gámur fyrir lífrænan úrgang í hverri sveit.
Bæjarráð leggur áherslu á verkefnið er til komið til að draga úr magni urðaðs sorps en leggur áherslu á að vinna að innleiðingu þessara breytinga í sem mestri sátt við íbúa. Jafnframt felur bæjarráð starfsmönnum að gera tillögur að framfaraverkefnum í dreifbýli og leggja fyrir á næstu fundum.
9. Innsend erindi
- Landsskrifstofa Staðardagskrár 21, bréf dags. 12. febrúar 2009, landsráðstefna Staðardagskrár 21, 21. mars 2009 í Stykkishólmi.
Samþykkt að framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs sæki ráðstefnuna.
- Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 16. febrúar 2009, minnisblað eftir fund með samgönguráðherra 13. febrúar 2009.
Til kynningar.
- KSÍ, tillaga að ályktun 63, ársþings – stuðningur sveitarfélaga við íþróttastarf.
Til kynningar.
- Samband ísl. sveitarfélaga, boðun XXIII. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
10. Önnur mál
- Hjalti upplýsti um samskipti sín við rekstraraðila við Jökulsárlón og Sameignarfélagið Fell. Sagði að stefnt væri að fyrsta fundi um gerð deiliskipulags um miðjan mars mánuð. Bæjarráð fagnar þessum áfanga.
- Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við menningarfulltrúa á Austurlandi og deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu um samstarf sveitarfélagsins Hornafjarðar við önnur sveitarfélög í menningarmálum. Árni lýsti þeirri skoðun sinni að honum þætti rétt að stefna að samvinnu við sveitarfélög á Suðurlandi. Hjalti upplýsti að hann hygðist reyna að koma á fundi með menningarfulltrúa á Suðurlandi og Austurlandi ásamt fulltrúa ráðuneytis.
- Hjalti gerði grein fyrir tilboði leigufélags í nær allar íbúðir sveitarfélagsins. Gerði grein fyrir samskiptum við tilbjóðendur. Bæjarstjóra falið að halda áfram viðræðum við tilbjóðendur.
Fundi slitið kl. 18.20


