Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 450
450. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 9. febrúar 2009 kl. 16.00 Mætt voru: Árni Þorvaldsson, Reynir Arnarson og Björn Ingi Jónsson.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir og Stefán Ólafsson.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 104. fundur 4. febrúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar, 111. fundur 3. febrúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Húsnæðisnefnd Hornafjarðar, 84. fundur 3. febrúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
2. Heilsugæslu- og öldrunarmál
Bæjarstjóri kynnti drög að bréfi til félagsmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis sem varðar nýjan þjónustusamning um heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga frá bréfinu og senda það til framangreindra ráðuneyta.
3. Fjarskipti í dreifbýli
Bæjarstjóri greindi frá stöðu netvæðingar í dreifbýli og velti upp hugmyndum um framhald þess máls. Fram komu í umræðum um málið ýmsar ábendingar sem hafa þarf í huga við netvæðingu í dreifbýli. Samþykkt að málið verði áfram til skoðunar hjá starfsmönnum sveitarfélagsins. Undir þessum lið var samþykkt, sbr. fyrri samskipti um málið, að árétta við útvarpsstjóra að sett verði upp RDS kerfi í sveitarfélaginu.
4. Bráðabirgðauppgjör bæjarsjóðs 31.desember 2008
Ásta fór yfir bráðabirgðauppgjör og skýrði einstaka liði. Bæjarráð óskar eftir skýringum frá forstöðumönnum á útgjaldaliðum sem ekki standa áætlun.
5. Ósk um umsögn á endurnýjun gisti- og veitingaleyfis
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu gisti- og veitingaleyfis.
6. Innsend erindi
Menntamálaráðuneytið, bréf dags. 26. janúar 2009, tilkynning um úttektir á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla.
Vísað til skólanefndar og starfsmanna.
Vegagerðin, bréf dags. 30. janúar 2009, umsögn vegna aðalskipulagsbreytingar- Vegastæði yfir Hornafjarðarfljót.
Til kynningar.
Umhverfisstofnun, bréf dags. 30. janúar 2009, endurskoðun starfsleyfis eða lokun urðunarstaðar.
Vísað til umhverfisnefndar.
Samband ísl. sveitarfélaga, tölvubréf dags. 3. febrúar 2009, ráðstefnan íslensk byggðamál á krossgötum, ráðstefna 20. febrúar 2009 í Borgarnesi.
Samþykkt að bæjarstjóri sitji fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Jóhanna Guðmundsdóttir, tölvubréf dags. 3. febrúar 2009, vegur á Ægissíðu.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
Kári G. Schram, tölvubréf dags. 4. febrúar 2009, þáttagerð í A-Skaft. 2009.
Bæjarráð samþykkir að hafna tillögum bréfritara.
7. Önnur mál
· Hjalti greindi frá hugmyndum sem komið hafa inn á hans borð um nýtingu á gömlu sundlauginni. Hjalti lagði til að sundlaugin verði auglýst, með því móti komi í ljós hver raunverulegur áhugi er á að nýta mannvirkið. Var það samþykkt með þeim fyrirvara að komi ekki fram raunhæfar hugmyndir um nýtingu mannvirkisins verði laugin rifin sem er í samræmi við fyrri samþykkt bæjarráðs.
· Árni spurðist fyrir um aðstöðu unglingahljómsveita til æfinga. Hjalti greindi frá í hvaða farvegi málið er.
· Bæjarstjóri gerði að umtalsefni sauðfjárveikivarnalínu við Hornafjarðarfljót og hugmyndir um úrbætur.
· Reynir greindi frá heimsókn til Vestmannaeyja þar sem sérstakt tölvuver „fablab“ var m.a. skoðað. Reikna má með að Vestmannaeyingar komi hingað og endurgjaldi heimsóknina
· Reynir greindi frá sýnatöku vatns við Grjótbrú. Fram kom að vatn er þar hreint og gott. Magn hefur enn ekki verið mælt.
Fundi slitið kl. 18:00


