Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 449
449. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 2. febrúar 2009 kl. 16.00 Mætt voru: Reynir Arnarson varaformaður Guðrún Ingimundardóttir og Björn Ingi Jónsson. Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
Varaformaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 47. fundur 29. janúar 2009.
Undir þessum lið var rætt um atvinnuleysi það sem er á Hornafirði, um 30 manns eru án vinnu. Bæjarstjóra falið að ræða þessa stöðu og möguleg úrræði, sbr. meðfylgjandi bréf atvinnumálanefndar, við starfsmann Vinnumálastofnunar sem væntanlegur er á staðinn í þessari viku.
Fundargerð samþykkt.
· Skólanefnd Hornafjarðar, 111. fundur 29.janúar 2009.
Björn Ingi velti upp þeim möguleika hvort gera ætti könnunina einnig á meðal foreldra sem ekki eiga börn í leikskóla í dag en koma til með að eiga börn í leikskóla í haust. Einnig ræddi hann um áhrif sem sumarlokun hefur á atvinnulífið. Guðrún lagði áherslu á að þessi könnun verði framkvæmd, á henni megi síðan byggja ákvörðun um framhaldið.
Bæjarráð leggur áherslu á að vinnu við hönnun og undirbúning framkvæmda við Grunnskóla Hornafjarðar verði hraðað enda þær þegar komnar verulega fram úr áætluðum tíma.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur um fjölskyldustefnu, 16. fundur 22. janúar 2009.
Fundargerð samþykkt.
· Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga, 760. fundur 23. janúar 2009.
Til kynningar.
2. Sala jarðhitaréttinda
Bæjarráð fellst á umrætt framsal jarðhitaréttinda eigenda jarðanna í Miðfelli, Hoffelli I Hoffelli I (Lágafelli), Hoffelli II, og Birkifelli í Nesjum til RARIK ohf.
3. Myndverk Svavars Guðnasonar
Bæjarráð samþykkir drög að svarbréfi til Karls Ómars Jónssonar og eftirfarandi bókun:
Bæjarráð Hornafjarðar þakkar af alhug þann velvilja Karls Ómars Jónssonar og erfingja Ástu Eiríksdóttur að ætla að ánafna listaverkum og öðrum munum úr dánarbúi hennar og Svavars Guðnasonar til sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir skilyrði þau sem Karl Ómar setur fyrir gjöfinni og lýsir yfir vilja sínum að heiðra minningu þessara hjóna í hvívetna.
4. Leiguíbúðir
Hjalti og Haukur Ingi greindu frá stöðu mála. Samþykkt að þeir haldi áfram með könnun málsins.
5. Úthlutun styrkja 2009
Björn Ingi taldi að styrkur til Hornfirska skemmtifélagsins mætti vera hærri miðað við ýmsa aðra styrki sem veittir eru. Guðrún sagði að úthlutun styrkja í menningar- og tómstundanefnd væru allir samþykktir samhljóða, fyrr væri ekki lokið við úthlutun. Töluverð umræða varð um þessar úthlutanir og bent á að margt gæti orkað tvímælis þegar úthlutað væri til einstakra umsækjenda. Bæjarráð staðfestir úthlutun nefnda á styrkjum. Úthlutun styrkja fer fram föstudaginn 6. febrúar.
6. Innsend erindi
Fljótsdalshérað, bréf dags. 22. janúar 2009, breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Til kynningar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, bréf dags. 22. janúar 2009, varðar lögreglusamþykktir sveitarfélaga.
Samþykkt að starfsmenn fari yfir þetta mál.
Íþróttasamband fatlaðra, tölvubréf dags. 23. janúar 2009, námskeiðí vetraríþróttum fyrir fatlaða á Akureyri, 13.-15.febrúar 2009.
Vísað til félagsmálaráðs.
Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 27. janúar 2009, megináherslur í úrgangsmálum.
Vísað til umhverfisnefndar.
7. Önnur mál
· Reynir gerði að umtalsefni áður fram komnar hugmyndir um alþjóðalega ráðstefnu um jökla og loftslagsbreytingar. Samþykkt að bæjarstjóri haldi áfram með þetta mál.
· Björn Ingi spurðist fyrir um framkvæmdir á Leirusvæði og tafir á verkinu. Haukur greindi frá ástæðu seinkunar, sbr. skýringar verktaka.
· Hjalti gerði að umtalsefni æfingaaðstöðu fyrir hljómsveitir í Sindrabæ og hugmyndir skólastjóra Tónskólans um þau mál. Einnig ræddi hann um möguleika á æfingaaðstöðu fyrir hljómsveitir í kjallara Vöruhúss.
· Hjalti greindi frá fundi í félagsmálaráðuneytinu um þjónustusamning um heilbrigðismál.
Fundi slitið kl. 18:05


