Bæjarráð
Fundargerð bæjarráðs 448
448. fundur
Fundur haldinn í bæjarráði Hornafjarðar í Ráðhúsi mánudaginn 26. janúar 2009 kl. 12.00 Mætt voru: Árni Þorvaldsson formaður, Reynir Arnarson og Halldóra B. Jónsdóttir.
Einnig: Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Ásta H. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson og Haukur Ingi Einarsson.
1. Fundargerðir
· Atvinnumálanefnd Hornafjarðar, 46. fundur 21. janúar 2009.
Hjalti greindi frá því að 30 manns væru á atvinnuleysisskrá og lagði fram minnisblað um málið. Þá greindi hann frá væntanlegri heimsókn forstöðumanns Vinnumálastofnunar á Egilsstöðum hingað á næstunni.
Halldóra sagði ánægjulegt að sjá fjölda umsókna í atvinnu- og rannsóknasjóð. Þá óskaði hún eftir að fá nánari upplýsingar um umsækjendur og hverjir hafi fengið úthlutað. Hjalti sagði að allir sem sóttu um hafi fengið styrk og að Halldóra fengi yfirlit.
Fundargerð samþykkt.
· Byggingar- og skipulagsnefnd Hornafjarðar, 103. fundur 14. janúar 2009.
Halldóra greindi frá upplýsingum af fundi þriggja ráðherra um samgöngumál sl. föstudag. Samkvæmt þeim upplýsingum hafi Vegagerðin ætlað að hefja framkvæmdir í þeim þáttum samgöngumála sem tilbúnir væru. Velti hún upp hver staða fyrirhugaðs vegar um Hornafjarðarfljót.
Halldóra sagði að ekki hafi verið gerðar nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi vegna nýs kirkjugarðs og að ekki hafi verið tekin ákvörðun um staðsetningu. Árni sagði að enn væri bara hugmyndavinna í gangi vegna þessa málsog benti á að unnið væri að málinu í samstarfi byggingar- og skipulagsnefndar og sóknarnefndar.
Halldóra spurðist fyrir um kaupverð á Hafnarbraut 40 og hvort sú ákvörðun hafi byggt á fjárhagsáætlun. Lagði hún áherslu á að svo þyrfti að vera, svo stóra breytingu ætti að leggja fyrir bæjarstjórn. Hjalti lagði áherslu á að full samstaða hafi verið um þessi kaup í bæjarráði en fjármagn til þessara húsakaupa ekki verið á fjárhagsáætlun. Árni lagði áherslu á samstöðu bæjarráðs um málið.
Fundargerð samþykkt.
· Heilbrigðis- og öldrunarráð Hornafjarðar, 99. fundur21. janúar 2009.
Halldóra sagði svör við spurningum um heilbrigðismál hafi að hennar mati verið fremur þunn. Hún óskaði eftir svörum við því hvort HSSA eigi að falla undir Heilbrigðisstofnun Suðurlands eða að vera sjálfstæð stofnun sem félli beint undir ráðuneytið. Hjalti sagði ný heilbrigðisumdæmi vera afleiðingu af nýjum lögum. Hann sagði megináherslu hafa verið lagða á að sveitarfélagið verði áfram með þjónustusamning um þennan málaflokk og að framlög yrðu ekki skert umfram aðrar heilbrigðisstofnanir. Taldi hann einnig kost vera að eiga um þau mál samskipti við yfirstjórn á Selfossi. Halldóra sagðist telja betra að Suðausturland væri sérstakt heilbrigðisumdæmi sem félli undir ráðuneytið með sérstökum þjónustusamningi. Halldóra óskaði upplýsinga um upplýsingabækling um félags- og heilbrigðismál sem enn hefði ekki litið dagsins ljós. Árni lagði áherslu á að tryggð verði áframhaldandi sjálfstjórn Hornfirðinga yfir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Einnig lagði hann áherslu á að viðhalda sambærilegu þjónustustigi og verið hefur.
Fundargerð samþykkt.
· Menningar- og tómstundanefnd Hornafjarðar, 6. fundur 21. janúar 2009.
Halldóra óskaði eftir yfirliti yfir styrki sem sótt hefur verið um til sveitarfélagsins. Vegna þess sem fram kemur í bókun nefndarinnar benti Halldóra á að fjárhagsáætlun hafi ekki verið samþykkt, öfugt við það sem fram kemur í fundargerðinni. Halldóra spurði hvort einhverjar breytingar verði á samstarfi um menningarmál við Austurland með aðild okkar að SASS. Spurði einnig hvort þetta skipti máli fjárhagslega. Árni sagðist þær breytingar að hverfa úr SSA í SASS hefði í för með sér að skoða þyrfti samstarfssamninga um menningarmál áður en núgildandi samningur rennur út. Hjalti sagði að vera okkar í SASS leiddi til breytinga á samstarfi um menningarmál og hugsanlega einnig um vaxtarsamning þó ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. Halldóra spurði um aðstöðu fyrir ungar hljómsveitir til æfinga. Hjalti greindi frá fundi með ungum hljómsveitarmönnum um þetta mál. Þá greindi hann frá fyrirhuguðum fundi með skólastjóra tónskólans um málið. Einnig greindi hann frá þeim möguleikum sem kannaðir hafa verið í stöðunni. Reynir taldi að hljómsveitir ættu að geta æft áfram í Sindrabæ með ákveðnum reglum um umgengni o.fl. Sagði Halldóra að hljómsveitir ættu best heima í Sindrabæ í sátt og samlyndi við skólann.
Fundargerð samþykkt.
· Stýrihópur um fjölskyldustefnu, 15. fundur 15. janúar 2009.
Halldóra spurðist fyrir um hvort fundargerðir starfshópa færu á netið. Var upplýst að það hafi almennt verið gert en einhver misbrestur gæti hafa orðið á því.
Fundarger ð samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun 2009
Hjalti fór yfir áætlunina og sagðist hann hafa áhyggjur af rekstrarkostnaði og hvort endar muni nást saman á árinu. Halldóra sagðist hafa viljað sjá sundurliðun á framkvæmdum í grunnskóla og tónskóla. Þá óskaði hún eftir upplýsingum um stöðu framkvæmda við sundlaug og aðrar framkvæmdir og stöðu þeirra um áramót. Hún óskaði eftir upplýsingum um fyrirhugaða nýtingu á fjármagni sem áætlað er til áhaldahúss. Þá spurðist hún fyrir um liðinn ófyrirséð. Halldóra sagði að upplýsingar um hafnarsjóð og framkvæmdir á hans vegum væru fyrst og koma fram núna. Ásta sagði að þessar upplýsingar hafi verið sendar út. Halldóra sagðist hafa viljað sjá fyrr hvað ætti að gera á árinu 2009, t.d. í Hornafjarðarhöfn. Hjalti greindi frá upplýsingum um fyrirhugaðar framkvæmdir sem ræddar voru á síðasta fundi hafnarstjórnar.
Einnig rætt um fyrirhugað viðhald á fasteignum og ákvörðun um að eignfæra hluta af þeim framkvæmdum. Halldóra sagði mikilvægt að gera skýr lotuskil við endurskoðun fjárhagsáætlunar sem fyrirhuguð á þriggja mánaða fresti.
Fjárhagsáætlun ársins 2009 vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
3. Samstarf um rannsóknir og þróun á virkjun orku og nýtingu jarðefna
Hjalti gerði grein fyrir þeim hugmyndum sem uppi eru um þetta mál. Samkvæmt þeim er fyrirhugað að vinna þetta í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð og Frumuna. Fyrirhugað er að fjármagna verkefnið með fé sem úthlutað var til mótvægis við niðurskurð á þorskaflahámarki. Halldóra taldi þetta gott og þarft verk og sagðist styðja það.
4. Leigusamningur um efri hæð steypustöðvar – ósk um framlengingu
Bæjarráð samþykkir að framlengja leigusamning um steypustöð til 30. júní nk. og húsið rifið strax að því loknu.
5. Myndverk Svavars Guðnasonar
Hjalti fór yfir málið og um leið drög að bréfi til Karls Ómars Jónssonar. Samþykkt að taka málið aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs. Undir þessum lið var fjallað um kaup sveitarfélagsins á neðstu hæð í ráðhúsi árið 2007. Halldóra óskaði eftir upplýsingum um hvort til væri skrá yfir öll listaverk í eigu sveitarfélagsins.
6. Innsend erindi
· ASÍ, tölvubréf sent Sambandi ísl. sveitarfélaga, dags. 15. janúar 2000, hugmyndir er varða sérstaklega hag atvinnulausra.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Bændasamtök Íslands, bréf dags. 16. janúar 2009, sent Sambandi ísl. sveitarfélaga, bótaréttur vegna framkvæmda í almannaþágu og framkvæmd eignarnáms.
Vísað til atvinnumálanefndar.
· Íþrótta og ólympíusamband Íslands, bréf dags. 16. janúar 2009, Lífshlaupið, fræðslu og hvatningarverkefni ÍSÍ.
Til kynningar.
· Samgönguráðuneytið/Jöfnunarsjóður, bréf dags. 17. janúar 2009, uppgjör framlaga út Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2008.
Til kynningar
· Gauti Árnason f.h. sóknarnefndar Hafnarkirkju, bréf dags. 19. janúar 2009, varðar staðsetningu á nýjum kirkjugarði.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar
· Ásgerður K. Gylfadóttir, Ester Þorvaldsdóttir og Guðrún Júlía Jónsdóttir, bréf dags. 21. janúar 2009,sumarlokun á leikskólum á Hornafirði.
Hjalti fór yfir málið og taldi mikilvægt að menn skoði þetta með opnum hug. Halldóra minnti á að hægt væri að skipuleggja starf leikskólanna beggja þannig að lokunartími skólanna styttist og skarist. Það ætti ekki að kalla á aukinn kostnað að hennar mati.
Fram kom að bréfið verður tekið fyrir á fundi skólanefndar nk. fimmtudag.
7. Önnur mál
Hjalti ræddi um endurskoðun reikninga bæjarsjóðs og hugsanlegt samstarf við Skinney –Þinganes um að fá hingað fastan starfsmann á vegum endurskoðunarfyrirtækis með búsetu hér. Samþykkt að fela bæjarstjóra að ræða við endurskoðunarfyrirtæki um að kanna þennan möguleika.
Fundi slitið kl. 18:25


